Heimilistíminn - 02.11.1978, Page 4

Heimilistíminn - 02.11.1978, Page 4
Maður er nefndur Charles Hamilton. Hann hefur aðalbæki- stöðvar sinar á Manhattan og þar kaupir hann og selur eigin- handaráritanir alls konar. Hann er mikill kunnáttumaður á þessu sviði og menn bæði dást að honum og hafa af honum ótta, rétt eins og væri hann páfinn sjálfur eða einhver álika. — Reglur rithandasafnarans eru ein- faldar, segir Hamilton: Findu skjal undirskrifaö af Juliusi Cæsar (þótt ekki hafi fundizt sllkt skjal siðustu tvö þúsund árin, þá voru eitt sinn i umferö þúsundir slikra skjala) og einhver safnarinn myndi meö ánægju kaupa skjaliö af þér fyrir tvær milljónir dollara. Uppgötvaöir þú eitthvaö sem William Shakespeare hefur skrifaö nafnið sitt á (til eru sex eigin- handaáritanir sem sannanlega eru eftir hann) og slikt plagg myndi seljast sam- stundis fýrir 1.5 milljónir dollara. Fyrir nafn Christophers Columbusar gætir þú fengiö 500 þúsund dollara og meira aö segja bréf frá einhverjum Button Gwinnett sem undirritaöi sjálfstæöisyfir- lýsingu Bandarfkjanna og næstum ekkert annaö er 250 þúsund dollara viröi. Margt má selja þótt fyrir lægri upp- hæöir sé. Cantata undirrituö af Mozart var nýlega seld fyrir 120 þúsund dollara. Kostnaöarreikningur Paul Revere vegna feröar til Philadelphiu, og staöfestur af John Hancock var sleginn á 70 þúsund , dollara. Tuttugu o& tveggja oröa setning („Ask not what your country...)”, sem John F. Kennedy undirritaöi var seld fyrir 11 þúsund dollara eöa á 500 dollara orðiö. Geimfari nokkur borgaöi meira aö segja 150 dollara fyrir aö fá afþrykk af fæti fyrsta geimferöa hundsins Muttnik. Skjalasöfnunaræöi hefur mjög tekiö aö Napoleon skrifaöi mikiö. Hann mun hafa látiö eftir sig um 250 þúsund sýnishorn af krafsi sinu. Oft las hann fyrir sex riturum samtlmis. festa rætur. Fyrir um það bil tiu árum voru einungis um þrjú þúsund manns sem söfnuðu eiginhandaráritunum og skjöl- um, en nú eru þeir um tuttugu þúsund I Bandarikjunum. Auk þeirra eru um tvær milljónir safnara sem hafa ekki meiri umsvif en það að þeir koma söfnunum sinum fyrir i skókössum. Alls munu þessir safnarar eyöa um 100 milljónum dollara á ári til kaupa á ýmsum verömætum safn- Ferdinand og Isabella á Spáni skrifuöu ekki nöfnin sin eins og venjulegt fólk. Hann skrifaöi „Ég konungurinn” hún skrifaöi „Ég drottningin.” Hitler er dýrari en Churchill. Undirskrift Hitlers 4

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.