Heimilistíminn - 02.11.1978, Side 5

Heimilistíminn - 02.11.1978, Side 5
gripum. Er svo komið aö állka miklu er eytt i þessa tegund safna og i myntsöfn, frimerkjasöfn og gullfiska en þetta þrennt hefur lengi veriö meðal vinsælastu tóm- stundagamans i Bandarikjunum. Hvers vegna er svona mikill æsingur út af þornuðu bleki? Jú, menn kaupa þetta allt til þess að hagnast á þvi þótt siðar verði. Verð söfnunarverðra skjala hefur hækkað um 10 til 12% á ári undanfarin ár. Þó er annað sem hefur ekki siður áhrif á safnarana og það er að þeim gefst með þessu móti tækifæri til þess að skyggnast inn i fortiðina að þvi er Charles Hamilton segir. — Safnarar njóta þess að vera eins konar gluggagægjar og fylgjast með stór- viðburöum. Þegar ég sé blóðsletturnar og hálfskrifað nafn Robespierres á yfir- lýsingunni, sem hann var að undirrita þegar hann fékk byssukúlu i kjálkann kemur kökkur i hálsinn og mér finnst sem ég-heyri skothvellinn. Og hvernig getur nokkur annað en orðið snortinn af þvi að lesa kveðjuorð Anne Boleyn, sem hún sendi Hinriki VIII kvöldið fyrir aftökuna? — Þú hefur gert mig að drottningu skrifaði hún, — og þar sem þú getur ekki lyft mér hærra i þessum heimi sendir þú mig nú til þess að verða dýrðlingur á himnum. Hamilton er næsta merkilegur maður. Hann er með silfurgrátt stritt hár, ljós- rautt handlit og glitrandi blá augu og Og hver skyldi hafa skrifaö þetta? Enginn annar en Kennedy forseti. Skrift hans varð þvi ógreinilegri sem völd hans urðu meiri. Litið er til af skrift Carters forseta. Bréf sem hann skrifaði eftir að hann tók við embætti var selt fyrir 4000 dollara. •<—---------------—m. sumir segja að hann sé einna likastur skopmynd af kaninu. Hann er þó svo sannarlega engin „Páskakanina.” Hann er 64 ára gamall og i fjöldamörg ár hefur hann helgað sig algjörlega skjala og handritasöfnuninni. Hann hefur þurft að berjast i óeiginlegri merkingu viö Ibúa Hvita hússins og með þekkingu sinni á eiginhandaráritunum hefður honum tekizt hvaö eftir annað að koma upp um þjófa og falsara. Hann hefur sett á stofn fyrirtæki, sem kaupir og selur safngripi af þeirri tegund, sem hér um ræðir og árs- tekjur fyrirtækisins eru rétt innan við eina milljón dollara. Þrátt fyrir allt þetta hefur honum gefizt timi til þess að skrifa tiu bækur, sem bæði eru fullar af fróöleik og kimni. Hamilton er frá Flint i Michigan. Faðir hans var timbursali. Tólf ára gamall upp- götvaði Hamilton töfra eiginhandar- áritunarsöfnunarinnar og lét sig meira að segja hafa þaö að skrifa Rudyard Kipiing. Kipling svaraði bréfi hans og eftir að hafa eignazt nafnið hans á pappir var Hamil- ton sokkinn i söfnunaræðiö fyrir fullt og allt. Hamilton stundaði nám við UCLA og það með miklum sóma. Þar las hann fimm bækur á dag og útskrifaðist með próf I ensku. Siöan var hann þrjú ár I flug- liði landhersins og lagði stund á sitthvað fleira. Eitt sinn var hann meira aö segja bókari hjá sápuframleiðanda en fyrirtæk- ið nefndist Hollywood Bath o’Bubbles. Um fertugt fékk hann þá hugmynd aö rétt væri að græða svolitiö fé og tók aö selja skjala og rithandasafn sitt. Hann varð furðu lostinn, þegar hann sá hversu mikiö hann gat fengiö fyrir þetta og eftir það helgaði hann sig þessu starfi til fulls. Fólk hefur oft á tiöum verið heldur þreytt á þeim þekkingarbrunni sem Hamilton má kallast. (Vissir þú að það voru niu hers- höfðingjar i borgarastriöinu Gyðingar?) En þekking hans á hinum ýmsu sviðum hefur fært honum völd og auö. Eitt sinn komst Hamilton yfir hluta af ræðunni, sem fyrsti forseti Bandarikj- anna flutti er hann var settur inn I em- bættið. Þennan hluta hafði forsetinn aldrei flutt. Keypti hann plaggið fyrir 50 dollara en þaö er nú 750 dollara virði. I Mexikó keypti hann lika á 120 dollara það sem siðar reyndust vera Azteca-lög og má nú selja fyrir 5500 dollara. Hamilton hefur átt mörg merkileg skjöl. Þar á meöal má nefna bréf, sem Isabella drottning skrifaði og fjölluöu um skartgripina sem hún seldi til þess að geta fjármagnað ferð Columbusar til Nýja heimsins. Þá hefur hann átt eina bréfið Hamilton fær sér fótabað niöur viö ströndina.

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.