Heimilistíminn - 02.11.1978, Page 6

Heimilistíminn - 02.11.1978, Page 6
Hér er Hamilton með fjölskyldu sína, Chip, Carolyn, Cynthia og Diana. til Lincolns. Eitt af meistarastykkjum hans var handrit að Hrafninum eftir Edg- ar Allan Poe, og ekki var siðri Sjálfstæöis- yfirlýsingin sem hann gat einnig falsaö. Samsetning bleksins og hvernig það kem- ur út á pappirnum er það eina sem hægt er að sjá áð hér er um eftirlikingar að ræða. Hamilton hefur verið iðinn við að koma fölsurum undir lás og slá. Það sem þó hefur vakiö hvað mesta reiði hans eru „falsararnir i Hvita húsinu.” Allt frá dög- um Andrews Jacksons hafa forsetarnir haft yfir að ráöa starfsmönnum, sem hafa undirritað hitt og þetta fyrir þá. — Þetta er þó að verða einum of mikið segir Hamilton: Þrátt fyrir það aö fulltrúar i Hvita húsinu hafi þverneitað þá hefur Hamilton sannað að John Kennedy hafi haft að minnsta kosti sjö slika og auk þess nokkra „autopens”, en það eru vélmenni sem geta likt eftir 3000 undirskriftum á dag. Hann réðist harkalega að Lyndon Johnson fyrir að halda þessu áfram og heldur þvi fram að Richard Nixon hafi notað 14 slik tæki I forsetatið sinni. Það sem fer hvað mest I taugarnar á Hamilton er að þegar bandariskur borg- ari skrifar til forseta sins og biður um rit- handarsýnishorn hans þá fær hann annað hvort blað áritaö af vélmenni eða ein- hverjum öðrum sem hefur atvinnu af aö undirrita hitt og þetta fyrir fórsetann. Carter mun hafa hætt Þessari iðju en Hamilton heldur þvi fram að meira að segja eftir að Kennedy forseti var látinn hafi falskar undirskriftir hans verið sendar út frá starfsliði Hvita hússins. — Ég er svo gamaldags i mér að mér finnst forsetar ættu ekki að ljúga aö fólkinu, sem þeir eru fulltrúar fyrir. Forsetaundirskriftir eru mikils virði segir Hamilton og hvetur fólk til þess að safna þeim eftir þvi sem hver og einn get- ur. Þá telur hann að eiginhandaráritanir alls konar glæpamanna eigi eftir að verða mjög verðmætar. Bréf frá Hitler er þannig fimm sinnum verðmætara en bréf frá Churchill. Bréf undirritað af John Wilkes Booth, sem myrti Lincoln er 1000 dollara virði og bréf sem bróðir hans Edwin undirritaði er aöeins 50 dollara virði en Edwin er talinn meðal helztu leik- ara Bandarikjanna. Fólk verður aö fylgjast vel með þvi sem er að gerast. — Leiðtogar svertingja eru mjög á uppleið segir Hamilton. — Skjal sem Martin Luther King undirritaöi getur verið jafndýrmætt og annað undirritaö af Lincoln. Kvenréttindakonur eru lika á uppleið. Bréf frá Susan B. Anthony sem var dollara viröi fyrir fimm árum myndi i dag seljast á 75 til 100 dollara. Fólk er lika farið aö fá meiri áhuga á Framhald á bls. 25 safnari átti það til aö hóta að fremja sjálfsmorð ef menn svöruðu ekki bréfum hans og þar með hafði hann náð rit- handarsýnishornum. Enskur safnari svindlaði tveimur bréfum út úr Rudyard Kipling með þvi að aka bil sinum yfir grasflöt skáldsins keyra á nokkur tré, og skilja svo bilinn eftir með miða, þar sem hann lofaði að borga skemmdirnar ef Kipling sendi honum reikninginn. Skjalaþjófar eignuðust að lokum jafningja sinn, þar sem Hamilton var. Minni hans er einstakt og þekking hans ekki siðri. Hann hefur þvi hvað eftir annað getað orðið lögreglunni að liði, þeg- ar þurft hefur að koma upp um skjala- þjófa. Til dæmis hjálpaöi hann til við að koma upp um hinn fræga Sam Matz og Elizabeth konu hans sem komust undan með 500 þúsund dollara virði af söguleg- um skjölum úr Þjóðarbókhlööunni i Washington árið 1962. Hamilton er enn kræfari þegar hann þarf að koma upp um falsara. — Ég get séð að um fölsun er að ræða úr 40 feta fjarlægð segir hann stoltur. — Einhver kjáni bauð einu sinni lokk úr hári Karls sköllótta. Annar bauð mér bréf frá Júliusi Cæsar, Cleopötru og Alexandri mikla en gat þó ekki útskýrt hvers vegna bréfin voru öll skrifuð á nútima frönsku. En sumir falsarar eru sannkallaðir listamenn. Þeirra á meöal er tugthúslim- ur nokkur Martin Coneely frá Syracuse i New York riki. Hann átti það til aö borga fyrir ölglas með þvi að skrifa óaðfinnan- lega nöfn forsetanna allt frá Washington ---------------m. Greta Garbo er mikils virði þessa stundina enda erfitt aö fá eiginhandar- áritun hjá henni. sem Jesse James undirskrifaði með dul- nefni sinu Thomas Howard. Ennfremur átti hann bréf sem Viktoria drottning skrifaði. 1 þessu bréfi er drottningin að gefa góð ráð varöandi stúlku sem varð fyrir þvi að eignast barn, þótt ekki væri hún gift. í bréfinu stendur: — Látiö hana ganga með hring og þá veit enginn annað en hún sé gift. Þegar Hamilton hóf rithandasöfnunina höfðu menn stundað hana um nokkurt skeið og beitt ýmsum brellibrögöum til þess að fá þekkta menn til þess aö skrifa nafnið sitt. Þannig má nefna aö franskur OjAjáo.' Cux\& o- - 6

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.