Heimilistíminn - 02.11.1978, Qupperneq 13
Aður en langt um llður verður Anita
Skogran tvitug, og þótt aldurinn sé
ekki hár er hdn i þann veginn aö verða
ein vinsæiasta poppsöngkona Norð-
manna. HUn hefur stefnt að þessu
marki i mörg ár, og unnið kappsam-
lega til þess aö geta náð því. A siðasta
ári sendi hún frá sér breiðskifu, sem
færöi henni aöild að gullplötu-
klúbbnum, en þeir eru vist ekki
margir, norsku listamennirnir, sem
geta státað af þvi að hafa komizt I
hann. Nú er Anita að senda frá sér
aðra breiðskifu, sem reiknaö er meö,
að verði ekki siður vinsæi en sú fyrri.
1 ráði er að framkvæmdastjóri og
ABBA hlusti á það, sem Anita hefur
fram aðfæra.ogvel geturfarið svo, að
plata með henni verði gefin út undir
plötumerki ABBA, Polar, og einnig
hefur þýzka plötufyrirtækið Hansa,
sem kom Boney M I sviðsljósið verið
að velta fyrir sér, hvort það ætti að
gefa út plötu með Anitu.
Platan sem Anita sendi frá sér i
fyrraseldist i um 22þúsund eintökum,
og segist söngkonan vera mjög ánægð
með það. NU hefur hún sett saman
plötu með tónlistarmanninum George
Keller, og vonast þau til að platan eigi
eftir að seljast mjög vel, enda eru þau
nokkuð ánægö með árangurinn af
samstarfi sinu. A þessari nýju plötu
eru næði norsk lög og svo erlend lög,
sem þegar hafa aflað sér vinsælda, en
þau eru gjarnan meö norskum textum.
Anita Skogran segir, pð ekki þýöi að
vera með eitthvert þjóðlegt stolt og
ætla sér að nota einungis norsk lög á
plötu sem þessa. Það sé miklu betra að
nota góð erlend lög heldur en miöl-
Ungsgóð norsk lög. Én textarnir eru
þó eins og fyrr segir gjarnan á norsku.
George Keller hefuq Utsett flest lag-
anna á plötunni, en nU segist Anita
ætla sér aö leggja sig meira eftir sliku
i framtiðinni, þar sem hún vilji
gjarnan geta útsett lögin sem hún
syngur sjálf. HUn segist meira að
segja hafa- i hyggju að syngja inn á
plötu lög, sem hún hefur sjálf samið,
en þvi miður séhúnekki afkastamikil
á þvi sviði enn sem komið er.
Hver veit nema þessi norska Anita
Skogran eigi eftir að ná eins langt og
ABBA og Boney M, a^ minnsta kosti
hljóta plötuframleiöendurnir að hafa
einhverja trú á henni úr þvi þeir
leggja Uti að gefa út plötur með henni.
Hér á myndinni sjáið þiö svo Anitu
Skogranog GeorgeKeller, en þau hafa
unnið nokkuð saman að undanförnu.
Popp-kornið
Anfta Skorgan
norsk poppsöngkona á uppleið