Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 02.11.1978, Qupperneq 23

Heimilistíminn - 02.11.1978, Qupperneq 23
Ég gat lika séð fyrir mér hvernig Ruth virti föð ur sinn fyrir sér með undarlegu brosi á vör, brosi, sem var svo sérstætt fyrir hana. Þegar við vorum enn börn hafði þetta bros komið mér til þess að skjálfa. Jason sat trúlega lika við borðið og horfði á föður sinn. Kannski var hæðnissvipur á andlit- inu, sem ég mundi að hafði oftast verið þar. Steven hafði verið svo gjörólikur þeim öllum. Og min eigin ætt, hversu ólik var hún ekki lika þessu fólki. Haverly-fjölskyldan hafði setzt að i Sag Harbor fyrir næstum fimmtiu árum. 1 fjöl- skyldunni höfðu verið handverksmenn, liðsfor- ingjar og sjómenn, sem höfðu lagt grunninn að auðæfunum, sem Elizabeth frænka gætti nú svo vel, og sem ég hafði haft gleði af að njóta. Og hvað vissi ég svo sejn um forfeður Stevens? Ekkert. Það þekkti enginn aðra en Ehpraim, Jason og Ruth, og svo vissi maður um allar þær ljótu sögur, sem höfðu umvafið húsið allt frá þvi að frú Fonsell dó. Fram til þessa hafði það aðeins verið Steven, sem skipti einhverju máli, þegar við hugsuðum um framtiðina, sem var svo björt og skinandi af ást. Ó, Steven! Ég grét lágt. Hvers vegna þurfti hann að vera horfinn, þegar hinir i fjöl- skyldunni voru þarna enn, illir og undarlegir, undir þessu þaki þarna langt i burtu? En hann var horfinn fyrir fullt og allt, nú þegar ég þurfti meira á honum að halda en nokkru sinni fyrr. Ég snéri mér við og gekk aftur að dyrum frænku minnari og barði varlega. Þegar ég heyrði hana svara fyrir innandróég djúptað mér andann og opnaði. Eftir nokkrar sekúndur myndi ég standa frammi fyrir Elizabethu og þyrfti að segja henni, að ég sem opinberlega átti engan mann, myndi fæða barn eftir um það bil sjö mán- uði... Elizabeth frænka leit upp úr Bibllunni og óánægjusvipur kom á grannt andlitið umvafið hári, sem enn var ekki tekið að grána , það varð svolitið þreytulegt. Hún vildi ógjarnan láta trufla sig svona rétt fyrir háttatimann, þegar hún hafði ætlað sér að lesa i Bibliunni. —Hvað er það, Irene? Aftur missti ég kjarkinn. — Það er dálitið, sem ég þarf að tala við frænku um, en það getur beðið. Gráu augun urðu ákveðin, og hún lagði frá sér Bibliuna. —Láttu mig heyra, hvað þér liggur á hjarta. Ég gat ekki komið upp einu einasta orði. Augu hennar dökknuðu og henni varð greini- lega órótt. —Irene! Hvað er það? Ég....Steven og ég ...Ég kom ekki upp einu einasta orði. —Góði guð, sagði hún. ó vesalings, litli kjáninn minn... Hún hætti og spurði siðan hreinskilnislega... Hvenær ? —í júni, geri ég ráð fyrir. Mér leið heldur betur og ég átti auðveldara með að tala. —Þetta er ekki eins og þú heldur að það sé. Við vorum gift. Skipstjórinn gaf okkur saman. Það fór aftur að koma litur á andlit hennar, meðan hún hlustaði á skýringar minar. Að lokum sagði hún: —Þú hefði átt að segja mér það strax, að þið hefðuð gift ykkur. Þú hefðir átt að skrifa, eða senda mér skeyti, svo ég hefði getað sagt öllum frá þvi hér. Nú fer fólk að velta þessu fyrir sér. J.. —Ég vildi fá að segja þér það sjálf, sagði ég hljómlausri röddu. —Ég hélt að frænka yrði...hraustari, þegar ég kæmi til baka. Það var hún greinilega ekki. Hún hafði fengið aftur eitthvað af fyrri kröftum sinum eftir heilablóðfallið, sem hún hafði fengið um sumarið. Fréttin um að Steven hefði lika tekið sér far með Ameliu Boyce og stöðugt kjaftæðið i bænum hafði haft meiri áhrif á hana, en ég hafði haldið. —Nú verðum við þó að minnsta kosti að segja öllum frá þessu þegar i stað, sagði hún. Aftur varð ég að taka á öllu, sem ég átti til þess að koma upp orði. —Ég get ekki sannað það. —Við hvað áttu? Skipstjórinn hlýtur að hafa gefið ykkur einhvers konar vígsluvottorð. —Steven tók það með sér. Ég var hrædd um að Prue frænka eða einhver af stelpunum myndi rekast á það, og myndu svo ef til vill skrifa til frænsku.... Aftur var skelfingin komin fram á andlitið. —En það hlýtur einhver að muna eftir gift- ingunni, farþegar, sem eins og þú fóru af skipinu, áður en það fórst... —Sex manns fóru i land i New York, en það var áður en Steven kom um borð. Annars skiptum við okkur heldur litð af hinum farþeg- unum. Við vorum mest ein. Ég reyndi að blikka augunum til þess að halda aftur af tárunum, sem vildu brjótast fram. —Við gætum reynt að skrifa til skipaút- gerðarinnar og spyrjast fyrir um það, hvort einhverjir farþegar hefðu farið af skipinu áður 23

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.