Heimilistíminn - 18.01.1981, Side 7
Veturinn er okkur blóma-
unnendum erfiður. Heima i
stofunni okkar eru blöðin
tekin að hrynja af mörgum
plöntunum, þótt aðrar
standi sig enn vel. Daginn
er tekið að lengja á nýjan
leik, en ósköp er samt langt
tii vors, og áreiðanlega eiga
mörg blómin eftir að hverfa
til ,,feðra sinna” næstu vik-
urnar.
Nú sem fyrr er um að gera að reyna
að stilla rétt saman ljós, vökvun og
hitann i stofunni, en við eigum erfiðast
með þaö siðasttalda. fslendingar elska
ekkert eins og heit hús, og ég verð að
viðurkenna, að hrollur fór um mig ný-
verið þegar ég las i norsku blaði um að
blómafólk ætti að reyna að koma i veg
fyrir að hitinn færi yfir 18 stig innan
dyra til þess að halda mætti lifi i blóm-
unum! Hver myndi þola slikt hér á
landi. Norðmennirnirsögðu að þá lifðu
ekki einungis blómin, heldur sparaðist
lika dýrmætorka. Sama gildir liklega
hér hjá okkur, en hver vill spara við
sig i hita? Ab minnsta kosti ekki þeir,
sem búa við hitaveitu. Oliunotendur
verða vist að gera það, hvort sem þeim
likar betur eða verr.
Falleg, stór og græn bióm eru á við
húsgögn og prýða hvert heimili. Blóm
kosta samt töluverða peninga, þótt ef
til vill kosti þau ekki meira nú en und-
anfarin ár, ef miðað er við hækkanir
almennt. A veturna verðum við að
reyna að hafa grænu plönturnar okkar
i eins mikilli birtu og frekast er kostur.
Látið blómin helzt standa i suður-
gluggunum, þar ætti að vera bjartast.
Gætið þess að vökva ékki of rösklega.
Leyfið moldinni að þorna alveg á milli
þess sem þið vökvið, og vökvið svo
með vatni, sem er ekki iskalt. Gott er
að láta vatnið standa i könnunni og
volgna viö stofuhita, áður en tekið er
til við vökvunina. Ef allt um þrýtur
varðandi birtuna er hægt að kaupa sér
ljós til þess að lýsa á blómin, ljós sem
bera dagsbirtu og geta að nokkru og
jafnvelöllu komið í staðinn fyrir hana.
Leitið upplýsinga hjá blómaframleið-
endum eöa i raftækjaverzlunum um
hvað bezt er að nota hverju sinni.
Blómasérfræðingarnir i Hollandi
segja að sú blómategund, sem þolir
hvab bezt dimma vetur sé Dracaena,
sem hér hefur vist gengið undir nafn-
inu drekatré. Hvorki þessar jurtir né
aðrar þola þó algjört myrkur og verða
þvi fallegri sem gróðrarskilyröin eru
betri.
Og að lokum ein góð ráðlegging til
viðbótar. Skolið rykið af plöntunum
undir sturtunni i baöinu. Hafið vatniö
ekki of kalt, og kraftinn ekki of mikinn
svoplantanfari illa af þeim sökum. Ef
þið nennið ekki að baða plönturnar á
þennan hátt getið þið að minnsta kosti
strokið af þeim mesta rykið með deig-
um klút. Ryk gerir engri plöntu gott.
fb
Blómin að
vetrarlagi
7
UIUIQia