NT - 29.05.1984, Qupperneq 3
í Laugardalshöll
Flokkurinn sýnir þar sem hon-
um dettur í hug, jafnt innan-
húss, sem á götum úti, og
býður upp á efni bæði fyrir
börn og fullorðna.
f>á er að snúa sér að inn-
lendu listamönnunum. Sinfón-
íuhljósveitin flytur tvær svítur
af vinsælum íslenskum dægur-
lögum frá síðustu tveim ára-
tugum, sem nemendur við
Tónlistarskólann hafa útsett
undir leiðsögn Karólínu Ei-
ríksdóttur tónskálds. Islenski
dansflokkurinn sýnir, „Big
band FÍH“ leikur og loks
leikur hljómsveit Gunnar
Þórðarsonar fyrir dansi.
Veislustjóri verður Garðar
Cortes óperusöngvari. Höllin
verður veglega skreytt og hef-
ur Kristinn Ragnarsson arki-
tekt yfirumsjón með þeirri hlið
mála. Aðgangur að skemmt-
uninni kostar 400 krónur, vín-
veitingar verða á samkomunni
og matarveitingar sömuleiðis,
seldur verður japanskur réttur
„sashami“ sem Sigmar B.
Haúksson hefur eftirlit með
framreiðslu á. Ætlast er til að
gestir verði svo skartklæddir
sem efni þeirra frekast leyfa.
■ Sigmar B. Hauksson, Krist-
inn Ragnarsson og Garðar Cort-
es greindu blaðamönnum frá
opnunarhátíðinni í Laugardals-
höll í gær.
NT-mynd Róbert
Þriðjudagur 29. maí 1984 3
Ámorgun
flytja
þessar deildir FDststofunnar
íÁrmúla25
Skrífstofa Bögglapóststofan Tollpóststofan Blaðadeildin
póstmeistara íHafnarhvoli í Hafnarhúsinu í Umferðamiðstöðinni
Við opnum einnig á morgun nýtt pósthús og símaafgreiðslu á sama stað,
aðÁrmúla 25-108 Reykjavíkog síminn er 867010.
Athugið
Jafnframt almennri póstafgreiðslu, verður bögglaafgreiðsla í pósthúsinu Pósthússtræti 5
sem og í öðrum pósthúsum í borginni.
Afgreiðslutími
Afgreiðslutími pósthúsa í borginni verður: Mánudaga kl. 8-17
þriðjudaga til föstudaga kl. 9-17
Nema pósthúsið í Umferðarmiðstöðinni sem verðuropið mánudaga/föstudaga kl. 13:30 -
19:30 og laugardaga kl. 8-15.
Verið velkomin í ný og rúmgóð húsakynni að Ármúla 25, Reykjavík.
PÓSTSTDFAN í REYKJAVÍK