NT


NT - 29.05.1984, Síða 4

NT - 29.05.1984, Síða 4
Þridjudagur 29. maí 1984 4 Rannsókn Neytendafélags Reykjavíkur: Líflegur gerlagróður í kjöt- og fiskverslunum - saurkóligerlar finnast í kjöt- og fiskfarsi ■ Heildargerlafjöldi í kjöt- farsi og fiskfarsi sem selt er í búðum á Reykjavíkursvæðinu er allt upp í 17 sinnum meiri en leyfílegt er í gallalausri vöru. Þetta kom fram þegar niður- stöður rannsóknar Neytendafé- lags Reykjavíkur voru birtar á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Neytendafélagið lét alls taka 19 sýni úr 12 verslunum og reynd- ust 10 sýni eða 53% innihalda of mikinn gerlavöxt. Að Sögn neytendafélagsins eru þessar niðurstöður að mestu í samræmi við aðrar gerlarann- sóknir sem gerðar hafa verið af Neytendafélaginu og heilbrigð- isyfirvöldum. Heildargerlafjöldi í einu grammi má ekki fara yfir 10 milljónir til að varan geti talist fullnægjandi. Af 12 verslunum sem könnunin náði til var gerla- fjöldi í kjötfarsi yfir þessum mörkum í 8 verslunum og af þessum sömu verslunum höfðu tvær allt of mikinn gerlafjölda í' fiskfarsinu. Þær verslanir sem komu verst út úr könnuninni eru: Melabúð- in, þar mældust 170 milljónir gerla í einu grammi af kjötfarsi og 228 milljónir í fiskfarsi, Dal- ver með 114 milljónir í grammi af fiskfarsi og 47 milljónir í kjötfarsi og Kjöt og fiskur þar sem 98 milljónir gerla voru í hverju grammi af kjötfarsi. Fiskfarsið þar kom hins vegar mun betur út og var vel innan markanna. í Kron á Tunguvegi, Kjörbúð Hraunbæjar, Þingholti á Grundarstíg og í Miklagarði var gerlamagn í sýnum innan mark- anna. Aðrar verslanir voru ein- hversstaðar þarna á milli. Ýmislegt fleira en heildar- fjöldi gerla skiptir þö máli í þessu sambandi. Sumar tegund- ir gerla eru mun háskalegri en aðrar. Engir sjúkdómsvaldandi gerlar fundust þó í þessum sýn- um en aftur á móti fundust s.k. saurkóligerlar sem munu ná- skyldir sjúldómsvaldandi gerlum. Vegna rnikils kostnaðar gat Neytendafélagið ekki tekið nema eitt sýni af hvorri tegund úr sömu verslun en það verður, að sögn, aðteljastófullnægjandi til að hægt sé að draga verulegar ályktanir um einstakar verslan- ir. NT mun birta heildarniður- stöður könnunarinnar á morgun.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.