NT - 29.05.1984, Side 7
■ James Woods og Robert DeNiro í risamynd Sergio Leone,
Einu sinni var í Ameríku.
Annað þrekvirki Leones við
gerð myndarinnar er endur-
sköpun umhverfisins á þeim
tíma er myndin gerist. Til þess
að komast eins nálægt raun-
veruleikanum og hægt var,
þurfti Leone að ferðast víða,
Róm, New York og Montréal,
svo einhverjir staðir séu
nefndir.
Þá eru það leikararnir. Fóst-
bræðurnir Noodles og Max
eruleiknir af Robert DeNiro
og James Woods. DeNiro fær
sömu lýsingarorð og jafnan
áður fyrir leik sinn í kvikmynd:
stórkostlegur, o s.frv. Woods
er sömuleiðis afbragð sem hinn
stórmennskubrjálaði Max.
Grafíska kvikmyndin Innsýn:
Betur má ef duga skal
■ Innsýn. íslensk grafísk
kvikmynd, árgerð 1984, eftir
Finnbjörn Finnbjörnsson.
Tónlist eftir Ingemar Fridell.
Kvikmyndir eru ekki bara
mannamyndir, dýramyndir
eða hefðbundnar teiknimynd-
ir. Til eru líka svokallaðar
grafískar kvikmyndir, þar sem
höfundurinn leikur sér með
hin margvíslegustu form og
liti, án þess endilega að vera að
segja einhverja tiltekna sögu.
Sem sagt vettvangur fyrir
taumlaust ímyndunarafl.
íslendingar hafa nú eignast
sína fyrstu grafísku kvikmynd,
sem komið hefur fyrir al-
mannasjónir. Höfundurinn
heitir Finnbjörn Finnbjörns-
son, myndin Innsýn og var hún
frumsýnd í Regnboganum um
helgina.
Innsýn er hringmynd. Upp-
haf hennar og endir eru sólar-
upprás og sólarlag. Far á milli
eru aðrar sólir, teiknaðar, sem
færast að og frá áhorfand-
anum. í mismunandi litum,
auk annarra hringforma.
Höfundurinn mun hafa eytt
ómældum tíma í gerð þessarar
myndar og er þolinmæði hans
lofsverð. Hins vegar má ekki
rugla saman löngum fæðingar-
tíma verksins og lengd þess
sjálfs. Þar hefur Finnbirni
heldur orðið á í messunni.
Sýningartími myndarinnar er
einhvers staðar nálægt hálf-
tíma, og hefði að ösekju mátt
stytta hana um einar 20 mínút-
ur. Það hefði nefnilega auð-
veldlega mátt koma kjarna
málsinsaðá lOmínútum. Eins
og myndin er borin á borð fyrir
áhorfendum er hún aðeins
endalaus síbylja, alltaf eins,
nema hvað skipt er um liti með
ákveðnu millibili. Og það sem
verra er, hún bcr vitni um
ótrúlega lítið ímyndunarafl.
Þó svo að hringformið sé ráð-
andi, hefði auðveldlega mátt
hafa fjölbreytnina meiri.
Til þess að kóróna allt, er
síðan flutt með myndinni sú
tegund nútímatónlistar, eins
og hún er kölluð, sem er lítið
annað en hávaði. Og þá sjáld-
an að tónlistinni tekst að vekja
upp einhverjar vonir, fylgir
myndin ekki eftir.
Finnbjörn Finnbjörnsson
ætlar sér að gera fleiri kvik-
myndir með þessari tækni og
vonandi tekst honum það.
Hann verður þó að muna að
kapp er best með forsjá (þó
svo að gerð myndarinnar hafi
tekið 3 ár). Það er ekki nóg að
koma með nýja tækni, menn
ntega ekki missa alla dóm-
greind um leið.
Guðlaugur Bergmundsson
■ Fyrir utan Víðigrund 53. Yngri bróðirinn, Örn Bragi, nýstúdentarnir
og mæðginin Guðbjörg Birna Bragadóttir og Eggert Rafnsson 0g
heimilisfaðirinn, Rafn Eggertsson. NT mynd Arni Bjarnason
Mæðgin í Kópavoginum:
Taka stúdents
próf samtímis
■ „Ég hætti í skóla á sínum
tíma, þegar ég var 15 ára og
hugsaði lengi vel ekkert um að
byrja aftur. Sú hugmynd kvikn-
aði fyrst þegar ég var að sækja
um menntaskólann fyrir son
minn,“ sagði Guðbjörg Birna
Bragadóttir þegar NT heimsótti
hana í gær að Víðigrund 53 í
Kópavogi. Guðbjörg er einn
nýstúdenta úr Flensborgarskól-
anum á þessu vori og svo
óvenjulega vill til að sonur
hennar lauk stúdentsprófi sam-
tímis móður sinni úr Mennta-
skólanum í Kópavogi.
„í byrjun tók ég þetta rólega
í Flensborg er áfangakerfi svo
að maður ræður námshraðanum
sjálfur. Ég var ekkert ákveðin í
því í byrjun að ég ætlaði að
Ijúka stúdentsprófi, þótt sú hafi
orðið raunin. Síðustu annirnar
hef ég tekið á fullum hraða.
Sonurinn, Eggert Raínsson,
telur víst að hann muni hefja
háskólanám, en hefur ekki
ákveðið hvaða grein hann
hyggst leggja stund á. Guðbjörg
hefur hins vegar þegar tekið
ákvörðun um að hefja nám við
Félagsvísindadeild HÍ á hausti
komanda.
Nýr sykurlaus
ITl/^T^T^ Appelsínu-
i JT Jr drykkur
Nýjung sætiefmð „Nutra Sweet“
er notað í TOPP
Fæst í ölltim matvöruverslunum Sói hf.