NT - 29.05.1984, Side 8
Garrí Kasparov um fyrirhugað einvígi sitt við Karpov:
Sálfræðihliðin
ræður úrslitum
MÞann 10. seplember næstkomandi hefsl í Moskvu risavaxin
viðureign við skákborðið. Þá munu eigast við i einvígi um
heimsmeistaratitiHnn Anatoiy Karpov, heimsmeistari í skák samfellt
frá árinu 1975 og áskorandi hans Garrí Kasparov. Einvigis þessa er
beðið með mikilli eftirvæntingu enda er nú í fyrsta sinn frá því að
Capablanca og Aljékín tefldu sitt fræga einvigi í Buneos Aires
árið 1927, að slíkir höfuðsnillingar í skákheiminum mætast. Þeirhafa
aðeins þrisvar teflt innbyrðis og hefur öllum skákunum lyktað með
jafntefli. Einvígi þeirra verðurháð með sömu reglum og tvö þau erá
undan hafa farið, þ.e. sá telst sigurvegari er fyrr vinnur sex skákir
Tapi Karpov á hann rétt á öðru einvígi.
Nær ómögulegt erað spá nokkru um úrslitin þar sem báðir virðast
þeir í toppformi um þessar mundir. Viðtal það sem hér birtist við
hinn unga snilling frá Baku var tekið skömmu eftir að einvígi hans
við Vasily lauk í Vilnus. Það kann að gefa mönnum nokkra innsýn í
þá baráttu sem framundan er.
Fréttastofa APN á íslandi lét snara þessu viðtali yfir á islensku
sérstaklega fyrir NT.
Helgi Ólafsson
- Nýlega sýndi sovéska
sjónvarpiö þátt „í baráttunni
fyrir skákkórónuna“, þar sem
fjallaö var um úrslit cinvígis
yðar og Vasilí Smyslovs. Þar
hljómaði viðurkenning
Smyslovs, sem hann lét frá sér
l'ara við athöfnina, er einvíginu
lauk: „Já, ég trúði mjjög á sigur
minn, en átti ekki möguleika á
sigri í einni einustu skák.“
Hver er niðurstaða yðar?
- Égeránægðurmeðárang-
urinn - bæði í íþróttalegum og
skapandi skilningi. Ég tel ní-
undu skákina vera mína bestu
skák (og kannske ekki bara í
þessu einvígi). Tólfta skákin
varö mér einnig minnisstæð.
Smyslov reyndi að útfæra
nýjung, sem kom fram í ann-
arri skákinni. Hann bjó sig
undir hana, en skildi auðvitað
að hann var búinn að tapa
einvíginu, en reyndi eins og
sagt er í knattspyrnunni að
„bleyta í“ stöðunni.
- Hverja teljið þér vcra tutt-
ugu bestu skákmenn heims?
- Þetta er erfið spurning.
Það er sennilega hægt að svara
henni með því að nota Elo-
skákstigin. Eg nota samt aðra
aðferð: Ef landslið Sovétríkj-
anna leikur á móti heimslands-
liðinu, þá verða tíu menn í
hvoru liöi. Það eru tuttugu
bestu skákmennirnir.
- Hvaða stórmeistari hefur
átt mestan þátt í mótun sjónar-
miða y ðar á skákinni?
- Ég er mjög hrifinn af
Alekhin og tel að skákir lians
séu dæmi um mikla snilld. í
skák „bernsku" minni varð ég
fyrir mjög miklum áhrifum af
taflmennsku Alekhins. Ég
reyndi að tefla í hans stíl, sem
mátti segja að væri algildur.
Að þessu leyti reyndust ráðlegg-
ingar Mikhail Botvinnik mér
mjög hollar, en ég stundaði
nám í skóla hans um fimm ára
skeið-frá 1973-1978.
- Hvert er að yðar mati
hlutverk skákarinnar í lífi
fólks?
- Þessi spurning er nú bara
efni í heila prófritgerð. Það
er gott að tefla skák. Þessi
forna íþrótt mun með tíman-
um breiðast enn meira út. Á
því er enginn vafi. Afl hennar
cr slíkt og möguleikar hennar
eru slíkir.
- Þér hafið sennilega eitt-
hvað að segja um Karpov.
Hvað hefur hann fært skák-
inni? Er hægt að tala um
Karpovs-tímabilið í þcssari
fornu íþrótt?
- Skákin þróar hæfileika-
fólk eins og listin, vísindin og
íþróttirnar. Karpov er meðal
þeirra. Það er ekkert eftir af
þeim sem gerðu reitina 64.
Heimsmeistarinn hefur stuðl-
að að þróun skákarinnar.
Hann hefur gert skákina að
sviði mannlegrar starfsemi
Fyrir áhrif Anatolí Karpovs
hefur taflmennskan almennt
farið á hærra menningarstig,
svo og úrvinnsla einfaldrar
stöðu og endatafls. Hann fann
bestu sigurleiðina og eyddi í
það lágmarksorku. I þessu er
atvinnumennska hans fólgin.
Skákin fór á miklu hærra stig á
tínium Karpovs. Hann erbest-
ur í dag, vegna þess að hann er
sem heimsmeistari persónu-
gervingur sterkasta skákmanns
heimsins. Ég bæti við: Sem
handhafi kórónunnar er hann
löggjafarvald skáktískunnar.
Þetta er eðlilegt - ntenn bera
sig saman við heimsmeistarann
- hann er fyrirmyndin.
- Getur verið að manna-
skipti í skákhásætinu hafi í för
með sér nýja strauma i tafl-
mennsku?
- Mér virðist leiðin vera
samræming fagurs skákstíls
Tals, kraftmikils stíls Spasskís
og strangs og skynsamlegs stíls
Karpovs. Persónulega er ég
fylgjandi fögrum skákstíl, sem
nálgast list og veitir skákunn-
endum hreina fagurfræðilega
ánægju. Að þessu leyti er
heimsmeistaraeinvígið stefnu-
markand.i hvað varðar nýjan
stíl, löggjöf við taflborðið. í
raun er þessi regla einnig að
breiðast út í knattspyrnunni.
Hollenska landsliðið vann
nokkra fallega sigra.og um leið
varð knattspyrnan vinsæl um
allt land. Er þetta ekki svona?
Gleymum því ekki að það er
eimreiðinni að þakka að öll
lestin hreyfist.
- Karpov hefur fekið þátt-
töku í mótum með í undirbún-
inginn fyrir einvígið með yður.
Eftir því sem okkur er kunnugt
hafið þér farið aðra leið.
- Ég vil heldur búa mig
undir einvígið við rólegri að-
stæður. Hann er heimsmeist-
ari, en ég áskorandinn. Ég
verð að skoða, skilgreina,
rannsaka á alla vegu. Það er
aðeins hægt innan fjögurra
veggja, við aðstæður rann-
sóknastofunnar, ef svo mætti
segja. Og satt að segja er ég
orðinn leiður á að sitja ætíð við
skákborðið. Á einu ári tefli ég
60 skákir og tíu þjálfunarskák-
ir. Á undanförnum árum hef
ég teflt minna, en það er ekki
rnérað kenna. Égtefldieinsog
kunnugt er í einvígum, þar
sem telja má hverja eina skák
sem tvær. Af sextíu skákum
hef ég tapað þrem.
- Aður en þið Smyslov átt-
ust við, efndi tímaritið „Og-
onjok“ til keppni meðal les-
enda sinna: Hver getur sér rétt
til um úrslit einvígisins. rit-
stjórnin fékk um 4000 bréf frá
lesendum sínum. Anatólí
Karpov sendi einnig inn sína
spá. Bréf hans er dagsett þann
22. janúar sl. Hann er með
alveg rétt tölu - 8V2 - 4Yz
Kasparov í hag.
- Verðandi andstæðingur
minn er gæddur miklu innsæi.
- Hvað teljið þér um eigin
möguleika á einvíginu við
heimsmeistarann?
- Það er von mín að mögu-
leikar okkar séu nokkurn veg-
inn jafnir.
- Hver er „Achillesar-
hælinn“ í taflmennsku
Karpovs, ef það er ekki leynd-
armál?
- Ég held mér frá því að
koma með einhverja dóma um
taflmennsku Karpovs. Ljúki
einvíginu á hagstæðan hátt fyr-
ir mig, þá lofa ég að segia frá
veiku punktunum. Ef fer á
hinn veginn, lofa ég því að
útskýra hvers vegna ég tapaði.
- I einvíginu við Smyslov
var drottningarbragð mest
notað. Ætlið þér að halda
lengi áfram að þráast við að
leika kóngspeðinu fram í fyrsta
leik?
- Þessari spurningu skal ég
svara eftir nokkra mánuði
- Á heimsmeistarinn að
eiga möguleika á öðru einvígi?
- Svarið við þessari spurn-
ingu er breytilegt eftir stöðu
þess sem svarar. Hjá heims-
meistaranum er sjónarmiðið
til þessa eitt og hjá öðrum
stórmeisturum er það annað. í
heild er ég fylgjandi þessum
rétti heimsmeistarans.
- Hvað um hlutverk sál-.
fræðinnar í einvíginu um skák-
kórónuna?
- Þaðerekkert leyndarmál,
að þessu einvígi lýkur ekki á
neinum vissum degi. Það þarf
sex vinninga til að sigra. Ég hef
þegar sagt, að við Karpov
töpum þrem skákum á ári. Það
þýðir samt ekki að einvígið
standi yfir í tvö ár. En mitt álit
er, að svo fari að lokum, að
skákþátturinn láti í minni pok-
Vettvangur
Júlíus J. Daníelsson
■ Á þingi sambands bænda-
samtaka í Evrópu (CEA), sem
haldið var í Wiesbaden í
Þýskalandi á sl. hausti var lögð
fram skýrsla unnin á skrifstofu
búnaðarmála EBE í París of
Oliver de Gasquet. Skýrsla
þessi bar heitið: Launajafn-
ræði bænda við aðrar stéttir
þjóðfélagsins í Evrópulöndum
og í öðrum löndum, sem eiga í
samkeppni við þau um sölu á
búvörum. Undirfyrirsögn: Að-
ferðir og leiðir og árangur af
þeim.
Blaðinu hefur borist íslensk-
ur útdráttur úr skýrslu þessari
unninni af Júlíusi J. Daníels-
syni, ritstjóra er hann gerði
fyrir Stéttarsamband bænda.
Þar sem fram kemur í skýrsl-
unni að margt er líkt með.
skyldum og að vandamálin eru
um margt svipuð í öðrum
Evrópulöndum og hér á landi
og að lausnirnar sem leitað er
um margt líkar, þykir blaðinu
fengur að því að fá að birta
efni nefndrar skýrslu að vísu
nokkuð stytt.
í inngangi segir að sú hug-
mynd hafi verið uppi um nokk-
urt skeið í löndum Vestur-
Evrópu að bændum beri réttur
til sömu lífskjara og aðrar
stéttir búi við. Þessi krafa hafi
hlotið byr er hin mikla upp-
bygging átti sér stað í álfunni
eftir seinni heimsstyrjöldina.
Þá varð mikil framleiðsluaukn-
ing í landbúnaði en tekjur
bænda voru yfirleitt mjög
lágar. Þetta hafa ríkisstjórnir
hvarvetna gert sér Ijóst og
hvað sem sanngirnissjónar-
miðum leið þótti yfirvöldum
það nauðsynlegur liður í al-
ntennri atvinnuuppbyggingu
að bæta afkomu bænda.
Þarna var þó sá hængur á að
aukin framleiðni leíddi til meiri
framleiðslu en hægt var að
selja og þess vegna vildu vör-
urnar lækka í verði, þannig að
bændur nutu í reynd einskis af
aukinni tækni. Vitnað er í
Joseph Klatzmann sem sagði
um þetta „ef ekkert er til að
koma í veg fyrir þessa eðlilegu
atburðarás, þá myndu tekjur
bænda lækka í beinu hlutfalli
við tækniframfarir." Hann
nefnir þetta „Þverstæður
tækniframfaranna".
Þrátt fyrir fólksfækkun í
landbúnaði hefur ríkisstuðn-
ingur allsstaðar reynst nauð-
synlegur til þess að halda uppi
búvöruverði og tekjum bænda.
Launajöfnun
í Evrópulöndum þar sem
miklar framfarir hafa orðið
síðustu áratugina hefur víðast
verið reynt að þoka tekjum
bænda til jafns við tekjur ann-
arra stétta. Jafnlaunastefnunn-
ar verður þannig mjög víða
vart í landbúnaðarstefnu
Evrópuþjóða þó að það komi
ekki alltaf fram í opinberum
plöggum.
Norður-Ameríka, Ástralía
og Nýja-Sjáland eru aðal-
keppinautar Evrópu um bú-
vöruframleiðslu. Þó að bú-
skapur í þessum löndum hafi
verið ólíkur því sem gerðist í
Evrópu hefur ríkisstuðningur
við landbúnað verið þar svip-
aður og tíðkast hér í álfu.
Landbúnaður hafði mjög lít-
ið breytst öldum saman í mörg-
um vanþróuðum svæðum Evr-
ópu allt fram að síðari heims-
styrjöldinni. Þar varð því
regluleg landbúnaðarbylting
með tilheyrandi fólksflutning-
um úr sveitunum og gífurlegri
framleiðsluaukningu. Jafn-
framt þessu hefur reynst allt
annað en auðvelt að tryggja
hag sveitafólks og jafnræði við
aðra jafnt félagslega sem fjár-
hagslega.
Norðmenn hafa þjóða best
skilgreint jafnlaunahugtakið.
Þeir nota til þess dæmigerð
meðalbú í hverjum landshluta.
Tekjur fyrir ársverk á slíkum
viðmiðunarbúum eiga að
tryggja bændum sömu lífskjör
og iðnverkamönnum. Mark-
miðið er því svipað og í Efna-
hagsbandalaginu, fremur að
tryggja jafnræði í lífskjörum
en í hreinum tekjum og koma
þá mörg atriði til álita.
í Svíþjóð eru markmiðin
svipuð og í Noregi þó að ekki
séu þau jafn vel skilgreind.
í Bandaríkjunum er stefnan
sú að hækka tekjur bænda og
jafnframt að tryggja þeim ör-
yggi gegn snöggum tekjusveifl-
um.
í Ástralíu þar sem tekju-
mismunur er mikill gerir ríkið
ráðstafanir til að tryggja bænd-
um viss lágmarkslaun. Ástr -
alska hagstofan kannar tekjur
bænda og ber saman við tekjur
i annarra stétta.
Nýsjálendingar ganga
skemmra í þessum málum en
hafa þó komið á vísi að verð-
tryggingarkerfi fyrir bændur.
Tekjur í landbúnaði og
öðrum atvinnugreinum
Erfitt er að finna einhlítan
mælikvarða til að bera saman
kjör bænda og annarra stétta.
Helsta leiðin til að nálgast
dæmið á sama hátt fyrir öll
lönd er að miða við verðmætis-
aukningu fyrir hverja vinnandi
hönd í landbúnaði.
í Efnahagsbandalagslönd-
unum eru árlega birtar skýrslur
þar sem er að finna samanburð
á tekjum bænda og annarra
stétta. Búreikningabú eru þar
flokkuð eftir því hve hátt hlut-
fall bóndinn fær af brúttótekj-
um manna í öðrum starfsgrein-
um. Þó að búreikningabú séu
að jafnaði með meira en
meðalarðsemi er fróðlegt að
skoða sfðustu tölur sem eru
frá 1979/1980. Þær sýna að um
72% þessara búa ná ekki jafn-
launamarkinu, aðeins 14% eru
nálægt þessu marki og 14%
eru fyrir ofan það.
Það er aðeins í Belgíu og
Bretlandi sem meðaltekjur á
vinnandi mann á fjölskyldu-
búum voru taldar hafa náð
meðaltekjum annarra stétta í.
byrjun áttunda áratugarins.
Hins vegar hafa tekjur í land-
búnaði lækkað hlutfallslega í
báðum þessum löndum síðustu
áratugina.
Árin 1980, 1981 og 1982
voru nettótekjur á mann við
fjölskyldubúskap að meðaltali
aðeins 76% af nettótekjum
manna í öðrum greinum í
Belgíu, 68% í Bretlandi, 56%
í Hollandi, 38% í Frakklandi
og írlandi 32% í Danmörku og
31% í Vestur-Þýzkalandi. Við
þessar tölur er það að athuga
að þær eru mjög einfaldaðar
og mörgum atriðum sleppt,
sem máli skipta. Þær eru þó
taldar marktækar til viðmiðun-
ar.
Norðmenn virðast vera eina
þjóðin í Evrópu sem náð hefur
nokkurnveginn launajöfn-
unarmarkinu fyrir bændur en
stefnt var að því að það næðist
fyrir 1982
Svo virðist sem að það hafi
náðst 1978 en þá er miðað við
tekjurfyrirársverká21 módel-
búi og borið saman við laun
iðnverkamanna. Það merkir
þó alls ekki að meðallaun allra
norskra bænda séu jöfn
launum viðmiðunarhópanna.
Munur er talsverður á milli
héraða þrátt fyrir vel skipulagt
styrkjakerfi til jöfnunar á að-
stöðu bænda. í harðbýlli hér-
uðum verða bændur og fjöl-
skyldur þeirra mjög að leita
sér vinnu utan bús.
í Svíþjóð eru tekjur bænda
af viðmiðunarbúum sem eiga
að vera e.k. þverskurður af
búum í landinu árlega bornar
saman við tekjur iðnverka-
manna. Jafnvel þó að taldar
séu með tekjur utan bús er
fjarri því að sænskir bændur
nái tekjum viðmiðunarstétta.
Tekjur sænskra bænda hafa
þannig verið frá 20 til 40%
lægri en tekjur iðnverkamanna
mismunandi eftir árum og
bústærð.
í Sviss er mikill munur á
tekjum fjallabænda og láglend-
isbænda. Þeirsíðarnefndu hafa
náð svipuðum tekjum og við-
miðunarstéttir en fjallabændur
vantar um 40% á það þrátt
fyrir mikla opinbera aðstoð.
í Austurríki eru laun bændá
með fjölskyldubú allsstaðar
miklu lægri en viðmiðunar-
stétta.
Þó að landbúnaðursé rekinn
í Norður-Ameríku, Ástralíu
og Nýja-Sjálandi á annan hátt
en í Evrópu, er þar einnig
margt líkt, ef að er gáð.
í Bandaríkjunum hafa tekj-
ur starfsmanna í landbúnaði
verið allt að 40% lægri og upp
í það að vera 40% hærri en
kaup veiijulegra launamanna
á árunum 1970-1980. Nú síð-
ustu þrjú árin hafa kjör banda-
rískra bænda versnað til muna,
en ekki er þó talið að þau séu
verri en í Evrópu.
I Kanada hefur þróunin ver-
ið lík og í Bandaríkjunum, en
þar eru tekjur bænda þó hlut-
fallslega lægri og mikið lægri
en annarra stétta.
í Ástralíu hafa nettótekjur
af fjölskyldubúskap verið um
10% hærri síðustu níu ár en
tekjur viðmiðunarstétta. Kjör
bænda eru mjög misjöfn inn-
byrðis.
í Nýja-Sjálandi eru nettó-
tekjur reiknaðar sér fyrir sauð-
fjárbændur og sér fyrir mjólk-
urbændur í báðum tilfellum
eru tekjur mun hærri en hjá
viðmiðunarstéttunum.