NT


NT - 29.05.1984, Side 17

NT - 29.05.1984, Side 17
Þriðjudagur 29. maí 1984 17 hann þegar þar að kemur. Við hugsum nú með djúpri samúð til Dóru og dætranna og drengjanna hans afa. Friður sé með honum. Skúli Magnússon. t Síminn vakti mig af værum blundi sunnudagsmorguninn 20. maí sl. til að láta mig vita, að þá um nóttina hafði Öiafur Jóhannesson orðið bráðkvadd- ur. Flestum verður hverft við slík tíðindi, ekki síst þegar í hlut eiga vandamenn eða nánir vinir og samstarfsmenn, jafn- vel þótt maður hafi haft grun um, að sá er genginn er, hafi ekki verið heill heilsu síðustu vikurnar. Ég mun ekki rekja æviágrip Ólafs, það munu aðrir gera. En þó vil ég minna á það og undirstrika, að Ólafur Jóhannesson var alinn upp í einni harðbýlustu sveit í þessu landi og ég tel, að hann hafi borið þess merki í lífsviðhorf- um og athöfnum til æviloka. Þar hafi hann fengið það vega- nesti er dugði honum, þegar mest reið á, ásamt mjög góðri menntun, er hann aflaði sér, og skarpri ályktunargáfu. I harðbýlum sveitum þessa lands var og er enn háð hörð og tvísýn barátta fyrir því að komast sæmilega af. Ef það átti að takast varð allt heimilis- fólkið að standa saman og hver og einn að leggja það fram, sem þroski og kraftar leyfðu. Samkennd og tillitssemi ein- kenndi það fólk, sem ólst upp við slíkar aðstæður. Þeirsem á annað borð komust í gegnum þessa eldskírn héldu reisn sinni, þrátt fyrir þrældóm og fátækt. Og það má segja, að þetta fólk yxi með hverjum vanda, er mætti því á lífsleið- inni. Ólafur Jóhannesson var einn þeirra. Það er líkt með okkur mönnunum og stálinu, að það sem úrslitum ræður er, að herslan sé framkvæmd á réttan hátt. Deigt járn bítur aldrei þótt brýnt sé. Ég tel það vafa- samt, að borgríkið hafi upp á að bjóða þau skilyrði sem til þarf svo æskan þar fái þá herslu hugans og víðsýni og skilning á málefnum þjóðar sinnar í heild í líkum mæli og Ólafur Jóhannesson fékk í sínum uppvexti. Að minnsta kosti eru þeir einstaklingar enn, ekki komnir fram á sjónarsvið- ið, hvað sem síðar verður. Ég hygg að umhverfið og virk þátttaka í lífsbaráttunni með sínum nánustu þroski hvern og einn meira en flestir gera sér grein fyrir. Uppeldis- fræðingar vorra tíma ættu að brjóta þessi mál til mergjar fremur en margt annað, er þeir segjast vera að rannsaka, því ekkert er jafn brýnt og að rækta og laða fram það besta sem býríhverjumeinstaklingi. Eftir fráfall Ólafs er aðeins ,einn framsóknarmaður á þingi sem hefur lengri þingsetu að baki en sá, er þetta skrifar. í 17 ár hef ég setið á Alþingi og fylgst þar með mönnum og málefnum, eftir því sem geta mín hefur leyft. Ég hef því starfað í þingflokki Framsókn- armanna allan þann tíma sem Ólafur var formaður hans og ráðherra. Og á þeim tíma, sem hann var ráðherra, kom ég oft á heimili hans til að ræða við hann um þau mál, sem ég var að reyna að finna lausn á, þegar mér fannst eitthvert mál- efni vera að þokast inn á þær brautir sem ég taldi ekki æski- legar. Oftast var ég ánægður með þau málalok, sem erindi mín fengu, og margt lærði ég af Ólafi á þessum árum. Flann var ráðsnjall og mesti lögvitr- ingur okkar tíma, enda vitn- uðu flest allir stjórnmálamenn í hans lögskýringar, þegar þeir lentu í rökræðum um lögfræði- leg efni. Enginn bar brigður á visku og lærdóm hans á því sviði. Áttundi áratugurinn hefur verið nefndur Framsóknarára- tugurinn. Enginn maður hafði eins mikil áhrif á gang mála á þessum árum og Ólafur Jó- hannesson. Ég hefði viljað kalla þennan áratug „Áratug landsbyggðarinnar". Aldrei hafa verið eins miklar framfar- ir á landsbyggðinni og þessi ár. Þá fjölgaði fólki þar í veru- legum mæli sum árin a.m.k. Ólafur Jóhannesson stjórnaði undir kjörorðinu: Framför landsins alls. Uppbygging at- vinnulífsins á þessum árum talar sínu máli og ber vitni um þá stjórnarstefnu, sem farið var eftir. Sú uppbygging stend- ur nú að verulegu leyti undir þeim lífskjörum sem við búum við í dag. Þau þykja að vísu ekki góð, en hvernig hefðu þau verið, ef uppbygging áttunda áratugarins hefði aldrei átt sér stað. - Það ættu menn að hugleiða, ekki síst þeir sem búa utan þéttbýlisins við Faxa- flóa. Margir sóttu Ólaf heim á 70 ára afmæli hans hinn 1. mars 1983. Þegar ég heilsaði horíum og árnaði honum heilla, þá sagði hann: Ég var að vonast eftir afmæliskveðju frá þér í bundnu máli. - Mér varð hverft við og mun hafa orðið hálfvandræðalegur. Ég svaraði Ólafi, að ég væri engan veginn fær um að setja saman ljóð, sem væri honum samboðið, enda hefði það ekki einu sinni hvarflað að mér að reyna það. Þá svaraði Ólafur: Enginn frekar en þú gætir það af þeim sem þekkja mig best. Þessi orð hafa aldrei fallið mér úr minni og hafa nú sótt á mig með auknum þunga, eftir að mér barst fréttin um að hann væri horfinn yfir móðuna miklu. Bara það að hann skyldi láta í ljós ósk þess efnis, að ég reyndi að setja saman Ijóð til hans gerir það að verkum, að mér finnst hann eiga það hjá mér, að ég geri tilraun til þess að setja saman eftirmæli um hann, þegar tækifæri og næði gefst. En hvort það verður annað en tilraunin verður framtíðin að leiða í Ijós. Með Ólafi Jóhannessyni er genginn einn merkasti stjórn- málamaður þessarar aldar. Um hann gustuðu oft nöturleg- ir stormar, blátt áfram gjörn- ingaveður, sem gerði honum lífið leitt og olli honum hugar- kvöl. En hann rak allar slíkar sendingar af höndum sér og stóð jafn réttur eftir. Ég hygg, þegar upp er staðið, að þá hafi enginn íslenskur stjórnmálamaður á síðustu árum notið jafn al- mennrar virðingar og Ólafur Jóhannesson. Það eitt sýnir hvaða mannkostum hann var búinn. Dóra mín. Við Fjóla send- um þér og dætrum þínum inni- legar samúðarkveðjur með þeirri ósk, að sá sem öllu ræður styrki ykkur og styðji í raunum ykkar. Stefán Valgeirsson t Kveðja frá starfsfólki skrifstofu Framsóknarflokksins. íslensku þjóðina setti hljóða sunnudaginn 20. maí s.l. Ólaf- ur Jóhannesson fv. forsætis ráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins var látinn, þjóðin hafði misst einn sinn merkasta mann. Ólafur var einn þeirra manna er skópu það umhverfi er við nú lifum í. Hann varð formaður Framsóknarflokks- ins er viðreisnarstjórnin var að renna sitt skeið á enda og hann hafði forustu um þær þjóðfé- lagsumbætur sem urðu hér á landi er ríkisstjórn umbótaafl- anna kom til valda árið 1971. Þá varð vendipunktur; þá breyttist þjóðfélagið; þá stækkaði ísland. Sjöundi áratugurinn hefur oft verið nefndur Framsóknar- áratugurinn. Allt eins hefði mátt nefna þetta tímabil áratug Ólafs Jóhannessonar. Ólat'ur var ráðherra nær allan þann áratug og um hann gustaði meira en nokkurn annan stjórnmálamann og enginn mótaði þjóðfélagið meira en hann. Við starfsfólk á skrifstofu Framsóknarflokksins höfum glöggt skynjað hve mikilhæfur áhrifamaður Ólafur Jóhannes son var og hversu mikillar virðingar hann naut fyrir mannkosti sína og vitsmuni ekki aðeins meðal Framsókn- armanna heldur landsmanna allra. Við sendum frú Dóru Guð- bjartsdóttur og öðrum vanda- mönnurn hugheilar samúðar- kveðjur um leið og við minn- umst Ólafs Jóhannessonar með þökk, virðingu og aðdáun. Starfsfólk skrifstofu Framsóknarflokksins. t Ólafur Jóhannessön alþing- ismaður og fyrrverandi forsæt- isráðherra er kvaddur hinstu kveðju frá Dómkirkjunni í dag. Við andlát hans og útför sendi ég eftirlifandi eiginkonu frú Dóru Guðbjartsdóttur, asamt börnum og barnabörn- um, saknaðar og samúðar- kveðjur Framsóknarfélaganna í Siglufirði. Öll höfum við misst mikiö, þjóðin kveður einn af sínum bestu sonum. Hann helgaði líf sitt þeirri þjóðfélagsbaráttu, sem cin- kenndist af því að ísland væri allt byggt og þau auðæfi, sem landið býr yfir, fengju skynsamlcga nýtingu öllurn til hagsbóta. I þeim anda vann hann öll sín störf. Ungur sótti hann til þeirra mennta, sem tæplega voru á færi fátæks drengs úr Fljótum í Skagafirði, að Ijúka stúd- entsprófi frá M.A. 1935 og lögfræðiprófi frá Háskóla ís- lands 1939, hvorutvcggja meö ágætis vitnisburði. Eftir að hafa unnið að mála- flutningsstörfum, og stundað framhaldsnám í Danmörku og Svíþjóð, var hann skipaður prófessor við lagadeild Há- skóla íslands árið 1947 til árs- ins !971,aðhannvarðforsætis- ráðherra. Til að koma hugsjónum sín- um í framkvæmd. skipaði hann sér ungur í Framsóknarflokk- inn, þar sem hann gegndi fjölda trúnaðarstarfa. og var formaður tlokksins árin 1968 til 1979. Hann var þingmaður Skag- firðiriga 1959, og eftir kjör- dæmabreytinguna, fyrir Norðurland vestra. til ársins 1979. að hann bauð sig fram í Reykjavík. Fyrir Siglufjarðarkaupstað var það ómetanlegt að Ólafur var forsætisráðherra, þegar byggðastefnunni var hrint í framkvæmd árið 1971 og endurskipulagning atvinnulífs hófs hér. eftir hrun síldar- stofnsins. Hann hafði víðsýni um uppbyggingu þess. var ekki bundinn kreddufullum rekstr- arformum, mat dugnaö ein- staklinga, og félaga þeirra, minnugur samtakamætti og krafti samvinnufélaga, og taldi að á seinni stigum kæmi til aðstoðar sveitarfélaga og ríkis- afskipta. Á viðkvæmum stigum út- færslu landhelgi okkar, sýndi hann slíka stefnufestu, sam- hliöa stjórnvisku, að hann á- vann sér virðingu allrar þjóðar- innar, svo og forysturrianna annarra þjóða. Kemur þetta glöggt fram í bók, sem gef'in var út á síðast- liönu ári. honum til heiðurs sjötugum. Þótt ,á ÓJafi mæddi mikið þennan aratug sem viö frarn- sókn er kenndur, en hann var samfellt í ríkisstjórn frá 1971 til 1983, sinnti hann kjördæmi sínu vel. Hann sá vel fyrir þá hættu, sem byggðáröskunin veldur, og tókst að hamla gegn á síðastliðnum áratug. Landsbyggðin hefur séö á bak sínum dyggasta stuðnings- manni. Við kveðjum hann mcð söknuði og þökk, fyrir þau ár sem við nutum forystu hans og forsjá. Megi minningin um stjórn- málamanninn Ölaf Jóhannes- son og farsæl störf hans lýsa okkur á ókomnum árum. Framsóknarfélögin í Siglu- tirði senda frú Dóru, dætrum þeirra ogöðrum ástvinum inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Framsóknarfélaganna í Sigluflrði Sverrir Sveinsson t Nú þegar Ólafur Jóhannes- son er allur, er ekki úr vegi, að sveitungi hans frá fyrri tíð minnist hans með nokkrum orðum. Allir vita um uppruna Ólafs, enda tíðum oft á orði: Hann var fæddur í Stóra-Holti í Fljótum I. mars 1913. Foreldrar hans voru Jóhann- es Friðbjarnarson kennari. ættaður úr Svarfaðardal, og kona hans Kristrún Jónsdóttir, af nierku bændafólki úr Fljót- unum. Eins og foreldrar Ólafs komu mér fyrir sjónir. voru persónuleikar þeirra sitt með hvoru mótinu. Jóhannes var hægur í framgöngu, með rólegt yfirbragð, þéttur á velli og minnugur svo, að væri hann spurður um sögulega viöburði, var Itann sem bók, er fletta mætti. Svarið kom að vísu ekki alltat á stundinni, því maöur- inn var orövar meö afbrigöum. Kristrún var greind kona, aösópsmeiri en maður hennar. dugmikill persónuleiki, er vildi láta verkin tala. Ólafur elst upp hjá foreldr- um sínum. Ættar- og uppeldis- áhrif eru augljós. Yfirþragð allt er líkt föðurnum. En að brjótast áfram til þess sem varö, í umhverfi lítilla 'mögu- leika, þurfti hvatningu scm kom frá móöurinni. Eins og títt var um unglinga í sveit á þeirn árum, vandist Ólafur almennum svcitastörf- um. Brátt kom í Ijós, aö pilturinn hneigöist til náins. Hann inn- ritaðist í M.A. 16 ára. að mestu með heimanám að baki. Að sumrinu er hann í vinnu í síldinni á Sigluíiröi og fær þar að hluta farareyri til námsins. Á unglings- og námsárunum glæðist áhugi hans á þjóðmál- um. Námsfélagar hans með skyld viðhorf, sáu fljótt for- ■ Viðræður Ólafs og dr. Kristjáns Eldjárns forseta vegna stjórnarslita í september 1979. ■ Við Alþingi

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.