NT - 29.05.1984, Síða 27
Þriðjudagur 29. maí 1984 27
fþróttamiðstöðin Scif0 {
á Selfossi tekin landsiiðið
Guðrún Fema með
gott íslandsmet
Æfir í Kanada fram að Ólympíuleikunum
■ Guðrún Fema Ágústsdóftir setti glæsilegt íslandsmet um
helgina.
Þróttarar
með 5 stig
■ Pau mistök urðu í blaðinu í
gær að Þrótturum voru ekki
reiknuð þau þrjú stig sem þeir
fengu úr leiknum gegn Pór, í
stöðumynd 1. deildarinnar í
knattspyrnu. Rétt staða Þróttar
er annað sætið, með fimrn stig,
þar sem Þróttur hefur hagstæð-
ara markahlutfall en Víkingur
og Keflavík. NT biður Þróttara
velvirðingar á þessum mis-
tökum
■ Fimmta flokks strákar frá Gautaborg og Selfossi, fyrstu gestir íþróttamiðstöðvarínnar á Selfossi.
■Guðrún Fema Ágústsdóttir
tók þátt í fjölmennu og sterku
alþjóðamóti í sundi sem haldið
var í Edmonton í Kanada um
helgina. Árangur Guðrúnar var
með afbrigðum góður og setti
hún m.a. nýtt Islandsmet í 100 m
skriðsundi á 1:02,81 (gamla
metið 1:03,18).
Guðrún tók þátt í fimm grein-
um og hreppti þrenn silfur verð-
laun og tvenn brpns, árangurinn
var þessi hjá henni:
50 m skriðsund 28,82 sek. og
hafnaði í 3. sæti.
200 m bringusund 2:49,4 mín og
2. sæti.
200 m fjórsund 2:32,70 mín og
3. sæti.
100 m bringusund 1:18,8 mín.
og 2. sæti.
100 m skriðsund 1:02,81 mín.
og 2. sæti (nýtt Islandsm.)
400 m fjórsund 5:24,49 mín. og
4. sæti.
Sannarlega mjög góður ár-
angur hjá Guðrúnu sem nú æfir
úti í Kanada fram að Ölympíu-
leikunum. Hún æfir þar með
100 manna sundhóp sem hefur
á sínum snærum sex þjálfara og
fjórar sundlaugar sem notaðar
eru að vild. Vissulega glæsileg
aðstaða og vonandi að Guðrúnu
takist vel upp á Ólympíuleikun-
um.
Urslit í
4. deild
A-riðill
Drengur-Árvakur .........0-4
Haukar-Augnablik........5-2
Ármann-Víkverji..........2-1
Afturelding-Hafnir......2-0
B-riðill
Hveragerði-Léttir .......1-4
Stokkseyri-Drangur .... 5-0
Hildibrandur-Þór Þ......2-1
F-riðill
Neisti-Sindri............5-1
Egill-Leiknir........... 1-3
Súlan-Höttur ............2-0
Hrafnkell-UMF. B........3-1
til starfa á ný
■ íþróttamiðstöðin á Selfossi
hefur á undanförnum árum not-
ið vinsælda íþróttafélaga og
hópa sem hafa nýtt sér þá
stórgóðu aðstöðu sem fyrir
hendi er á Selfossi.
íþróttamiðstöðin er rekin af
íþróttaráði Selfossbæjar sem
mun bjóða upp á leikjanám-
skeið fyrir börn í júní. Gestir
íþróttamiðstöðvarinnar gista í
Gagnfræðaskólanum hjá G'Sti-
þjónustunni Selfossi sem annast
móttöku pantana í síma (99)
1765 og 1970.
■ Belgíski landsliðþjálfarinn
í knattspyrnu, Guy Thys til-
kynnti í dag að hann hygðist
setja ítalann Enzo Scifo í belg-
íska landsliðshópinn, sem kepp-
ir í úrslitum EM í næsta mánuði.
Scifo hefur sótt um belgískan
ríkisborgararétt og fengið grænt
Ijós á hann, en einhvern tíma
mun taka að ganga frá því
formlega.
■ Kareem Abdul Jabar í einu af sínu frægu „Sky hookum“.
Lokaúrslitin í NBA hafin
Lakers unnu í
fyrsta leiknum
■Los Angeles Lakers sigruðu í
fyrstu viðureigninni við Boston
Celtics um bandaríska meist-
aratitilinn í körfuknattlcik á
sunnudaginn.
Lakers skoruðu 115 stig en
Celtics 109. Kareem Abdul
Jabbar var lang stighæðsti mað-
ur leiksins og skoraði 32 stig.
Lítið bar á Larry Bird hjá
Celtics sem áttu frekar daufan
dag.
Jabbar sern nú er kominn vel
á fertugs aldur hefur sjaldan
eða aldrei leikið betur en ein-
mitt nú. Hvort þaðnægirLakers
til sigurs í viðureigninni gegn
Boston skal ósagt látið, en vissu-
lega eru sterkar líkur á því að
Los Angeles Lakers vinni
bandaríska meirstaratitilinn í
ár.
■ Pálmi Jónsson og félagar FH sigruðu Einherja 2-1 í gærkvöldi.
Þessi mynd er tekin í leik FH og IBÍ á ísafirði um síðustu helgi.
Það er Guðmundur Jóhannsson Isfirðingur sem á þarna í höggi
við Pálma.
FH vann Einherja
Ingi Björn skoraði
Góð staða FH á toppi 2. deildar
■ FH-ingar unnu sinn þriðja
sigur í annarri dcild í gærkvöldi
er þeir sigruðu Einherja frá
Vopnafirði á Kaplakrikavelli
með tveimur mörkum gegn
einu. Þar með eru FH-ingar
með fullt hús stiga í annarri
deild og að sjálfsögðu efstir.
En sigurinn í gær var ekki
auðveldur því Vopnfirðingar
börðust af krafti allan leikinn
og létu heimamenn svo sannar-
lega hafa fyrir hlutunum.
Það voru Einherjamenn sem
náðu forustunni í fyrri hluta
seinni hálfleiks er Gísli Davíðs-
son komst einn inn fyrir vörn
FH og vippaði knettinum snyrti-
iega yfir Halldór í marki FH.
Einhverja menn drógu sig síðan
heldur aftur eftir markið og
sókn FH þyngdist. Það var svo
Ingi Björn sem jafnaði fyrir FH
með skallamarki og á sömu
mínútu skoraði Guðmundur
Hilmarsson sigurmarkið með
skoti af stuttu færi. Leikurinn
var nokkuð fjörugur en veðrið
ákaflega kalt.
1200 áhorf-
endurí
Eyjum
■ Það voru hvorki fleiri
né færri en 1200 áhorf-
endur sem komu að sjá
lcik Hildibrands og Þórs
Þ. í 4. dcild í knattspyrnu
sem leikinn var í Eyjum á
sunnudag. Að sögn frétta-
manns NT í Eyjum þá
mættu Hildibrandar með
„stfl“, allir klæddir í
knattspyrnubúninga er
voru í tísku í kringum
1950 og komu akandi á
opnum vörubfl með lög-
reglufylgd. Þar að auki
var til staðar lúðrasveit og
skemmtikraftar. Að lok-
um má geta þess að Hildi-
brandar sigruðu í
leiknum 2-1.
Meistara-
mót íslands
■ Meistaramót íslands
í frjálsum íþróttum, fyrri
hluti, fer fram á Laugar-
dalsvelli n.k. mánudag og
þriðjudag, 4. og 5. júní.
Keppt verður í 4x800m
boðhl. karla fyrri daginn
en lO.OOOm hl. karla og
3000m hl. kvenna seinni
daginn. Sjöþraut kvenna
og tugþraut karla dreiflst
síðan á báða dagana.
Keppni hefst kl. 18:00
hvorn daginn.
Þátttökutilkynningar
þurfa að berast til Haf-
steins Oskarssonar, Mos-
gerði 23, 108 R., á þar til
gerðum spjöldum, í síð-
asta lagi 30. maí.
Fimleika-
námskeið
■ Fimleikanámskeið
verður haldið dagana 1.-
7. júní 1984 í íþróttahúsi
Ármanns í Reykjavík.
Þjálfarar á námskeiðinu
verða hjónin Men Xi-
amoing og Bao Nai Jangy
frá Kína. Þau eru marg-
faldir Kínamcistarar og
hefur Bao m.a. þjálfað
kíverska lanasliðið.
Námskeiðið fer fram á
íslensku (ensku) og hefst
föstudaginn 1. júní.
Kennt verður frá kl. 9-12
og 3-6 daglega. Upplýs-
ingar er hægt að fá á FSÍ
eða í síma 43931.
Opið Dunlop
tennismót
■ Opna Dunlop tennis-
mótið 1984 fer frain dag-
ana 31. maítil3.júnín.k.
Mótið er haldið á vegum
tennisdcildar Í.K. og
Austurbakka h.f. Keppn-
in fer fram á útivöllum
þeim sem tennisdeild
I.K. hefur til umráða við
Vallargerði í vesturbæ
Kópavogs.
Keppt verður í karla-
flokki (A og B), kvenna-
flokki, unglingaflokki og
flokki öðlinga. Einnig
verður keppt í tvíliðaleik
karla. Að þessu sinni
verður keppt í tveimur
nýjuni flokkum Þátt-
tökufjöldi í hverjum
flokki verður að vera
minnst átta.
Tilkynna þarf j itttöku
fyrir kl. 17:00 miðviku-
daginn 30. maí t tennis-
deildar Í.K. símum
42542 eða 53191
Verðlaun í mu.inu eru
gefln af Austurh ka hf.
i