NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 04.06.1984, Qupperneq 4

NT - 04.06.1984, Qupperneq 4
■ Ytri-Rauðimelur í Eyjahreppi. Fyrrum hufuðból sveitarinnar og kirkjustaður en fæst nú ekki byggð þó svo að margir hafi sótt það til eigandans, Thors R. Thors. Hús eru öll í mikilli niðurníðslu og ekkert bendir til þess að sá aðili sem Thor lét jörðina nýlega til ábúðar muni setjast þar að á næstunni. NT-myndir Guðni. ■ Veiðihús Thorssystkina við Haffjarðará. Bændum svíður að sjá helstu hlunnindi tveggja sveitarfélaga í eigu utansveitarmanna. Haffjarðará gel'ur af sér rúmar tvær milljónir króna í árstekjur en að slepptum fasteignai>iöldum rennur bað allt út úr byggðalaginu. Þær 10 jarðir sem sömu aðilar eiga eru í algjörri niðurníðslu og bændur standa í stríði vegna ábúðar og hafna kröfum eigenda um eftirgjald af jörðunum. NT-mynd Guðni Tekjur af Haffjarðará: $ 77 þúsund á ári hverju - og allt í vasa Thorssystkina ■ „Þær eru verulegar, ég get bara sagt það að þær eru veru- legar", sagði Óttar Yngvason lögfræðingur aðspurður um tekjur af veiðileigu í Haffjarðará en hann hefur undanfarin ár séð um rekstur árinnar. Samkvæmt þeim gögnum sem Óttar lagði fram 1982 og notuð eru til grundvallar í nýju fasteignamati árjnnar nema hreinar árstekjur af ánni 77 þúsund dollurum. eða sem samsvarar 2,3 milljón- um íslenskra króna á núgild- andi verðlagi. „Mönnum finnst þetta eðli- lega helvíti blóðugt að sjá þenn- an auð sem hefur tilheyrt þess- um sveitarfélögum renna svona í burtu og það til manna sem liafa í rauninni ekki unnið neitt fyrir þessu heldur bara hlotið þetta í arf,“ sagði Guðmundur Albertsson oddviti að Hegg- stöðum í Kolbeinsstaðahreppi. „Það væri líka fróðlegt að bera saman þær fimm jarðir sem liggja hérna í Kolbeins- staðahreppi að Haffjarðará og svo þær fimm sem eru á bökkum Hítararien sú síðarnefnda hefur þö aldrei verið hálfdrættingur á við Haffjarðará í veiði.“ Af þeim fimm jörðum sem Thors- systkinin eiga eru tvær í byggð en á þeim báðum eru hús mjög úr sér gengin. Ein þessarajarða er fjallajörð sem búin er að vera lengi í eyði og önnur, Landbrot hefur lengi legið undir Skjálg sem er í eigu sömu aðila. Skjálg fór svo í eyði fyrir nokkrum árum og nýtist nú sem sumar- bústaður landeigenda. Hálf sveitin í eigu Thorsara „Þetta er mjög alvarlegt mál að tæpur helmingur jarða í hreppnum er í eigu þessara aðila. Thorsarajarðirnar þekkj- ast alveg úr og það hvílir mikil ábyrgð á mönnum sem eiga svona miklar eignir. Ef þessir aðilar eru ekki færir um að axla þá ábyrgð þá hljóta að vera takmörk fyrir hversu mikið ein- staklingar geta fengið að gera heilum sveitarfélögum í skjóli eignaréttar". sagði Svanur Guðmundsson oddviti Eyja- hrepps en hann sagði bændur í hreppnum mjög uggandi um byggð þessara jarða í komandi framtíð. Af tólf jörðum í Eyja- hreppi sem í byggð hafa verið næstliðna áratugi eru fimm í eigu Thorssystkina. Þar á meðal er Ytri Rauðamelur sem hefur verið í eyði undanfarin ár og ekki fengist byggður þrátt fyrir ítrek- aðar umsóknir margra aðila um að fá að byggja jörðina. Fyrir skemmstu byggði eigandinn, Thor R. Thors svo jörðina manni sem oddviti segir að full- víst sé að setjist ekki þar að á næstunni. í samtali við Óttar Yngvason kom fram að hann taldi tekjur sveitarfélaganna af veiðinni í Haffjarðará verulegar þar sem til þeirra renna á þriðja hundrað þúsund krónur í fasteignaskatta samkvæmt nýhækkuðu mati og aðstöðugjaldi, en á móti kæmi engin þjónusta af hálfu þessara hreppa þar eð skattgreiðendur væru ekki búsettir innan sveitar- félagsins. ■ Frá opnun nýju póstmiðstöðvarinnar við Suöurlandsbraut á þriðjudaginn. Matthías Bjarnason, samgönguráðherra í ræöustól. NT-mynd: Ari Ný póstmiðstöð í Reykjavík ■ Ný póstmiðstöð var opnuð í Reykjavík á braut 28 og skiptist í þrjár deildir. Öll sú þriðjudaginn. Póstmiðstöð þessi, sern ein- starfsemi sem áður fór fram á bögglapóst- kennd verður Reykjavík 2, hefur aðsetur í stofu.tollpóststofuogbréfapóststofu, verður nýbyggðum húsakynnum að Suðurlands- hér eftir í'póstmiðstöðinni.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.