NT - 04.06.1984, Blaðsíða 8

NT - 04.06.1984, Blaðsíða 8
Mánudagur 4. júní 1984 8 ■ I fyrsta stúdentahópnum sem lýkur prófi heima í Vestmannaeyjum voru 10 stúlkur og 2 strákar: Ásta Guðmundsdóttir, Erlendur Bogason, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Guðrún Kristmannsdóttir, Katrín Alfreðsdóttir, Margrét Traustadóttir, María Vilhjálmsdóttir, Rut Haraldsdóttir, Sigmar Þröstur Óskarsson, Sigurlína Sigurjónsdóttir, Unnur Elíasdóttir og Valgerður Bjarnadóttir, ásamt skólameistara Gísla H. Friðgeirssyni. NT-mjnd: inga Stúdentar útskrifaðir í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn: „Lyftum verkmenntuninni upp á hærra stig - og náum bókmenntuninni niður á jörðina“, segir skólameistari ■ „Viö höfum nú náö því takmarki að útskrifa stúdenta. Þaö gleður okk- ur og sjálfstraustið vex og vonandi tiltrú fólksins. Annað markmið er það, sem stefna ber að en mun reynast torsótt, þ.e. aðskapa mennta- hefð, sem tengist atvinnulífinu hér og troða nýjar brautir í samvinnu við iðnaðinn", sagði Gísli H. Friðgeirs- son, skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum m.a. í skólaslita- ræðu sinni nýlega. Skólinn var að Ijúka sínu 5. starfsári og útskrifaði þá fyrstu stúdentana sem Ijúka prófi heima í Eyjum, 12 að tölu. Þá luku og 3 nemendur verslunarprófi og 6 prófi í iðngreinum. Alls voru um 160 nemendur í skólanum í vetur. í málefnum framhaldsskólanssagði Gísli mörg viðfangsefni framundan. Vinna þurfi að lausn á húsnæðismál- um skólans, halda áfram að byggja upp tækjabúnað verknámsins sem og annarra braut og marka stefnuna í iðnfræðslunni í Eyjum. „Auk þess mun ég leggja áherslu á að menntun eru lífsgæði enda þótt skólanánt veiti oft steina fyrir brauð þegar nota á það sem grundvöll fyrir lífshamingju. Heimurinn þarfnast einstaklinga sem geta staðið á móti straumnum og tekið afstöðu byggða á siðferðilegu mati. Gætum þess að menntunin valdi ekki stéttaskiptingu t.d. mikið menntaðir móti lítið mennt- uðum og verkmenntaðir móti bók- menntuðum. Lyftum verkmenntun- inni upp á hærra stig, skapandi stig og náum bókmenntuninni niður á jörð- ina. Verum ávallt vakandi yfir því hvert menning okkar stefnir", sagði skólameistari í ávarpi sínu til ne- menda og gesta sem voru fjölmargir viðstaddir skólaslitin. ALFA-LAVAL MJALTAKERFI Margra ára reynsla tryggir gæðin. Hannað tíl vlnnuhagræðingar. Hagkvæmni - hreinlæti - gæði. Vilt þú spara þér tíma við fjósstörfin? _____Alfa-Laval hjálpar til þess._ VÉLADEHJ) SAMBANDSINS BÚVÉLAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900 ■ Aldrei þessu vant fer vel á með þeim Dallas hjónum, en hvernig er ástandið í hjúskaparmálum þeirra núna? Um það vitum vér íslendingar ekkert enda þættirnir ekki sýndir lengur Dallas áhugamanni til mikillar gremju. Takið Dallas aft- ur til sýninga Dallas unnandi skrifar: ■ Ég hef nú ekki oft skrifað lesenda- bréf í blöðin og reyndar fundist þetta fyrirbæri hálf hallærislegt. Núna ætla ég hins vegar að gera undantekningu ef það gæti orðið til að ýta við áhugamáli í minni fjölskyldu. Það er að teknar verði upp að nýju sýningar á Dallas þáttunum. Ég held að það sé mjög mikill áhugi á því meðal almenn- ings að teknir verði fleiri þættir til sýninga. Þrátt fyrir að sýndir hafi verið hundrað þættir held ég að fólk sé alveg tilbúið að sjá meira. Menn eru farnir að þekkja þetta lið svo vel og þrátt fyrir að þetta flokkist kannski ekki undir hámenningu, hefur margt lakara verið sýnt. Reyndar hefur afstaða ýmissa til þessa þátta verið brosleg. Þeir sem mest andskotuðust út í þættina gátu fæstir misst af einum einasta þætti. Konurnar heim Húsmóðir skrifar: Kæra lesendasíða ■ Hann Gylfi Gíslason skrifaði þér um daginn og varð tíðrætt um konurn- ar og eldhúsin. Það er sjáldgæft að menn þori að stíga fram og segja meiningu sína, skoðun meirihluta Is- lendinga. Svo mikið hafa „kvennabar- áttukonurnar" haft sig í frammi að nánast enginn þorir lengur að koma fram með sjónarmið sem eru andstæð því sem þær halda fram. Ég er sannfærð um að við konur værum snöggtum hamingjusamari ef við gætum fengið að vera heima allan liðlangan daginn. Satt best að segja veit ég ekki hvernig þeim konum líður sem þurfa að fara út á vinnu- markaðinn og þræla þar fyrir lúsar- launum. í þrjátíu ár hef ég notið þeirra forréttinda að fá að vera heima við eldhúsbekkinn og nostra við að þvo bolla og diska og gefa - fyrst mínum eigin börnum og síðan börn- um þeirra - eitthvað gott í litla munninn. Þetta get ég gert vegna þess að maðurinn minn er góður að skaffa. Hann hefur nú um langt árabil rekið eigið fyrirtæki og svo vítt ég veit þá gefur það gott í aðra hönd. Áð minnsta kosti á hann alltaf peninga þegar ég bið um þá. Fyrir jólin, þegar verslunin gengur vel, á hann það til að gefa mér einn eða tvo fimmhundr- uðkalla - án þess að ég hafi nokkuð beðið um þá. Karlar í dag eru yfirleitt slæmir að skaffa. Þeir vilja fá ný skíði og nýja bíla og nota þá sína peninga til þess arna. Þá vantar aura fyrir mat og bensíni. Eina ráðið sem þessir háu herrar sjá er að senda konuna sína út á vinnumarkaðinn svo hún geti séð þeim fyrir peningum í þetta. Með öðrum orðum þá er hún farin að skaffa, útvega fé til heimilisins. Þetta finnst mér vera út í hött. Það á að hækka laun karlmanna svo þeir geti sinnt áhugamálum sínum jafnframt því sem þeir leggja til heimilisins næga peninga. Ég er honum Gylfa sammála um að heimilislíf sé betra þegar konan ann- ast reksturinn innanhúss. Ég minnist þeirra stunda er börnin skríktu mér við lær og ég var að þvo upp eða strjúka af. Þá kom bóndi minn og við settumst glöð við kvöldverðinn, rjúk- andi bollur og nýjar kartöflur. Hann klappaði glókollunum áður en hann fór á Rótarífund eða með strákunum á völlinn. Krakkarnir báru virðingu fyrir föður sínum og þau báðu alltaf að heilsa honum þegar þau fóru að sofa. Hann Þorsteinn minn skaffaði vel og mér finnst að fleiri mættu taka hann sér til fyrirmyndar. Enn þann dag í dag fer um mig straumur þegar hann kemur heim og ég brosi stundum þegar ég tek eftir skallanum sem er að koma í ljós í brúnu hári hans, eða er það grátt, ég man það varla því eftir því sem árin hafa færst yfir hef ég orðið æ kvöldsvæfari og lúlla því sætt og rótt þegar hann opnar forstofu- dyrnar.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.