NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 04.06.1984, Qupperneq 9

NT - 04.06.1984, Qupperneq 9
Dýrðardagar í sjónmáli Asdís ívarsdóttir, Áslaug Magnús- dóttir, Ásta Jónsdóttir, Freyja Röng- valdsdóttir og Sigríður Finnsdóttir skrifa: ■ Margir eru kallaðir en fáir eru útvaldir, en loksins, loksins er hinn stóri spámaður kominn fram á sjónar- sviðið. í NT mánudaginn 28. maí sl.' skrifar Gylfi Gíslason bréf og þar leysir hann í einu vetfangi stórt vanda- mál sem iengi hefur hrjáð nágranna- þjóðir okkar og fleiri en er aðbyrja að líta dagsins ljós hér á landi nú á þessum síðustu og verstu tímum - atvinnuleysið. Gylfi kemur fram með þá kröfu að konurnar verði sendar heim af vinnumarkaðinum og settar á sinn stað í eldhúsinu. Þar með hættu konur að taka störf af karlmönnum og enginn yrði lengur atvinnulaus! Þetta er blátt áfram stórkostlegt fyrir konur. þar með eru þær lausar við öll óþægindi er hafa stafað af vinnu þeirra utan heimilis og geta nú . farið að lifa í vellystingum praktug- lega. En er ekki eitt sem Gylfi „kvennavinurinn mikli" gleymir? Hverjir eiga að vinna öll láglaunuðu og leiðinlegu störfin sem konur hafa unnið? Hann talar einnig um hversu ánægjuiegt það sé að sjá „fallega konu una sér vel við heimilisstörf og ungbarn hjalandi í grenndinni". Því miður er það nú einu sinni svo að fólk hefur nánast ekki efni á því að eiga börn nú til dags þó svo að bæði konan og karlinn vinni úti. og verða senni- lega enn minni líkur á því að fólk hafi efni á að eiga börn þegar konur hættá að vinna fyrir kaupi. Kannski er framtíðardraumurinn hjá Gylfa sá að karlmennirnir sem eru hið sterka kyn og eru „betur fallnir til allrar jafnt líkandegrar sem andlegrar vinnu" fari að vinna 18-24 tíma á sóiarhring til að skapa þetta fallega og góða heimili sem Gylfa dreymir um. Hvernig eru þeir þá hæfir til að njóta síns góða heimilis og yndislegu fjölskyldu? Æ, æ því miður voru of margir annmarkar á þessari dásamlegu lausn sem virtist vera í sjónmáli og ekki sér enn til þess dýrðardags að konur fari alfarið af vinnumarkaðinum. Það sem er skrýtnast við þetta alit er það að svona tillaga skuli líta dagsins Ijós, hvar í veröldinni hefur téður Gylfi alið aldur sinn? Okkur er til efs að aumingja maðurinn hafi nokkru sinni gefið sér tíma til að gaumgæfa hinn rammíslenska nútíma, enda varla von ef hann hefur einn staðið í því að vinna fyrir heimili og börnum. Getraunaleikinn aftur Reiöur garöbúi að norðan skrifar: ■ Hvernig í ósköpunum stendur á því að hinn bráðskemmtilegi get- raunaleikur sem var í NT er hættur. Þarna var á ferðinni góð hugmynd, sem þar að auki var skemmtilega út færð og skemmtilega skrifuð. Ég skora á NT að taka þennan leik upp að nýju og helst sjá til þess að sami umsjónarmaður verði með þáttinn. Auk þess að vera hin besta skemmtun gaf Getraunaleikurinn mér sjálfum kjörið tækifæri til að sýna og sannfæra aðra um vit mitt á knattspyrnu, en ýmsir voru farnir að efast um að það væri nokkuð. Verði ekki bætt úr þessu hið snarasta hætti ég að stela NT á sunnudögum. ■ Leiðin Lækjartog-Oskjuhlíð mælist vel fyrir, að minnsta kosti í Öskju- hlíðarhálendinu. Lækjartorg ■ Ég get ekki lýst því hversu ánægð ég var. þegar ég sá að komin var ný „leið“ í strætisvagnakerfi Reykjavík- ur Lækjartorg-Öskjuhlíð, með við- komu á Hlemmi. Mér brá nú heldur í brún, þegar ég komst að raun um að vagn þessi fer alls ekkert upp í Öskjuhlíðarhálendið, heldur beygir hann all snarlega við Þóroddsstaði, ekur að Loftleiðahótelinu og þaðan í bæinn aftur. Vagri þessi ætti frekar að heita Lækjartorg-Loftleiðir. Það hef- ur lengi vantað vagn sem ekur frá Hlemrni og upp á Oskjuhlíðina. Þar eru 2 sérskólar fyrir nemendur sem koma úr ýmsum hverfum Reykjavík- urborgar, Fossvogskapellan og nýtt -Öskjuhlíð íbúðahverfi. Leið 6 og 7 gengur að vísu yfir Oskjuhlíðina, en kemur aldrei við á Hlemmi. Þetta er mjög bagalegt fyrir þá sem búa í austur hluta borgarinnar, því þeir þurfa flestir að fara fyrst niður á Lækjartorg og þaðan með leið 7 upp í Öskjuhlíð. Væri nú ekki hægt að lagfæra þetta með því að þessi nýja leið, Lækjar- torg-Öskjuhlíð, fari smá krók upp í Öskjuhlíðina og snúi við t.d. hjá Kapellunni. Þetta mundi muna rniklu fyrir þá sem þurfa að fara þessa leið daglega. Svar óskast. Með fyrirfram þökk. Starfsmaður í Óskjuhlíöarhátendinu. Regnboginn: En sú náð... ...að eignast Skara ■ Tendeer Mercies (Ljúfa náð). Bretland-Bandaríkin, 1983. Handrit: Horton Foote. Kvikmyndun: Russel Boyd. Leikendur : Robert Duvall, Tess Harper, Allan Hubbard, Betty Buckley, Ellen Barkin, Wilford Brimley. Leikstjóri: Bruce Beres- ford. Óskarsverðlaunin eru af mörgum talin guð allra verðlaunaveitinga fyrir kvikmyndagerð. Og því er eins farið með vegi þeirra og þess í efra, að þeir eru órannsakanlegir. Lengra ætla ég ekki í þessari samlíkingu, því að hver og einn verður að eiga það við sjálfan sig hvaða skoðun hann hefur á Skara og guðdóminum. Tender Mercies, sem nú er sýnd í Regnboganum, var tilnefnd til nokk- urra Óskara í apríl síðastliðnum, og hreppti tvo. Robert Duvall var kjör- inn besti karlleikarinn í aðalhlut- verki og Horton Foote var talinn hafa skrifað besta handritið. Og ef eitt- hvað er sönnun þess, að Óskarsverð- Mánudagur 4. júní 1984 9 ■ Mac Sledge (Robert Duvall) stillir strengi sína fyrir fjölskylduna. launin eru ómerkileg, þá er það þessi rnynd. Mac Slegde er afdankaður sveita- söngvari, nær því búinn að eyðileggja sig á drykkju. En eins og í öllum ævintýrum, þá er hjálpin næst, þegar neyðin er stærst. Hann hittir fallega álfkonu, ljóshærða og unga ekkju, sern rekur gistihús og bensínsölu við þjóð- veginn. Með aðstoð hennar og ungs sonar hennar tekst þeim gamla að komast á réttan kjöl, hann fer nteira að segja að syngja aftur. En áður en happíendinn kemur, dynur mörg ógæfan yfir og margt sálarstríðið er háð. Tender Mercies er eiginlega allt- og-ekkert mynd. Hún er melódrama (Ö, grimmu örlög!), án þess þó nokkurn tíma henni takist aö hræra áhorfandann að einhverju marki. Hún er tónlistarmynd, án þess þó að vera það alveg. Hún er trúarleg mynd (sveitasöngvarinn skírist inn í Hvíta- sunnusöfnuðinn fyrir tilverknað álf- konunnar ungu), án þess þó aðfjallað sé um guðsáhrifin á áhrifaríkan hátt né þau gerð að einhverju afli. Og Tender Mercies er ástarmynd, þar sem henni tekst líklega einna best upp. Einhvern veginn fer þó myndin fyrir ofan garð og neðan, öll eitthvað svo lin og slöpp og veit varla hvað hún vill. Samt er hún ekki alvond. Yfir henni hvílir einhver sjarmi í róleg- heitunum, og það ber að þakka Robert Duvall öðrum fremur. Duvall er gamalreyndur jaxl úr Hollywoodfabrikkunni og kann sitt fag næsta vel. Enginn stórleikari (a.m.k. ekki hér), þrátt fyrir verð- launin. En traustur. Umfram allt er hann vel liðtækur sveitasöngvari í vælukjóastílnum. Söngur hans er ein- ar af fáum perlum þessarar myndar. Guðlaugur Bergmundsson. Nokkur ord um Ítalíu, Rimini, sumarið, sólinaogpg Hér gengur þú að öllu vísu; sól og ylvolgum sjó, aðgrunnri og breiðri strönd, glaðværu mannlífi, frábærum veitingastöðum og vandaðri gistiaðstöðu. Þú finnur fljótlega að margt er betra én þú átt að venjast annars staðar, sumt miklu betra. Áþreifanlegastur er munurinn á leikaðstöðunni fyrir börnin, þar sem barnafararstjórinn er í broddi fylkingar. Góð staðsetning Rimini gagnvart mörgum stórbrotnustu stöðum Evrópu - Feneyjum, Flórens, Róm - veitir þér að auki möguleika á skoðunarferðum sem gera Riminiferð að öðruogmeira en venjulegri sólarferð. Við minnum þig á að heppni hefur lítið með sólarlandaferðir að gera. Góður áfangastaður og gott skipulag skiptir þar sköpum. Ef þú hins vegar dregur úr hömlu að panta Riminiferð sumarsins gætir þú orðið of seinn - og það væri ljóta óheppnin! Adriatic Riviera ot Emilia - Romagna (Italy ) Rimini Riccione Cattoiica L*SB* Cesenatico Gatteo a Mare Savignano a Mare San Mauro a Mare Bellaria - Igca Mahna Misano Adriatico Cervia - Milano Marittima Lidi di Comacchio Ravenna e le Sue Maríne Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 I' talía býður þér upp á marga góða sumardvalarstaði en fáa jafn fullkomna og Rimini, hina fornu borg við Adríahafið.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.