NT - 04.06.1984, Page 12

NT - 04.06.1984, Page 12
Itt Mánudagur 4. júní 1984 12 Guðni Ágústsson skrifar: Lanabúnaður stórra eða smárra eininga Að undanförnu hefur átt sér stað all hávær umræða um landbúnaðarmál á vettvangi fjölmiðla, kartöflumál auðvit- að borið hæst en hinar grein- arnar fengið sinn skammt inn á milli. Öflin sem sett hafa sér þau göfugu takmörk að erlend- ar landbúnaðarafurðir verði frjálsar og keppi við íslenskar afurðir, eygðu sér leið til að æsa neytendur og öðlast og nota styrk þeirra til að slá nokkur væn högg að bændum og forsvarsmönnum þeirra. Þeir lágu vel við höggi í þetta sinn, fákurinn Frelsi reið láð og lög klyfjaður kartöflum sem reyndar voru líka óætar er íslandsströnd var náð. Boðberar frelsisins Ég ætla ekki að fjalla um kartöflumálið, en vil þó aðeins segja þetta, þar hafa átt sér stað mistök sem vart eru fyrir- gefanleg og sá sem daglega át kartöflur fann innra með sér, að til tíðinda myndi draga fyrr eða síðar. Landbúnaðarráð- herra er vandi á höndum, ein- hver uppstokkun og endur- skipulagning er nauðsynleg, nú ríður á því að kartöflu- bændur standi sanran en gíni ekki við gylliboðum þeirra er mæla fagurt, en munu viljandi eða óviljandi hyggja flátt því þessum kauphéðnum mun standa á sama hvort íslensk kartöflurækt lifir eða deyr. Boðberarnir sem ríða Frels- inu munu ætla að brjóta, drepa og brenna niður í svörð allt skipulag landbúnaðarins, svo gróðalindin innflutningur fái nýja blóðæð. Það hangir fleira á spýtunni en bara kartöflur. Hollur er heimafenginn baggi segir spakmælið, flestar þær þjóðir sem við eigum við- skipti við leggja nú aukna áherslu á að vinna og spinna það í sínu eigin landi sem mögulegt er og klækir eru hafðir í frammi til að hnekkja samkomulagi um fríverslun og fleira. Slíkt böl hefur atvinnuleysið fært auðugum iðnaðarþjóðum, við íslendingar höfum þegar í nafni þessa frelsis tapað hag- leik og þekkingu og gnægð verkefna í hendurnar á erlendu vinnuafli. Sjávarútvegurinn sem stóð sterkur á erlendum mörkuðum fyrir stuttu síðan má nú búa við harðnandi samkeppni auð- ugra þjóða sem kunna að höggva skörð í okkar hlut- deild. íslendingar rnega nú minn- ast orða Matthíasar. Eitt er landið, ein vor þjóð, auðnan sama ; beggja. Hvort menn búa til sjávar eða sveita verður fólk að átta sig á því að harðnandi tímar í samkeppni þjóðanna á hinu viðskiptalega sviði kallar ekki einungis á viðbrögð hjá stjórn- völdum heldur líka hjá fólkinu sjálfu að velja það og styrkja þar sem íslenskt hugvit og vinnuafl á hlut að máli. Heimsbyggðin er sjálfsagt ■ Skoðun Bolla virðist vera sú sama og hrjáir svo margt ungt fólk, að stærðin ráði arði, að smátt sé vonlaust. ■ „Öflin sem setthafasérþau göfugu takmörk að erlendar landbúnaðaraf- urðirverði frjáls- ar og keppi við íslenskar afurðir eygðu sér leiðtil að æsa neytend* ur og öðlast og nota styrk þeirra til að slá nokkur væn högg að bændum og for- svarsmönnum þeirra.“ sama sinnis og þegar Islands minni var ort. Um þau kjör og aldar far, aðrir hœgt sér láta. Sykki það í myrkan mar, mundu fáir gráta Stórar einingar ástæða offramleiðslu „Bændur skornir niður við trog“, hét úttekt N.T. á dög- unum þar var á ferðinni svört skýrsla og á milli línanna mátti lesa hrakspár og þjóðhagslega nauðsyn á því að slíkur niður- skurður ætti sér stað, tvö þús- und bújarðir hlytu að verða auðninni að bráð. Bjarni Harðarson, blaða- maður, lagði í þessari grein í rauninni fyrir þjóð sína stóra spurningu, ég ætla að það verði lítið um „vitræn1' svör eins og þegar hefur komið í Ijós. Hver er annars vandi land- búnaðarins, jú það er offram- leiðsla á dilkakjöti og mjólk. Af hverju stafar þessi vandi; að sumu leyti er hann bændunum að kenna að öðru leyti misvitr- um stjórnmálamönnum og af áróðri meistaranna sem trúa á hinar stóru einingar. Verðbólga liðinna ára hefur skekkt íslenskt þjóðfélag á liðnum árum og loks skapað hér Iáglaunaland. Bændurnir hafa farið verst allra útúr verð- bólgunni, hafa jafnan reynt að bæta tekjur sínar með stækkun búanna, aldagamalt hugarfar hefur herjað á þá að sá mætti sín meira sem byggi stórt, bóndinn hefur einnig af eðlis- lægum áhuga fyrir verkefni sínu verið framfaramaður sem vildi taka í sína þjónustu tækniframfarir og vélvæðingu. Alla landsmenn varðar um hvernig búskapur er rekinn í landinu og.á því þarf nú að fara fram endurmat, ég hygg líka að þorri þjóðarinnar hafi skilning á því að hér verður að reka arðsaman landbúnað eigi hagur þjóðarinnar að blómgast. Það þarf að meta hversu stórar einingar í landbúnaði eiga að vera svo bóndinn kom- ist þokkalega af, bæði hvað kaup og vinnutíma snertir. Eg hygg að flestir telji að hér sé heppilegast að reka fjölskyldu- búskap eigi fjölskylda í sveit að fá svipaðar tekjur og fjöl- skylda iðnverkafólks í kaup- stað á þá ekki vinnuálagið og frítíminn að koma til viðmið- unar. Bændur og þeirra fólk verð- ur að átta sig á því að búin hafa þróast í óhóflega stórar eining- ar með þungu vinnuálagi þar sem jafnvel tæknin var of dýru verði keypt og ánægjan hverfur í skugga þrældómsins. Vísitölubúið er stórt Eitt vísitölubú er nú 440 ærgildi eða 22 mjólkurkýr, hvortveggja er ærið verkefni einni fjölskyldu og séu búin félagsbú tveggja eða fleiri ætti ávinningurinn meðal annars að felast í minna búi því vélár og tækni myndu nýtast betur. Eru stóru einingarnar svo hag- kvæmar sem af er látið? Þjóð- hagslega hygg ég þær óhag- kvæmar. Þar er fjárfesting mikil, bæði í vélum og húsum og verkefnið svo þungt að margt fer úrskeiðis, bæði hvað umhirðu tækja varðar og arð af einstökum gripum. Þessar jarðir sem þannig þróast fara ekki síður úr ábúð vegna þess að kynslóðaskipti eru erfið, þeir sem í búskap ætla eru sjaldan stóreigna- menn. Arðsemis útreikningar í landbúnaði eru rangir og villandi enda verður að mæla magn og gæði og þjóðhagslega þýðingu. Guðni Ágústsson ■ „Bændur og þeirra fólk verða að átta sig á því að búin hafa þróast í óhóflega stórar einingar með þungu vinnuálagi þar sem jafnvel tæknin var of dýru verði keypt og ánægjan hverfur í skugga þrældómsins.“ Meðal starfsaldur bænda er hár það þýðir að í stórbúskap, er fjárfesting vannýtt á síðara tímabili ævinnar, þegar þrek og kraftar dvína. Auka verður hlut tekna af veltu búsins slíkt er hægt með endurskipulagningu, bændur eru fyrst og fremst búfjárrækt- armenn en aftur minni hag- fræðingar og tæknimenn enda aðstoð og ráðleggingar á því sviði minni. Aðkeypt fóður verður að minnka, kjarnfóður er nú gefið víða í óhófi sem stafar af meira kappi en forsjá og því að taða af íslenskum túnum er lélegri en áður var, ■ „Boðberarnir sem ríða Frelsinu munu ætla að brjóta, drepa og brenna niður í svörð allt skipulag landbúnaðar- ins, svo gróðalindin innflutningur fái nýja blóðæð. Það hangir fleira á spýt- unni en bara kartöflur.“ ■ Sjávarútvegur stóð sterkur á erlendum mörkuðum fyrir stuttu.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.