NT - 04.06.1984, Blaðsíða 17
p Mánudagur 4. júní 1984 17 ■
Myndasögur —- Bridge f / r
■ Ef spilari sem þarf að velja
útspil, á ás og kóng í lit, hugsar
hann yfirleitt ekki lengra; ásinn
eða kóngurinn þykja svo sjálf-
sögð útspil. Það er meira að
segja gert ráð fyrir því í kennslu-
bókurn um spilalesningu að ef
vantar ás og kóng í hliðarlit og
liturinn kemur ekki út, sé næst-
unt örugglega hægt að gera ráð
fyrir að útspilarinn eigi ekki
bæði þessi spil.
En einhverrra hluta vegna
eru svona útspil oft að gefa
slagi, tíma eða samning. Það
gæti þó ekki verið að teorían sé
ekki eins góð og af er látið.
Norður
4 S.983
¥ KD10963 S/allir
4 85
4 102
Vestur
4 G765
¥ G84
♦ 42
+ A953
Austur
+ AK2
¥ 52
♦ A107
4 DG876
Suður
4 D103
¥ A7
4 KDG963
4 K4
I Islandsmótinu í tvímenning
var spilaður hjartasamningur í
norður við 11 borð af 12. Og við
öll þessi 11 borð nema eitt fékk
sagnhafi 8 slagi. Algengasti
samningurinn var 2 hjörtu eða 6
sinnum, 4 sinnum voru hjörtun
þrjú og einu sinni fjögur.
Ef austur spilar út spaðaás,
eins og virðist eðilegt er sagn-
hafi aldrei í vandræðum með að
fá spaðaslag því kóngurinn er,
eftir útspilið, líklega' einnig í<
austur. Sagnhafi gefur þá 2 slagi
á spaða, einn á tígul og tvo á
lauf.
Við eitt borðanna sátu
Guðmundur Hermannsson og
Björn Eysteinsson AV í vörn
gegn 3 hjörtum. Guðmundur
hafði illan bifur á spaðaútspilinu
og valdi þess í stað laufadrottn-
ingu. Og nú fengu AV færi á
skemmtilegri vörn. Björn tók
laufakónginn með ásnum og
skipti í spaðasexu sem Guðm-
undur tók með ás.
Þar sem A V spila 3-5 hæsta til
baka í svona stöðum vissi
Guðmundur að sagnhafi átti
a.m.k. 3 spaða og því var óhætt
að spila spaðatvisti til baka.
Sagnhafi svínaði eðlilega tíunni
þannig að Björn fékk á gosann
og nú átti vörnin 6 slagi. 200 í
AV gáfu 21 stig af 22 rnögu-
legum, parið sem var í vörn
gegn 4 hjörtum deildi toppnum.
_ LJ BHj Jj--------
4353. Krossgáta
Lárétt
1) Snafs. 6) Land. 10)550.
11) Tímabil. 12) Gamalt.
15) Stig.
Lóðrétt
2) Maður. 3) VII. 4)
Tindar. 5) Mas. 7) For-
skeytí. 8) Kona. 9) Nefnd.
13) Kostnaðarsöm. 14)
Tóm.
Ráðning á gátu No. 4352
Lárétt
1) Kónga. 6) Ukulele. 10) RR. 11) Ár. 12) Sólskin. 15) Stara.
Lóðrétt
2) Óku. 3) GFE. 4) Þursi. 5) Þerna. 7) Kró. 8) Lús. 9) Lái. 13) Lát.
14) Kór.
a v /y