NT


NT - 01.07.1984, Side 2

NT - 01.07.1984, Side 2
ffl Umsjónarmenn: Atli Magnússon Jón Ársæll Þórðarson Þorsteinn G. Gunnarsson ■ Iðnjöfurinn Alfred Krupp eftir Arnold Newman. Um Newman er fjallað í þæftinum Ljósbrot á blaðsíðum 22 og 23. ■ Vantarþiggamlabók? NT litast um á fornbóka- markaðnum. ■ Hvað gerir Landhelg- isgæslan áfriðartímum? f blaðinu er sagt frá gæslu- flugi með TF-SÝR ■ Marlene Dietrich kom til íslands árið 1944. Við rifjum upp þá sögu og bregðum upp myndum af þessari frægu leikkonu, sem lagði heiminn að fót- um sér. ■ „Ég er ekki að pred- ika,“ segir myndlistar- maðurinn Rúrí í viðtali við Helgarblaðið. Sunnudagur 1. júlí 1984 2 ■ Það þykir ávallt nokkurt fréttaefni þegar ný blöð eða tímarit sjá dagsins ljós á íslandi. Nýlega varhleyptafstokkunum einuslíkuen reyndarekki fyrir landann heldur þásem sækja okkur heim. Hér er um að ræða vikuritið „Wat’s on in Reykjavík“ eða „Hlaupið um stekk í kvosinni“ í lauslegri þýðingu. Ritinu er ætlað að vera til upplýsingar fyrir ferðamenn sem hingað rekur og veröur það að teljast lofsvert framtak og gott að leiðbeina slíku fólki. Ekki er minna um vert aö ritið fæst ókeypis og mun það örygglega vera það eina sem erlendir ferðamenn fá á svo góðu verði hér á landi. Við hringdum í einn ábyrgðamann blaðsins, Nönnu Mjöll Atladóttir og óskuðum henni til hamingju meó ritlinginn, og fengum hana til að segja okkur eitthvað um þetta framtak. „Við erum fimm sem stöndum að þessu og reynuni að varpa svolitlu ljósi á það sem er að gerast í menningarlífi borgarinnar og koma á framfæri tilkynningum sem ferðamenn gætu haft gagn af. Ritið er prentað í átta þúsund eintökum og því er dreift til ferðamanna m.a. í flugvélum og á ferðaskrifstofum og hótelum. Það er rétt að taka það fram að við vildum gjarnan að fólk hefði samband við okkur ef það hefði áhuga á því að láta ritið liggja frammi hjá sér þarsem ferðamenn færu um. Eins ef fólk vildi koma einhverju á framfæri við ferðamenn eöa láta vita um eitthvað sem væri á seyði í borginni og ferðamenn gætu haft gagn og gaman af. ■ Hr. lögfræðingur Jóhann Pétur Sveinsson! í „Lagakróki" helgarblaðs NT 3. þessa mánaðar er birt bréf varðandi tillögu er fram kom á fundi hér í Argarði og svar þitt við bréfinu. Þar sem ég var á fundi þessum og tel mig muna nokkuð það sem fram fór, tel ég rétt að senda þér línu og benda á að bréf- ritarar gleyma að geta atriða sem skipta máli a.m.k. með tilliti til svarsins. Á fundinum voru tveir full- trúar frá virkjunaraðila Plöndu og var annar þeirra íundarstjóri. Hann tók það skýrtfram íbyrjunfundar, að fundinum yrði að ljúka kl. hálf sex (kl. 17.30) því þá þyrftu sunnanmenn að fara. (Mig minnir að það væri klukkan hálf sex - frekar en sex). Þegar leið að þeim tíma var minnt á þetta og að síðustu förvöð væru að biðja um orðið. Þegar svo tillagan kom fram var búið að loka mælendaskrá en frummæ- lendur áttu eftir að svara fyrirspurnum og öðru slíku, eins og fram kemur í bréfi tillögumanna. Væri fróðlegt að vita hvort þessi atriði kunna að vera þess eðlis að svar þitt yrði öðruvísi þegar tillit er tekið til þeirra. Það skal tekið fram að tillögumenn hafa ékki sent mér eintak af því blaði NT sem umræddur „Lagakrók- ur“ birtist í - og munu senni- lega ekki gera enda virðast þeir, eða aðrir, hafa valið aðra leið og sýnist mér nú stefna í styrjöld við Land- græðslustjóra og fleiri. Er illt til þess að vita að þetta afréttarmál hefur verið blás- ið út í fjölmiðlum og í einka- samtölum og gert að æsinga- og deilumáli. Mun oft vitnað til þessa umrædda fundar og skiptir því máli að ekkert sem máli skiptir sé dregið undan þegar um hann er fjallað, en það hafa bréfritar- ar ekki athugað. Varðandi tillöguna, sem hvorki var rædd né samþykkt, þá leyfi ég mér að efast um að hún hefði farið í gegnum fundinn, sérdeilis þó ef hún hefði eitthvað verið rædd, því m.a. er hún móðgun við Land- græðslustjóra og svo lá málið þannig fyrir á fundinum að beitarþol heiðarinnar var nokkuð passlegt handa sauðfénu. (Beitarþol 1246.100 fe,- sauðfé 7700 = 1270.500 fe. þörf). í tillög- unni segir: „...beinir þeim tilmælum til sveitarstjórna og stjórnar upprekstrarfé- lags Eyvindarstaðaheiðar að rekstur hrossa verði leyfður á heiðina í sumar eftir því sem beitarþol gefur tilefni til. “ Ég skil tillöguna þannig að farið sé fram á að sauðfé verði látið víkja að miklu eða öllu leyti. Ég spyr þig sem lögfræðing hvort það er ekki réttur skilningur sbr. það sem að ofan greinir. Á svæði uppr.félagsins hafa verið um eða yfir 100 bæir í byggð og hafa þeir nóg hross í beitar- kvóta heiðarinnar. Er ekki með tilllögunni farið fram á að heiðin verði, jafnvel ein- göngu notuð fyrir hross? Ritstjóri Feykis var á um- ræddum fundi í Árgarði og segir frá honum á mjög greinargóðan hátt í Feyki 9. maí s.l. og man ég ekki til að þar þurfi að leiðrétta neitt, nema nafn fundarstjóra Hann skrifar einnig ágæta forystugrein um þessi mál. Sá sem skrifaði í Morgun- blaðið var hinsvegar ekki á fundinum, að því er ég best veit. Með bestu kveðju. Rósmundur G. Ingvarsson, Hóli í Tungusveit. ■ Ég vil í upphaíi svars míns fagna bréfi þínu Rós- mundur, þar sem að á hverju máli eru ávallt fleiri en ein hlið og þvi eðlilegt að sem flestar þeirra komi fram. Þar sem hér koma fram nokkuð önnur sjónarmiðen í bréfi fyrrnefndra tillögumanna mun ég leitast við að svara spurningum þínum en vil jafnframt árétta að það er á mörkunum að hér sé um lögfræðileg álitaefni að ræða og tel því eðlilegt að frekari skoðanaskipti, ef af verður, fari fram i lesendadálkum blaðsins. Um fyrri spurningu þina er það að segja að almennt eru það talin rétt fundarsköp að menn verði að fá orðið til að geta flutt tillögu. Ef að búið er að loka mælendaskrá er því að öðru jöfnu ekki hægt að bera fram tillögu. Þess er þó að gæta að í því tilviki sem rætt er um hér var flutningsmönnum tillögunn- ar veitt orðið og þeim leyft að flytja tillöguna (því er a.m.k. ekki mótmælt í bréfi þínu Rósmundur). Úr þvi að málum var svo komið tel ég að fundarstjóri hefði átt að láta greiða atkvæði um til- löguna því annars var ekki til neins að leyfa flutning hennar. Það er hins vegar álitamál hvort fundarstjóri gerði rétt íþvíað leyfa flutn- ing tillögunnar efbúið var að loka mælendaskrá. Um síðari spurningu þína er það að segja að eins og tillagan er orðuð má skilja hana á þann veg sem þú gerir. En fyrst þú spyrð mig sem lögfræðing hvort þetta sé ekki réttur skilningur verð ég að svara því til að eins og ég gat um í upphafi eru fleiri hliðar á hverju máli en ein og það vita jú lögfræðing- ar manna best. Til að geta komist að vel rökstuddri niðurstöðu um hvernig skilja beri ákveðna tillögu nægir ekki að Hta á orðalagið eitt sér. Ef unnt er verður að kanna tilgang flutnings- manna með tUlögu og gögn sem geta skýrt hana. Án þess að vilja leggja dóm á það tel ég hæpið, þrátt fyrir orðalag tUIögunnar, aðflutn- ingsmenn hennar hafi viljað útiloka sauðfé frá heiðinni. Ég tel að tilgangur þeirra hljóti að hafa verið að reyna að koma í veg fyrir að upp- rekstur hrossa yrði með öllu bannaður á heiðina og að beitarþoli hennar yrði skipt eðlUega og skynsamlega á milli sauðfjár og hrossa. Ef þetta hefur verið tilgangur tUlöguflytjenda yrði að taka tillit tU hans við túlkun til- lögunnar ogþá yrði hún ekki skilin á fyrrgreindan hátt. Ég vona að þessi svörleysi úr spurningum þínum jafn- framt því sem ég vona að menn finni viðunandi lausn á skiptingu landsins gæða mUli þessara tveggja mikil- vægustu búfjárstofna okkar. Báðir hljóta að eiga nokkurn rétt og sameinaðir sigrumst við á hverjum vanda.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.