NT - 01.07.1984, Blaðsíða 19

NT - 01.07.1984, Blaðsíða 19
Page 18 SOUNDS April 14 1984 19 Sunnudagur 1. júlí 1984 nöfnunum í elektrófönkinu ■ Þótt lítið sé um að vera í poppinu i Bretlandi er þeim mun meira að gerast i elek- trófönkinu í New York. Þessi tónlist hefur farið eins og eldur í sinu um allar jarðir og virðist ætla að verða æði sumarsins hér á íslandi. Þetta er í fyrsta sinn í mörg herrans ár sem virkileg tónlist- arbylting verður í Bandaríkjun- um, og margir hafa lagt hönd á plóginn. Flestir eru þeir svartir, eins og Afrika Bamb- aataa, Grandmaster Flash o.fl., en ýmsir hvítir menn hafa einnig komið við sögu. Nefna má Tom Silverman, sem stjórnar útgáfunni Tommy Boy, en þaðan hafa mörg elek- trófönklög komið, og Arthur Baker. Arthur Baker varð frægur og eftirsóttur upptökustjóri eftirað hann stjórnaði upptökum á lögunum Planet Rockog Look- ing For The Perfect Beat með Afrika Bambaataa, og Walking On Sunshine með Rockers Revenge. Nýlega hefur hánn lokið vinnu við tvöfalt albúm sem inniheldur lög úr kvik- myndinni Beat Street, og er um hip-hop eða break-dans hreyfinguna. Bakerfrá Boston, hlustaði í æsku á enska popp- tónlist og það var ekki fyrr en hann fór að vinna í plötubúð í negrahverfi borgarinnar sem hann kynntist tónlist blökku- manna. Hann kynnti sértónlist frá Fíladelfíu og The Temptat- ions. Vinir hans urðu hippar en hann sökkti sér meir og meir niður í þessa tónlist. Síðan hætti hann í háskóla og fór að vinna í stúdíóum. Þegar kona hans lauk lagaprófi fékk hún vellaunað starf í New York, og hjónin fluttu þangað. Þá var rap-tónlistin að brjótast í gegn í New York. Plötur eins og Good Times með Chic og To Be Real með Cheryl Lynn höfðu náð til fólks, en Ijóst var að ómettaður markaður var fyrir hendi á þessu tónlistar- sviði. Arthur Baker gerði síðan þrjár plötur á tveimur mánuð- um, Jazzy Sensation, Planet Rock og Walking On Suns- hine. Þetta var seint á árinu 1981. Platan Planet Rock var markaðsteinninn, hún seldist í 700.000 eintökum í staðinn fyrir 50.000-100.000 eins oo búist hafði verið við. Frá því hefur Baker unnið með fólki eins og Freeze, hann stjórnaði upptökum á I.O.U., sem var vinsælt í fyrra aö mig minnir, og laginu Candy Girl, sem einnig var mjög vinsælt. Einnig hefur hann starfað með New Order. Árangur af þeirri sam- vinnu varð Blue Monday, Con- fusion og Thieves Like Us. New Order hafði frumkvæðiö að þeirri samvinnu, og Barker hafði ekkert heyrt í hljómsveit- inni áður þótt hann þekkti Joy Division. Hann segir að sér hafi ekki líkað við Blue Mond- ay, þótti það eins og gamal- dags diskó. Reyndar neitar hann því að hafa nokkuð haft með það lag að gera. Ég hitti þau fyrst á hóteli. Ég hafði lesið að þau væru snill- ingar á tónlistarsviðinu, en þau eru ekki betri en ég og ég er enginn tónlistarmaður. Eg fikta bara við trommuheila og seq- uensera og það er nákvæm- lega það sama og þau eru að gera...“ Arthur Baker hefur nýlega verið að hljóðblanda lög með Cindy Lauper. Hann hefur ver- ið ásakaður um að taka hvað sem býðst, en hann segist ekki geta fundið upp nýja tón- listastefnu í hverri viku. Fjöldi manna sem sinnir tónlist nú er undir áhrifum frá Baker, og Ijóst er að hann er einn mesti áhrifavaldurinn í rythmískri tónlist það sem af er 9. ára- tugnum. Litið á ■ Hvað hefur verið að gerast í poppmússíkinni í vor? Ekki mikio. Fá ný nöfn hafa sést á listunum og mest eru það áður velþekktir listamenn sem ráða ríkjum. Menn hafa þó verið að reyna aö sjóða saman nýja hreyfingu úr listamönnum eins og Sade, Carmel, Everything But The Girl o.fl., eins konar jasspopp- hreyfingu, og sagt er að hún muni verða öflug á næstunni. Þaö getur svo sem vel verið. En það eru aðrar hreyfingar á ferð. Kántrý-tónlist hefur verið á uppleið i Bretlandi að undan- förnu, að vísu ekki hrein og bein kántrýtónlist, heldur blöndu rokkabillý. Nöfn eins og King Kurt, Orson Family, og gömlu góðu Cramps setja mestan svip á þessa hreyfingu, einhversstaöar i grenndinni eru The Smiths með sitt leiðin- lega svefnrokk. Þeir hafa reyndar gefið út nýja litla plötu sem nefnist Heaven Knows l’m Miserable Now, og er hún sem stendur á topp 10 í Bretlandi: Önnur stefna, sem aðallega er fatastíll, er svokallaður Ca- sual-stíl, og átti uppruna sinn hjá fótboltaaðdáendum og byggist á því að klæðast ósköp venjuiegum gallabuxum, tau- jökkum og T-bolum, en þeir verða að vera tandurhreinir og bera réttu framleiðendamerk- in. Þessi stefna hefur getið af sér eina hljómsveit, sem nefn- ist Accept. En lítum á vinsældarlistana. Wham. er efst með lag sitt Wake Me Up Before You Go Go, og hafa örugglega allir íslendingar heyrt það núna. Spandau Ballet og Ultravox, tvær gamlar nýrómantískar hljómsveitir koma þar á eftir, síðan Howard Jones, og svo tvö nöfn sem ég veit lítil deili á, Evelyn Tomas og Bronski Beat. Síðan kemur ein fersk- asta hljómsveit ársins, Frankie Goes To Hollywood. Meöal minna þekktra nafna neðar á listanum ma sjá Elton John, Style Council, David Sylvian úr Japan og Siouxie & The Banshees. Þetta voru litlu plöturnar. Á hinum listanum, LP-listan- um, má sjá Howard Jones, Siouxsie & The Banhees, sem fer beint í 7. sæti með nýju plötuna Hyaena, Human League, Brue Springsteen og Ultravox, og eru þá bitastæð- ustu nöfnin upptalin. Einnig eru þarna The Smiths, Echo & The Bunnymen og Blanc- mange. Þessi upptalning ætti að gefa nokkra hugmynd um hvað efst er á baugi í Breta- veldi. Það er fátt nýtt og fátt gott. Við komum aftur með svip- aða athugun á listunum að nokkrum vikum liðnum. Óháði i vínsældalistinn ■ Þessa viku verða nokkrar breytingar á toppnum. New Order kemst aftur i fyrsta sæti 12“ listans með Thieves Like Us, og á einnig lagið i öðru sæti. A LP-listanum sitja Ikarus enn á toppnum, en Tolli Morthens fer niður um 5 sæti, niður það 7. með plötu sina. Pönkararnir i G.H.B. og Exploited halda sinu og j vel það. og tvær góðar plötur, með Raincoats og Cocteau Twins na inn a listann. Frankie Goes To Hollywood, sem i siðustu viku var í 5. sæti 12" listans dettur algjorlega ut af einhverjum astæðum. en aðrar i plotur sem komu inn þa. eru ennþa inni. LP-iistinn 1.(1) Ras 5-20 Ikarus 2 (-) Breakin . . Ur kvikmynd 3. (5) Let s Start a War Exploited 4 (4) City Baby s Revenge ... . . ... . G.H.B 5 (-) Head Over Heels Cocteau Twms 6. (-) Moving Raincoats 7 i2) The Boys Fram Chicago . Porlakur Kristinsson 8 (6) The Top The Cure 9 (-) Dead Can Dance Dead Can Dance 10. (-) The Smiths The Smiths 12” 45 snún. listinn 1. (2) Thieves Like Us Ne;v Order 2. (3) Blue Monday . New Order 3. (1) No Sell Out Malcolm X 4. (-) The Reflex Duran Duran 5 (-) O Brother The Fall 6. (4) Dazzle Siouxsie & The Banshees 7 (-) Praying To The Beat Re-Flex 8. (6) Dance Remix Yello 9. (7) Firring Firring 10. (-) Prisoner of Love Spear of Destiny hrærinqar í poppinu Morrisseyúr TheSmiths

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.