NT


NT - 01.07.1984, Page 21

NT - 01.07.1984, Page 21
i ■ Buxnadragt me6 vesti úr bómullar- og hörblöndu, hæfilega krumpuð. Þessi föt eru hönnuð af einu stærsta nafni tískuheims- ins - Claude Montana. Sniðið á öllum flíkunum er þó fremur hefðbundið og ætti því að vera auðvelt fyrir lagnar stúlkur að stæla meistarann. ■ Einfaldur, stuttur, tvíhnepptur jakki og buxur felldar undir streng að ofan en með miölungi víðar skálmar. Gæti sómt sér vel á Broadway ekki síður en við blátt Miðjarðarhafið. ■ Jakki með kraga sem um leið er hálsklútur sem hægt er að slá um sig á ýmsa vegu, og stórar víðar buxur. Efnið er bómullar jersey. ■ Frjálslegt og fallegt og því miður dýrt - blússa og jakkaföt úr silki. ■ Vinnugallastíllinn í stælútfærslu i hvítum jakkafötum, saum- uðum úr þykku bómullarefni. ■ Mittisjakki í hermannastílnum og þægilegar buxur úr bóm- ullarefni. Hvítt er þetta sumarið yfirgnæfandi litur í háborg tfskunnar - París - hvort sem horft er á fólkið á götunni eða hina óteljandi glugga tískuverslananna. Þar má þó raunar einnig sjá nær alla aðra liti, ýmist pastel eða eldskæra. T.d. vekja athygli mjög sterkir bláir litir og einnig er mikið um navyblátt ásamt daufbleiku, Ijósgrænu og kakigrænt sem gjarnan erþá sýnt með snjóhvítu. Hvítar dragtir - fínar og sléttar, eða grófar og krumpaðar er meðal þess fatnaðar sem hvað mest ber á í búðargluggum Parísar þessa dagana. Flestar eru þær úr bómull og hör,ýmist öðru þessara efna eða blöndu úr þeim báðum. Fínust og dýrust eru þó að sjálfsögðu silkifötin, sem flestir munu þó líklega verða að láta sér nægja að horfa a og dást að í gluggunum, en kaupa svo eitthvað ódýrara. Efni og snið eru svo fjölbreytt að flestir hljóta að finna eitthvað við sitt hæfi. Verðið er einnig breytilegt. Með augum íslensks launþega virðist fataverð í París þó aðallega vera frá fremur dýru, en samt viðráðanlegu og upp í ævintýralegar upphæðir'fyrir jafnvel einföldustu og minnstu flíkur og það sem þeim tilheyrir, svo sem skartgripi, klúta og belti. Hér á síðunni munum við að þessu sinni gefa ykkur nokkur sýnishorn af þeim þúsundum hvítu buxnadragta sem Parisarkonum eru boðnar til kaups um þessar mundir. Ekki er að efa að laghentar islenskar saumakonur geta notað sér eitthvað af þeim við eigin tiskufataframleiðslu, sem fer nú stórvaxandi, að því er fréttir herma. Sunnudagur 1. júlí 1984 21

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.