NT - 13.07.1984, Blaðsíða 27
Föstudagur 13. júlí 1984 27
■ Atli Hilmarsson var bestur í íslenska liðinu í gær. Á þessari mynd lætur hann eitt þrumuskotið ríða af á þýska markið. Atli skoraði 4 mörk í leiknum i gær,
öll í síðari hálfleik. NT m;',,a: An
■ Guðmundur Guðmundsson í kröppum dans í landsleiknum í gær. Guðmundur átti góðan leik
Og skoraði 2 mörk. NT-mynd: Ari.
Þegar vornin bregst
vinnst ekki sigur
■ íslendingar biðu lægri klut
fyrir V-Þjóðverjum í síðaii
landsleik þjóðanna að þessr
sinni. Leiknum lauk með fjög-
urra marka ósigri, 21-17. Það
var fyrst og fremst „heims-
klassa“ markvörslu Roch í
þýska markinu að þakka að
sigurinn lenti þeirra megin.
Hann varði 10 skot í fyrri
hálfleik, flest úr dauðafærum
íslenska liðsins. Það skipti
einnig sköpum fyrir íslenska
liðið að vörnin var mjög slök,
Þjóðverjarnir áttu alltaf greiða
leið framhjá íslensku vörninni.
Þar munaði mikið um að Kristj-
án Arason gat ekki leikið með
í leiknum í gær, vegna meiðsla
sem hann hlaut í fyrradag.
íslendingar skoruðu fyrsta
markið í ieiknum, það var
Alfreð Gíslason sem þar var að
verki. Þjóðverjar svöruðu fyrir
sig og staðan var í jafnvægi
fram að 3-3. Þá tóku
Þjóðverjarnir nokkurn kipp og
skoruðu fjögur mörk í röð, og
breyttu stöðunni í 6-3.
íslendingum tókst ekki að
rétta úr kútnum og Þjóðverj-
arnir gengu á lagið og juku
muninn. I hálfleik var staðan
11-6 fyrir V-Þýskaland. Ekki er
hægt að kvarta yfir því að
íslenskajiðið hafi ekki fengið
tækifæri til að skora fleiri mörk,
öðru nær. Hvað eftir annað
varði Roch markvörður Þjóð-
verjá skot fslendinga úr dauða-
færum. Meðal annars úr hraða-
upphlaupum þegar hann var
einn til varnar gegn leik-
mönnum íslands.
íslenska liðið var illa á verði
í vörninni og Þjóðverjarnir
komust oft í gegn um vörn
ísienska liðsins án mikillar
fyrirhafnar.
Þessum fyrri hálfleik vilja
íslensku landsliðsmennirnir og
þjálfarinn víst gleyma sefn
fyrst. Bogdan hefur líklega
haldið reiðilestur yfir sínum
mönnum í hálfleik, því strák-
arnir komu mun ákveðnari til
síðari hálfleiksins.
Okkar menn náðu betri
tökum á leiknum þegar leið á
síðari hálfleikinn og baráttan
jókst að sama skapi. Atli Hilm-
arsson komst í banastuð, en
hann hafði hvílt fyrri hálfleik-
verja og staðan breyttist í
20-16. Eftir það áttu okkar
menn ekki möguleika á því að
jafna, til þess var tíminn of
skammur. Hvoru liði tókst að
skora eitt mark áður en leiktím-
inn rann út og lokatölur leiksins
því, 21-17, fyrir V-Þýskalandi.
Bestu menn íslands í
leiknum voru þeir Atli Hilm-
arsson og Sigurður Sveinsson.
Þorbjörn, fyrirliði, Jensson var
traustur í vörninni að vanda,
en vantaði illa Kristján Arason
við hlið sér. Þeir Bjarni Guð-
mundsson og Guðmundur
Guðmundsson voru traustir og
svo Þorgils Óttar Mattíesen
þann tíma sem hann lék. Þor-
bergur var ákveðinn sem
stjórnandi sóknarleiksins, en
skot hans voru fremur léleg.
Hann var þó óheppinn í fyrri
hálfleiknum að skora ekki þrí-
vegis úr hraðaupphlaupum,
meðan Roch var í hvað mestu
stuðinu í v-þýska markinu.
Markverðirnir áttu ekki góðan
dag, þó var Kristján Sigmunds-
son öllu betri en Einar Þorvarð-
arson. Kristján varði 5 skot í
síðari hálfleiknum, þará meðal
víti frá Wunderlich.
Roch varði víti frá Alfreð
Gíslasyni í fyrri hálfleik og
Sigurður Sveinsson skaut í
stöng undir lok leiksins.
Mörk Islands: Sigurður 7/6, Atli 4,
Guömundur 2, Bjarni 2, Alfreö 1 og
Þorgils Óllar 1.
Mörk V-Þjóðverja: Wunderlich 5/1,
Schwalb 4, Neitzel 3, Springel 2,
Frautz 2/1, Paul 2, Rauin 1, Roth 1 og
Meflle 1.
inn. Hvað eftir annað reif Atli
sig upp og lét þrumuskot sín
bylja á þýska markinu. Árang-
urinn, fjögur glæsileg mörk og
munur liðanna minnkaði.
Sigurður Sveinsson var einn-
ig mikilvægur, hann skoraði úr
fjórum vítaköstum í fyrri hluta
síðari hálfléiksins og var örygg-
ið uppmálað.
Þegar 10 mínútur voru til
loka leiksins hafði íslenska lið-
inu tekist að minnka muninn
niður í eitt mark, 16-15. Þá tók
við örlagaríkur kafli í leiknum.
Stjórnandi sóknarleiks íslenska
liðsins, Þorbergur Aðalsteins-
son, var rekinn af leikvelli í
tvær mínútur. Við það var eins
og drægi nokkuð af íslenska
liðinu.
Næstu þrjú mörk voru Þjóð-
Páll fer ekki á OL
■ Eftir landsleik íslands og Sigurður Sveinsson, Bjarni
V-Þýskalands í gærdag til- Guðmundsson, , Þorgils Óttar
kynnti Bogdan landsliðsþjálf- Mattíesen, Jakob Sigruðsson,
ari, hvaða leikmenn verða í liði Steinar Birgisson og Kristján
íslands sem leika mun á Olym- Arason.
píuleikunum í Los Angeles. Það er Ijóst að þeir Páll
Liðið verður þannig skipað: Ólafsson, Kristján Sigmunds-
Markverðir: Einar Þorvarðar- son og Geir Sveinsson fara ekki
son, Brynjar Kvaran og Jens til Los Angeles. Kristján Sig-
Einarsson. mundsson mun verða til taks ef
Aðrir leikmenn: Þorbergur einhver hinna markvarðanna
Aðalsteinsson. Atli Hilmars- verðurfyrirmeiðslum. Kristján
son, AlfreðGíslason.Þorbjörn Arason sem nú er meiddur
Jensson, SigurðurGunnarsson, mun verða orðin góður eftir
Guðmundur Guðmundsson, nokkra daga.
Bogdan Kowalczyk
landsliðsþjálfari
íslands:
Vörnin
höfuð-
verkur
■ „Þessi leikur var eins
og ég bjóst við. í gær
barðist íslenska liðið
mjög vel, en í dag gekk
dæmið ekki upp. í fyrri
hálfleik glötuðum við 6
100% tækifærum, þegar
þýski markvörðurinn
varði. I slíkri aðstöðu get-
ur ekkert lið í heiminum
unnið leik.“
„Höfuðverkur liðsins
var varnarleikurinn og
fjarvera Kristjáns Ara-
sonar var þung á metun-
um í kvöld.“
„Eg prófaði nýja leik-
menn í kvöld og mér
fínnst Guðmundur
Guðmundsson hafa skil-
að hlutverki sínu mjög
vel.
„Eg gerði þeim það
Ijóst í hálfleik að ekkert
fæst gefíns í handbolta og
þeir sóru að bæta sig í
síðari hálfleiknum. Það
gerðu þeir og árangurinn
lét ekki á sér standa.
Þegar við minnkuðum
muninn í eitt mark 16-15,
hefði getað skipt sköpum
að jafna. Þá hefðum við
jafnvel getað unnið leik-
inn,“ sagði Bogdan
landsliðsþjálfari.
Simon Schobel
landsliðsþjálfari
V-Þjóðverja:
Lékum
vel í 45
mínútur
Við komum hingað
til þess að leika gegn
sterku landsliði, sem ís-
lenska liðið er, og einnig
til að leika gegn hinum
kröftugu íslensku áhorf-
endum,“ sagði Simon
Schobel landsliðsþjálfari
V-Þýskalands eftir leik-
inn í gær.
„Við fengum það sem
við vildum. í kvöld léku
mínir menn eins og ég vil
að þeir leiki, fyrstu 45
mínútur leiksins. Þegar
staðan var orðin 16-15,
tókst liðinu sem er mjög
ungt, að vinna sig út úr
þeirri stöðu og vinna leik-
inn. Það er ég ánægður
með.“
„Ekld má gleyrna frainnú-
stöðu Sigmund Koch í
markinu í fyrri hálfleik,
en markvarsla hans var í
heimsklassa. Hann var
valinn sem þriðji mark-
vörður í liðið og það segir
sýna sögu um styrkleika
þýskra markvaröa.”
„Ég tel að íslenska liðið
hafí leikið jafn vel og í
gær, en vörnin hjá okkur
var mun grimmari. Við
komum betur út á móti
skyttunum en í leiknum í
gær.“
„Ég er mjög hrilinn af
Atla Hilmarssyni, hann á
eftir að verða meiriháttar
leikmaður í V-Þýska-
landi, með tímanum,”
sagði Simon Schobel.