NT


NT - 22.08.1984, Side 4

NT - 22.08.1984, Side 4
Biskupstungur: Hestaþing Loga Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til ísjands á næstunni sem hér segir: Hull/Goole: Dísartell ..................20/8 Jan ........................25/8 Dísarfell ............... 3/9 Disarfell ................. 17/9 Dísarfell ............... 1/10 ■ Hestaþing Loga í Biskups- tungum var haldið nýlega á velli félagsins við Hrísholt í heldur leiðinlegu veðri. Alls voru skráð 63 hross til keppni í hinum ýmsu greinum. í A flokki góðhesta sigraði Urriði, 6 v., eigandi Njörður IJónsson. í B flokki góðhestá varð Roði 6 v., Einars Sigurðs- sonar hlutskarpastur. Einnig- var keppt í 150 og 250 m skeiði, 250 m unghrossahlaupi, 300 m stökki og. 300 m brokki, auk unglingakeppni í eldri og yngri flokki. Sérstök verðlaun fyrir góða ásetu og prúðmannlega framkomu hlaut Indriði Ingva- son. Formaður Loga er Kristinn Antonsson í Fellskoti. Minnisvarði reistur a Selfossi: ■mH ■ Sonarsonur Egils afhjúpar brjóstmyndina. anna Eggert Ólafsson bóndi á Þoroddseyri og forseti bæjar- stjórnar Selfoss Óli Þ. Guð- björnsson skólastjóri, fluttu ávörp. Sonarsonur Egils Thor- árensen kaupfélagsstjóra, Egill Gr. Thorarensen afhjúpaði síð- an minnisvarðann. agur 22. ágúst 1984 4 Rotterdam: Dísarfell ............21/8 Dísarfell ............ 6/9 Dísarfell ............18/9 Dísarfell ........... 2/10 Antwerpen: Dísarfell ............22/8 Dísarfell ............ 7/9 Dísarfell ............19/9 Dísarfell ........... 3/10 Hamborg: Dísarfell ............24/8 Dísarfell ............ 5/9 Dísarfell ............21/9 Dlsarfell ........... 5/10 Helsinki/Turku: Hvassafell............31/8 Hvassafell............25/9 Larvik: Jan...................27/8 Jan ................. 10/9 Jan ..................24/9 Jan.................. 8/10 Gautaborg: Jan...................28/8 Jan...................11/9 Jan...................25/9 ■ Sigurvegarar í A flokki góðhesta, í fyrsta sæti Urriði Njarðar Jónssonar í Brattholti, 12 vetra, í öðru Seifur, Þórarins Guðlaugs- sonar í Fellskoti, 11 vetra og í þriðja sæti Logi Einars P. Sigurðssonar Norðurbrún, 7 vetra. Knapar eru eigendur nema á Seif. Hann situr Sigurður Guðmundsson frá Torfastöðum. NT-mynd: Pétur Guðmundsson Jan............... 9/10 Kaupmannahöfn: Jan ...............29/8 Jan................ 12/9 Jan................26/9 Jan...............10/10 Svendborg: Jan ...............30/8 Jan ...............13/9 Jan ...............27/9 Jan ............. 11/10 Árhus: Jan....... ............31/8 Jan....................14/9 Jan....................28/9 Jan ................. 11/10 Falkenberg: Hvassafell......... 3/9 Arnarfell ............ 13/9 Gloucester, Mass.: Skaftafell.............22/8 Jökulfell..............29/8 Skaftafell.............21/9 Halifax, Canada: Skaftafell.............23/8 Skaftafell.............22/9 oKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Simi 28200 Telex 2101 Brjóstmynd af Agli Thor- arensen kaupfélagsstjóra Sjóstangveiðimót Akureyrar: Róið frá Dalvík ■ Sjóstangveiðimót Akureyr- ar verður haldið dagana 31. ágúst og 1. september nk. og verður róið frá Dalvík, að venju. Félagið á 20 ára afmæli á árinu og verð'ur sérstaklega vandað til verðlauna að því tilefni. Keppt verður um 40 fallega verðlaunagripi. Mótið verður sett í Mánasal Sjallans fimmtudaginn 30. ágúst kl. 20.00 og þarf að tilkynna þátttöku fyrir 25. ágúst til Páls A. Pálssonar í síma 96-23464, Bjarka Arngrímssonar í síma 96-22678 eða Andra P. Sveins- sonar í síma 96-22946. ■ Á alþjóðadegi samvinnu- manna laugardaginn 7. júh' sl. var afhjúpaður á Selfossi minn- isvarði um Egil Thorarensen kaupfélagsstjóra. Var honum valinn staður við suðurhlið Vöruhúss Kaupfélags Árnesinga. Er hér um brjóst- mynd að ræða, gerða af Einari Jónssyni myndhöggvara árið 1947 og stendur hún á vel gerð- um blágrýtisstöpli. Kaupfélag- ið, Mjólkurbú Flóamanna og bæjarsjóður Selfoss sameinuð- ust um að koma minnisvarðan- um upp, en þetta er fyrsti minn- isvarðinn sem reistur er á Self- ossi. Formaður Kaupfélags Árnesinga Þórarinn Sigurjóns- son alþm. flutti aðal ræðuna, en formaður Mjólkurbús Flóam- Landsbankinn í nýtt húsnæði ■ Vígalegir sjóstangveiðimenn í róðri. einhver hinna 40 glæsilegu verðlauna. Þeir ætla sér eflaust Agætis veiði í Flókadalsá Ágætis veiði hefur verið í Flókadalsá í allt sumar og er veiðin komin yfir 200 laxa, á þrjár stangir og ér það betra en á sama tíma í fyrra. Síðasta holl fékk 6 laxa og eitt partí fékk 16 laxa fyrir nokkru síðan á tveim dögum. Veiðimaður einn ónefnd- ur, sem var á veiðum í Flóku fyrir nokkrum dögum.fékk 11 laxa á tveimur dögum og alla á flugu. Ingvar á Múla- stöðum sagði Veiðihorninu að mikill lax væri í ánni og var hann bara nokkuð bjart- sýnn á framhaldið. Reytingur í Grímsá Frekar rólegt er yfir veið- inni í Grímsá þessa dagana en þó er alltaf einhver reyt- ingur og oftast veiðist lax á hverja stöng yfir daginn, og stundum meira. Þannig fékk síðasta hollið f ánni 16 laxa á tíu stangir yfir tvo daga. Hollið á undan fékk 20 laxa og hollið þar á undan 29 laxa svo verra getur það nú verið. Lítið virðist vera um nýjan fisk í ánni enda fer veiðin alltaf stig minnkandi. Á land eru nú komnir um 900 laxar í Grímsá og 28 punda laxinn er ennþá sá stærsti. Þverá og Kjarrá Reytingsveiði hefur verið í Þvérá og Kjarrá undanfarna daga og komu 7 laxar á land úr neðri ánni í gær. Nokkrir laxar veiddust einnig uppi í Kjarrá. Halldór í veiðihúsinu sagði að það vantaði mikið uppá að árið í ár næði góðu meðal- ári, eða 7-800 laxa. Nú eru komnir á land um 1100 laxar úr Þverá og Kjarrá og stærsti laxinn var 24 pund en einnig hafa veiðst nokkrir 20 punda laxar. Veiðilok eru 8. sept- ember. Dauf veiði í Norðurá " Veiðin er mjög dauf í Norðurá og er orðið langt 'síðan komið hefur lax á stöng á degi hverjum. Síðasta holl sem var þar í veiði þrjá daga með fimmtán stangir fékk aðeins 10 laxa. Heildarveiðin stendur nú í 800 löxum og sá stærsti var 19 pund. Veiðilok í Norðurá eru 1. september. ■ Útibússtjórí Landsbankans á Vopnafirði, Víglundur Pálsson ásamt starfsliði sínu. Frá vinstri: Inga Sigurjónsd., Sigurveig Róbertsd., Arnbjörn Pálsdóttir og Ásta Olafsdóttir. NT mynd: Steingrímur Hvammskirkja 100 ára: Biskupinn predikar við messu á sunnudag ■ Hvammskirkja í Dölum á 100 ára afmæli á sunnudag og af því tilefni fer fram hátíðarguðs- þjónusta í kirkjunni kl. 14. Þar mun biskupinn, herra Pétur Sig- urgeirsson, predika, en sóknar- presturinn, sr. Ingiberg J. Hannesson, prófastur á Hvoli, flytur ávarp og þjónar fyrir altari. Að messu lokinni verða born- ar fram veitingar í Laugaskóla og þar mun Einar Kristjánsson, fyrrum skólastjóri á Laugum, seeia söcu kirkjunnar. Vopnafjörður: Frá Steingrími Sæmundssyni, fréttarítara NT á Vopnafírði: ■ Landsbankinn á Vopnafirði flutti í nýtt húsnæði í byrjun ágústmánaðar og er almenn ánægja í héraði með þá þjón- ustu sem þar er boðið uppá. Byggingarframkvæmdir við húsið hófust í júnímánuði 1983 og var það um 10 mánuði í byggingu. Við opnunina voru flutt ávörp og meðal þeirra sem stigu í pontu voru Lúðvík Jós- efsson formaður bankaráðs og Jónas Haralz bankastjóri. Úti- bússtjóri á Vopnafirði er Víg- lundur Pálsson en auk hans starfa við bankann þær Inga Sigurjónsdóttir, Sigurveig Ró- bertsdóttir, Arnbjörg Pálsdóttir og Ásta Ólafsdóttir. Sýslunefnd Norð- ur-Múlasýslu: Sameigin- legt út- varp fyrir Austurland ■ Sýslunefnd Norður- Múlasýslu fundaði á Vopnafirði í sumar og er það í fyrsta sinn sem aðal- fundur er haldinn utan Seyðisfjarðar. Fjárhagsáætlun sýslu- sjóðs fyrir 1984 hljóðar uppá 846.832 kr. og eru helstu gjaldliðir þessir: Til menningarmála kr. 270 þúsund, þar af 164 þúsund til Skjalasafns Áustur- lands. Til heilbrigðismála kr. 215 þúsund. Til at- vinnumála kr. 150 þúsund og til styrktar ýmsum fé- lögum kr. 75 þúsund. Margar ályktanir voru samþykktar á fundinum og má þar m.a. nefna áskorun til alþingismanna og fjárveitingarvalds um að hafist verði þegar handa við að leggja akfær- an veg yfir Hellisheiði milli Vopnafjarðar og Héraðs. Einnig varskorað á stjórnvöld að beita sér fyrir réttlátari úthlutun sýsluvegafjár og þeim til- mælum beint til sveitar- stjórna í sýslunni að skilti með nöfnum hreppa verði sett upp við þjóðvegi. Þá var rætt um að koma á fót sameiginlegri útvarps- sendingu fyrir Austur- land og var sýsluráði falið að undirbúa tillögur í því máli fyrir næsta aðalfund sýslunefndar.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.