NT - 22.08.1984, Side 25
>,r*
WVí /j
Miðvikudagur 22. ágúst 1984 25
Utlönd
Flokksþing Repúblikanaflokksins:
íhaldssöm stefnuskrá
og ágæti stjórnarinnar
- aðalmálin í gær
Dallas-Reuter
_ Stefnuskrá Repúblikanaflokksins, sem þykir íhalds-
söm í meira lagi, var samþykkt nær samhljóða á
flokksþinginu í gær, þrátt fyrir að hófsamari flokksleiðtog-
ar og kínverska ríkisstjórnin hefði mótmælt ýmsum
atriðum í henni. Það sent aðallega fer fyrir brjóstið á
Kínverjum er að hvatt er til að Bandaríkjamenn taki aftur
upp stuðning við Taiwan og að Hong Kong fái sjálfsstjórn.
Stefnuskráin var aðalmálið á
flokksþinginu í gær en þingfull-
trúar eyddu einnig miklum tíma
í að rakka niður leiðtogahæfi-
leika Mondales, forsetaefnis
demókrata. Þeirra á meðal var
Kreditkortasvindl upplýst:
Aðferðinni er
haldið leyndri
- til að fyrirbyggja glæpaöldu
London-Reuter
■ Ef leyndarmál sem tíu
manns eiga sér yrði gert opin-
skátt myndi það leiða til þess að
kreditkortafyrirtæki um allan
heim yrðu fyrir barðinu á glæpa-
öldu. Þetta kom fram fyrir rétti
í London í gær.
Þetta leyndarmál er svika-
bragð sem er svo árangursríkt
að einn þessara tíu, Bandaríkja-
maðurinn Gregory Ransom,
notaði það til að svíkja út
hundruðir þúsunda dala í
Bandaríkjunum og Evrópu. Á
síðustu fjórum mánuðum síð-
asta árs varð Ransom sér úti um
250 þús. dali (7,5 millj. ísl. kr.)
í Bandaríkjunum einum fyrir
utan það sem hann aflaði sér í
ferðum sínum til Evrópu.
Ransom var gripinn í London
og dæmdur í 18 mánaða fangels-
isvist og kona hans í árs fangelsi.
Bílaleiga athugaði eitt kredit-
korta hans og komst að því að
falska nafnið á kortinu og núm-
erið áttu ekki saman.
Því er haldið leyndu hvernig
Ransom falsaði kortin. Réttin-
um var aðeins sagt að hann bjó
til fölsk kreditkort með vél sem
býr til upphleypta stafi. Ef að-
Libýa-Marocco:
ferðin yrði gerð kunn myndu
kreditkortafyrirtæki tapa millj-
ónum dala, að sögn saksóknar-
ans.
Hann sagði að Ransom og
nfu aðrir, þar á meðal eru
væntanlega rannsóknarlög-
reglumenn, væru þeir einu sem
vissu þetta leyndarmál.
Jeane Kirkpatrick, sendiherra
Bandaríkjanna hjá S.Þ. sem
minntist á gíslamálið í íran 1980
og sagði að tök þeirra Jimmy
Carters og Mondales á því máli
hefðu einkennst af undanláts-
semi og hnignun.
Katherine Ortega fjármála-
ráðherra tók upp merkið og
sagði að Bandaríkjamenn hefðu
náð langt undanfarin fjögur ár:
„frá smáninni í Teheran til hug-
rakkrar björgunar bandarísku
námsmannanna í Grenada."
Hún hvatti þær milljónir
demókrata sem hefðu verið yfir-
gefnir af leiðtogum sínum til að
ganga í stærsta flokk landsins,
Repúblikanaflokkinn. „Við
bjóðum ykkur velkomna á
heimili okkar,“ sagði hún á
ensku og spænsku.
„Heimili" repúblikana er þó
málað í mjög íhaldssömum
litum og sumir áhrifamiklir
repúblikanar efuðust um að þeir
drægju til sín frjálslyndari
Bandaríkjamenn. John Conn-
ally, fyrrum forsetaframbjóð-
andi, var einn þeirra sem gagn-
rýndu stefnuskrána sem nú ligg-
ur fyrir flokksþinginu.
Þar er skattahækkunum af-
neitað sem lausn til að minnka
fjárlagahallann, en hann nemur
nú um 200 milljörðum dala
heldur felist lausnin í áfram-
haldandi efnahagsbata og af-
námi ónauðsynlegrar eyðslu
ríkisstjórnarinnar.
í varnarmálum er talað um
nauðsyn þess að ná hernaðar-
yfirburðum yfir Sovétmenn en
einnig er hvatt til að bæta í
kjarnorkuvopnabúrið svo
Bandaríkin geti örugglega unn-
ið hvaða styrjöld sem er.
í stefnuskránni segir um fé-
lagsmál að besta laus á fátækt-
inni sé einstaklingsframtakið.
Farið er fram á að fjárframlög
hins opinbera til fóstureyðinga
verði bönnuð og ekkért er
minnst á jafnréttislogin sem
gera ráð fyrir jafnrétti kvenna
og karla.
■ í gær var víða efnt til mótmæla við sovésk sendiráð en þá voru
16 ár liðin frá innrásinni í Tékkóslóvakíu. Þessi mynd var tekin af
mótmælaaðgerðum fyrir utan sovéska sendiráðið í Kaupmanna-
höfn. POLFOTO-Símamynd
Tékknesku mannréttindasamtökin:
Vilja Sovétmenn
burtu úr landinu
-16 ár liðin frá innrásinni
Vín-Reuter
■ Tékknesku mannréttinda-
samtökin hafa krafist þess að
sovésku hersveitirnar, sem hafa
haft bækistöðvar í landinu síðan
■ Réttarhöldunum yfir Gerd
Heidemann og Konrad Kujau
sem sakaðir eru um að hafa
falsað dagbækur eignaðar
Adolf Hitler, var frestað um
eina viku en þau áttu að hefjast
í gær. Verjendur tvímenning-
anna héldu því fram að dómar-
arnir sex gætu ekki kveðið upp
hlutlausan úrskurð yfir Hei-
demann vegna umtalsins sem
málið hefur vakið og munu
dómararnir íhuga þessa stað-
hæfingu nánar.
A myndinn sést Heidemann
ganga í réttarsalinn í Hamborg
í gær umkringdur blaðaljós-
myndurum.
Polfoto-símamynd
eftir innrásina í Tékkóslóvakíu
árið 1968, dragi sig til baka.
í bréfi til þingsins og ríkis-
stjórnarinnar segja samtökin að
innrásin, sem batt endaá um-
bætur þær sem tengdar voru
Alexander Dubcek, fyrrum
leiðtoga kommúnistaflokksins,
brjóti í bága við alþjóðalög,
sáttmála Sameinuðu þjóðanna
og Varsjárbandalagið sjálft.
En dagblaðið Rude Pravo,
málgagn tékkneska kommún-
istaflokksins, lofaði í gær inn-
rásina þar sem hún hefði komið
á stöðugleika í Evrópu og sagði
að kommúnistaríki myndu
halda áfram að verja sig gegn
„gagnbyltingasinnaðri heims-
valdastefnu“.
í gær voru 16 ár liðin síðan
herflokkar frá öllum Varsjár-
bandalagsríkjunum nema Rúm-
eníu gerðu innrás í Tékkósló-
vakíu, aðfaranótt 21. ágúst
1968. Tveim mánuðum eftir inn-
rásina skrifuðu stjórnvöld í Prag
og Moskvu undir samning um
að sovéskar hersveitir yrðu í
Tékkóslóvakíu um óákveðinn
tíma.
Alexander Dubcek, sem sett-
ur var af eftir innrásina, býr nú
í hálfgerðri útlegð í heimaborg
sinni, Bratislava, og núverandi
stjórnvöld telja tilraunir hans til
að „búa til sósíalisma með
mannlegu yfirbragði“ vera
gagnbyltingarstefnu, sem hafi
miðað að því að afnema komm-
únisma og leiða Tékkóslóvakíu
út úr Varsjárbandalaginu.
Evrópskir námsmenn:
Láta Breta kosta
Kosningar um
ríkiahandalaa I sumarleyfi sín
I llllCIIICilllidlwiS | London-Reuter kr.) á viku ef þcir
I Breska stjormn krafðist atvinnulausa í landi
Rabat-Reuter
■ Hassan, konungur Mar-
occo, hefur skýrt frá því að efnt
verði til þjóðaratkvæðagreiðslu
um samkomulag, sem hann
gerði grein fyrir fyrir skömmu,
við Gaddafi, leiðtoga Líbýu-
manna, um ríkjabandalag Mar-
occo og Líbýu.
Atkvæðagreiðslan á að fara
fram 31. ágúst næstkomandi og
búist er við svipaðri atkvæða-
greiðslu í Líbýu á næstu vikum.
Hassan sagði í ræðu, sem var
útvarpað um miðnætti í fyrri-
nótt, að bandalagið fæli í sér
stofnun sameiginlegs ráðs sem
skipuiegði m.a. samstarf á sviði
efnahagsmála, landvarna og
menningar. Hann sagði að
bandalagið yrði opið öllum
þjóðum Araba og Afríku-
manna án tillits til trúarbragða.
Konungurinn sagði að hann
hefði sjálfur lagt til stofnun
þessa bandalags í skeyti til
Gaddafi þann 13. júlí síðastlið-
inn.Gaddafi hafi strax samþykkt
hugmyndir hans og lagt til að
ríkjabandalagið hefði sérstakan
efnahagsþróunarsjóð sem Lýb-
ýumenn myndu fjármagna.
London-Reuter
Breska stjórnin krafðist
í gær rannsóknar á staðhæf-
ingum um að evrópsk ung-
menni fari í ókeypis sumar-
leyfisferðir til Bretlands á
kostnað breskra skattgreið-
enda. Þetta kom fram í
breska blaðinu Daily MaO.
Blaðið sagði að útlending-
ar notuðu sér almennings-
tryggingakerfi Bretlands en
samkvæmt því geta ríkis-
borgarar aðildarríkja Efna-
hagsbandalags Evrópu kraf-
ist allt að 70 punda (2900 ísl.
kr.) á viku ef þeir skrá sig
atvinnulausa í landinu.
Námsmenn, aðallega ítal-
ir, koma til Bretlands undir
því yfirskyni að þeir séu að
leita sér að vinnu en því sé
ekki svo farið í raun, heldur
séu þeir hluti af stórum hópi
háskólastúdenta sem lætur
Breta borga kostnað við
sumarleyfisferðir sínar.
Blaðið sagði að leiðbein-
ingum um það hvernig hægt
væri að mjólka breska kerfið
væri dreyft í ítölskum há-
skólum.
Dýraverndunarmenn:
Gerðu innrás í
rannsóknarstofu
Bedford, Englandi-Reuler
■ Lögregla handtók 41 í fyrra-
dag þegar um 200 manns gerðu
innrás í rannsóknarstofu sem
þeir héldu fram að notaði dýr til
að rannsaka áhrif efnahernaðar.
Dýraverndunarmenn halda
því fram að þeir hafi tekið
kvikmyndir inni í rannsóknar-
stofunni, sem ernálægt borginni
Bedford, og fundið þar þúsund-
ir tilraunadýra.
Risafyrirtækið Unilever, sem
á rannsóknarstöðina, segir að
dýrin hafi aðeins verið notuð til
rannsókna á neysluvörum og
dýrafóðri. Unilever sagði að
dýraverndunarfólkið hafi valdið
tjóni sem næmi þúsundum
punda og einnig stolið skjölum.
Ýmsir hópar dýraverndun-
armanna hafa undanfarin tvö ár
ráðist inn f margar rannsóknar-
stofur þar sem þeir telja að dýr
séu kvalin í tilraunum.