NT - 22.08.1984, Blaðsíða 27
22. ágúst 1984 27
■ Síðara mark Blikanna staðreynd.
Blikanna grípa vel inní leikinn.
Boltinn í netinu eftir aukaspyrnu Jóns Oddssonar. Á innfelldu myndinni sést Friðrik markvörður
NT-myndir Ámi Bjama
„Við erum allt of
góðir til þess að falla"
■ áttu Blikarnir að geta bætt -. —... ..
Serginho í
tukthúsið
■ Framherjinn frá
Brasilíu, Serghino, sem
spilaði með brasilíska
landsliðinu í Heimsmeist-
arakeppninni á Spáni
1982, hefur verið dæmd-
ur í þriggja mánaða fang-
elsi fyrir að berja á blaða-
Ijósmyndara.
Atvikið átti sér stað
eftir leik Santos, sem
Serghino leikur með, og
Flamengo á Maracana
leikvellinum í Ríó. Flam-
engo vann 3-0.
Félagi Serghino hjá
Santos, Silas, fékk líka
dóm en Paulo Isidoro,
sem einnig lék á Spáni
82, var náðaður.
Höttur vann
■ Höttur frá Egils-
stöðum vann Egil rauða
frá Norðfirði í gærkvöldi í
síðasta leik F-riðils 4.
deildar í knattspyrnu.
Leiknum sem fram fór á
Norðfirði lauk með 2-1
sigri Hattar.
Mörk Hattar skoruðu
þeir Magnús Steinþórs-
son og Þórarinn Jakobs-
son. Markvörður Egils,
Einar Ásmundsson svar-
aði fyrir lið sitt úr víta-
spyrnu.
Léikur, sem einkennd-
ist af baráttu og var nokk-
uð góður, en sigur Hattar
var alls ekki öruggur.
Með sigrinum tryggði
Höttur sér þriðja sætið í
riðlinum:
Lokastaðan í R-riðli
varð þessi:
Staðan i F-riðli:
Leiknir F . 14 12 2 0 55- 9 38
Súlan .... 14 8 2 4 34-25 26
Höttur ... 14 6 4 4 32-24 22
Sindri.... 14 6 4 4 27-22 22
Neisti .... 14 5 4 5 34-27 19
UMFB .... 14 6 1 7 29-35 19
Hrafnkell .14 3 1 10 15-54 10
Egill rauði ..14 0 2 14 13-43 2
■ Breiðabliksmenn unnu sinn
fyrsta sigur á heimavelli í
sumar, er þeir lögðu Víkinga
að velli í 1. deildinni í knatt-
spymu á Kópavogsvelli í
gærkvöld. Lokatölurnar 2-0, en
í hálfleik var staðan 1-0.
Þessi sigur Blikanna kom á
besta tíma fyrir þá, því ef þeir
hefðu tapað í gærkvöld hefði
fallið blasað við liðinu.
Leikurinn var mjög harður
og baráttan var mikil. Mark-
tækifærin voru af mjög
skornum skammti en þau
helstu verða rakin hér á eftir.
Það fyrsta leit dagsins Ijós á
28. rnín. er Magnús Jónsson
tók aukaspyrnu og gaf á Heimi
sem var greinilega rangstæður.
Ekkert var dæmt og Heimir
brunaði að Blikamarkinu.
Friðrik markvörður Breiða-
bliks bjargaði með úthlaupi.
Á 38. mín. tóku Blikarnir
forystuna. Jóhann Grétarsson
tók aukaspyrnu frá hægri kanti
og gaf inní vítateig Blika. Þar
stökk Jón Oddsson hæst og
„nikkaði" boltanum á Sigurjón
Kristjánsson, sem skoraði með
góðu skoti. 1-0 fyrir Blika.
Skömmu fyrir hlé skaut Jón
Einarsson rétt framhjá marki
V íkings eftir skyndisókn Kópa-
vogsbúa.
Næsta hættulega marktæki-
færi kom ekki fyrr en vel var
Iiðið á síðari hálfleikinn. Jó-
hann Grétarsson komst þá einn
innfyrir vörn Víkinga, en skot
hans hafnaði í hliðarnetinu.
Blikarnir bættu síðan öðru
marki við á 71. mín. Þeirfengu
aukaspyrnu við vftateigshornið
vinstra megin, Guðmundur
Baldursson renndi boltanum á
Jón Oddsson, sem negldi í
netið. Stórglæsilegt mark og
staðan orðin 2-0.
Víkingar fengu tækifæri um
miðjan hálfleikinn til að skora,
en Friðrik í markinu bjargaði
með djarflegu úthlaupi, þegar
Andri Marteinsson var kominn
einn í gegn. Lentu þeir í sam-
stuði og lágu báðir óvígir eftir.
Þeir náðu sér þó fljótt og gátu
haldið leiknum áfram.
Á síðustu mínútu leiksins
geta
þriðja markinu við, er Jón G.
Bergs komst einn innfyrir. Jóni
tókst að klúðra þessu færi á
undraverðan hátt og náði ekki
einu sinni að skjóta á markið.
„Það var mikill léttir að vinna
þennan leik, enda var annað
hvort að duga eða drepast fyrir
okkur“, sagði Magnús Jóna-
tansson þjálfari Breiðabliks eft-
ir leikinn. „Það var meiri bar-
átta í kvöld en oft áður. Við
vorum mjög ákveðnir í því að
leggja allt í sölurnar í leiknum
og það skilaði sér. Við breytt-
um aðeins um leikaðferð,
þ.e.a.s. við tókum enga áhættu
og lékum af öryggi.
I
HHOT-
SKURN
■ Harður en slakur leikur
og lítlð um tækifæri. Sigur
Breiðablika sanngjarn, þar
sem þeir voru ákvoðnari en
Víkingar. Mark Jóns Odds-
sonar sem hann skoraði á
71. mín. var það eina sem
gladdi augað. Fyrra markið
skoraði Sigurjón Kristjáns-
son á 38. mín. Dómari í
leiknum var Þorvarður
Björnsson
slakur.
og var hann
Skolbikarinn
Einkunnagjöf NT
UBK
Friðrik Friðriksson....3
Sigurjón Kristjánsson ... 3
Jón Einarsson...........3
Loftur Ólafsson.........3
Ólafur Björnsson .......4
Benedikt Guðmundsson . 4
Vignir Baldursson ......5
Ómar Rafnsson...........4
Jóhann Grétarsson ......5
Guðmundur Baldursson . 4
Jón Oddsson ............2
Jón G. Bergs varam. lék of
stutt.
VIKINGUR
Ögmundur Kristlnsson .. 4
Unnsteinn Kárason ......5
Ragnar Gíslason.........4
Gylfi Rútsson ..........4
Magnús Jónsson .........4
Andri Marteinsson ......3
Kristinn Guðmundsson .. 4
Ómar Torfason...........4
Ámundi Sigmundsson ... 5
Örnólfur Oddsson .......4
Heimir Karlsson ........5
Einar Einarsson ........5
Einar kom inná í leikhléinu
fyrir Unnstein.
■ Skoska deildarbikarkeppn-
in í knattspyrnu hófst í síðustu
viku en nokkuð hefur hún
breytt um svip frá því í fyrra.
Keppni fer nú fram með útslátt-
arfyrirkomulagi, en gamla
riðlafyrirkomulagið hefur verið
lagt niður. Þá heitir bikar-
keppnin hér eftir Skolbikarinn,
en Skol-bruggunarfyrirtækið
hefur styrkt keppnina með
100.000 sterlingspundum, og
ætlar að dæla öðrum 200.000
pundum í keppnina á næstu
tveimur árum.
Úrslit í 1. umferð urðu sem
hér segir:
Albion Rovcrs-Montrosc 2-0
Dunfermline-Arbroath 4-0
East Stirling-Bcrwick 1-1
East Stirling sigraöi í vítaspyrnu-
keppni.
OuecnoftheSouth-Ouccn’sPark 2-1
Stirling Albion-Stcinhouscmuir 2-0
Stranraer-Cowdenbeath 0-3
Önnur umferð verður leikin
síðar í mánuðinum og þá mæta
liðin í skosku úrvalsdeildinni til
leiks.
■ Andri Marteinsson átti góðan leik með Víkingi í gær. Hér sést
hann glíma við Jóhann Grétarsson. NT-mynd Árni Bjama
„Dómarinn lélegur“
■ „Dómgæsla Þorvarðar
Björnssonar í kvöld, er einhver
sú lélegasta sem ég hef séð í
sumar,“ sagði Omar Torfason,
Víkingur, eftir leikinn gegn
Breiðabliki í gær.
„Þegar einhver vafaatriði
komu upp þá dæmdi hann Blik-
unum boltann. Þegar Andri
komst innfyrir áttum við hik-
laust að fá víti. Friðrik kom
vaðandi með sólann í Andra,
enda sést það á honum, hann er
með takkaförin á lærinu."
„Nú erum við komnir í fall-
baráttuna og verðum að leika
betur á næstunni, en við gerð-
um í þessum leik. Við vorum
slakir í kvöld,“ sagði Ómar
Torfason.
Kraftlyftingar:
Torfi með
íslandsmet
■ Torfi Ólafsson kraft
lyftingamaður úr KR setti
nýtt Islandsmet unglinga á
kraftlyftingamóti sem hald
ið var í Æfingastöðinni
Engihjalla fyrir skömmu
Torfi lyfti 187,5 kg í bekk
pressu, og 350 kg í rétt
stöðulyftu, en þetta eru
hvoru tveggja íslandsmet.
í samanlögðu setti hann
einnig íslandsmet, 855 kg,
sem er næst mesta þyngd
sem Islendingur hefur lyft.
Torfi stefnir að því að
taka þátt í heimsmeistara-
móti unglinga sem haldið
verður í Ástralíu í næsta
mánuði. Þar ætlar hann sér
ekkert annað en gullverð-
launin. Torfi keppir í 125
kg flokki.
Á mótinu í Æfingastöð-
inni kepptu þeir Hjalti
Árnason og Jón Páll Sig-
marsson. Þeir voru nokkuð
frá sínu besta, en Jón Páll
reyndi við nýtt Evrópumet
í réttstöðulyftu, en tókst
ekki að koma þyngdinni
upp.