NT - 28.08.1984, Blaðsíða 4
Þriðjudagur 28. ágúst 1984 4
Umsjón: JónasS.
Guömundsson
Sjávarafurðir 71,7%
af útflutningi í ár
Magnaukningin á fyrstu sex mánuðunum 36,3%
■ Hlutur sjávarafurða í út-
flutningi landsmanna jókst lítið
eitt á fyrstu sex mánuðum þessa
árs miðað við sömu mánuði í
fyrra. Var hlutdeild þeirra í ár
71,7%, en í fyrra 70,4%.
Verðmæti útfluttra sjávar-
afurða hefur aukist frá því í
fyrra um 40,6%. Nær aukningin
til allra flokka sjávarafurða
nema hertra afurða, en útflutn-
ingur þeirra hefur dregist stór-
lega sam'an. Verðmætaaukning-
in er mest í mjöli og lýsi, um 1,2
milljarðar króna; aukningin í
frystum afurðum er um 700
milljónir króna; verðmæta-
aukning saltaðra afurða er um
600 milljónir króna; og niður-
lagðra og niðursoðinna afurða
um 400 milljónir króna.
Samsvarandi aukning hefur
orðið á útflutningsmagni sjáv-
arafurða, nema hvað útflutning-
ur frystra afurða hefur dregist
saman um 5000 tonn. Heildar-
magnaukningin nemur um
36,3%.
Mest hefur verið flutt út til
Bandaríkjanna, fyrir um 2,4
milljarða, næst mest til Sovétríkj-
anna, fyrir um 1 milljarð, og
síðan til Bretlands, fyrir um 900
milljónir.
Heildarútflutningur þjóðar-
innar fyrstu sex mánuði ársins
nam um 10,7 milljörðum króna,
en þar af nam útflutningur sjáv-
arafurða um 7,7 milljörðum.
Tölurnar eru frá Fiskifélagi
íslands.
Eimskip leigir
nýtt gámaskip
■ Eimskip hefur nú tek-
ið á leigu til eins árs,
gámaskip frá breska fyrir-
tækinu Ellerman City, og
hefur Eimskip kauprétt á
skipinu. Skipinu hefur ver-
ið gefið nafnið Laxfoss og
er það systurskip Bakka-
foss og City of Perth, sem
Eimskip hefur einnig á
leigu frá sama fyrirtæki.
A Laxfossi verður ís-
lensk áhöfn og er gert ráð
fyrir að skipið verði af-,
hent Eimskip í byrjun
september. Ákvörðun um
að taka skipið á leigu var
tekin vegna þess að flutn-
ingar milli Evrópu og
Bandaríkjanna hafa lofað
góðu, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu.
Með tilkomu Laxfoss mun
flutningsgetan milli Evr-
ópu og Bandaríkjanna
aukast um 50 af hundraði.
Framkvæmda-
stjóri SÍA
■ Sólveig Ólafsdóttir,
lögfræðingur, hefur frá og
með 1. september verið
■ Sólveig Ólafsdóttir.
ráðin framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra auglýs-
ingastofa. Sambandið telur
ellefu aðildarfyrirtæki.
Sólveig Ólafsdóttir lauk lög-
fræðiprófi frá Háskóla íslands
árið 1982 og meistaragráðu frá
Harvard háskóla ári seinna. í
framhaldsnámi sínu lagði Sól-
veig megináherslu á höfunda-
rétt, samningatækni og sátta-
störf.
Sólveig starfaði hjá Ríkisút-
varpinu frá 1970 til 1975, en
hefur að undanförnu starfað
hjá menntamálaráðuneytinu.
Hún á sæti í höfunéaréttarnefnd
og er varaformaður UNESCO
nefndarinnar. Sólveig var for-
maður Kvenréttindafélags ís-
lands 1975 til 1981.
Forstöðumaður
kynningardeildar
■ Stefán Halldórsson tók
þann 1. ágúst við forstöðu nýrr-
ar kynningardeildar Arnarflugs.
Deildin sér einkum um sam-
skipti við fjölmiðla, auglýsinga-
mál og ýmis konar útgáfustarf-
semi.
Stefán Halldórsson er 34 ára
og þjóðfélagsfræðingur að
mennt. Hann hefur starfað m.a.
sem blaðamaður og kennari.
Hann hóf störf hjá Arnarflugi
fyrir sjö árum og hefur unnið að
flugrekstrar- og starfsmanna-
málum og nú síðast í markaðs-
deild. Hann er kvæntur Lilju
Jónasdóttur og eiga þau tvær
dætur.
■ Stefán Halldórsson.
Áhaldaleiga Suðurnesja:
Nýpng í vinnslu
sti isteypugólfa
■ Um þessar mundir stendur
yfir kynning á nýjung í slípingu
og niðurlögn á steinsteypugólf-
um. Pað er Áhaldaleiga Suður-
nesja í samvinnu við Nýborg
hf. sem að kynningunni
stendur. Nýjung þessi felur
það m.a. í sér að þornunartími
á steypunni er mun styttri og
vinnst við það mikill tími.
Múrarar geta því lokið við 400
m‘ á átta klukkustundum í stað
þrjátíu klukkustunda áður.
Mun þetta jafnframt fela það í
sér að yfirborð steypunnar nær
auknum styrkleika og í það er
unnt að blanda efnum sem
koma í stað yfirborðsmálunar.
■ Sýnishorn af notuðum pappír sem tekinn verður til endurvinnslu í hinu nýja fyrirtæki, Hirngrás h.f. NT-mynd: Róbcrt.
Ný starfsemi hérlendis:
Endurvinnsla á pappír
■ Stofnaö hefur verið nýtt
fyrirtæki, Hringrás h.f.,
sem annast mun endur-
vinnslu á pappír og er fyrsta
fyrirtæki sinnar tegundar
hérlendis. Hringrás h.f.,
sem stofnað var í marz
síöastliönum, er dótturfyr-
irtæki Sindra-Stáls og hefur
fyrirtækið þegar komist inn
á markað í Hollandi með
vinnslu sína.
Á blaðamannafundi sem
haldinn var í gær til að kynna
starfsemi fyrirtækisins, kom
fram að hingað til lands eru
árlega flutt um 30-40 þús. tonn
af pappír og er þá frátalinn
umbúðapappír ýmisskonar. Er-
lendis mun unnt að ná um 40%
nýtingu pappírsins í endur-
vinnslu en Hringrás h.f. mun
stefna að því að ná um 10-15%
nýtingu með þeim tækjakosti
sem fyrir hendi er. Engu að
síður telur fyrirtækið sig geta
sparað verðmæti að upphæð
13-14 milljónir króna.árlega.
Þegar hefur verið lagður
grunnur að söfnunarkerfi, sem
vonir standa tilað komist fljót-
lega í gagnið, og fyrsta salan á
endurunnum pappír hefur þeg-
ar átt sér stað. Var þar um að
ræða úrgangspappír frá Morg-
unblaðinu, sem notaður var sem
blöndunarefni við fræ og áburð,
og landgræðslan hefur þegar
dreift yfir ógróin landsvæði.
Ný verslun
í miðbænum
■ Ný verslun hefur nú verið
opnuð að Hafnarstræti 9, þar
sem áður var bókaverslun Snæ-
bjarnar. Það er JK-verslunin
INGRID sem sérhæfir sig í
prjónagarni og fataefni ásamt
tilheyrandi smávörum, sem nú
er flutt í húsnæðið.
Mosfellssveit:
B.Í. opnar nýja
umboðsskrifstofu
■ Brunabótafélag Island
hefur opnað nýja umboðs-
skrifstofu í Búnaðarbanka-
húsinu að Þverholti í Mos-
fellssveit við hátíðlega
athöfn. Voru þar saman
komnir forystumenn sveitar-
félagsins ásamt fleiri gestum,
og Ingi R. Helgason ávarpaði
samkomuna. Rakti hann
hlutverk Brunabótafélagsins
að fornu og nýju og gat þess
að á síðustu árum hefði um-
boði félagsins verið sinnt á
sjálfri hreppsskrifstofunni
þó nú hefðu allir orðið ásáttir
um að koma á persónulegri
umboðsmennsku aftur.
Umboðsskrifstofan er
opin frá kl. 12.00 til 16.00
hvern virkan dag.