NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 28.08.1984, Qupperneq 8

NT - 28.08.1984, Qupperneq 8
Vettvangur Þriðjudagur 28. ágúst 1984 8 - eftir Friðjón Guðröðarson, sýslumann Austur-Skaftafellssýslu Það þarf hugarfarsbreytingu ■ Á undanförnum árum hafa borist til landsins og eru seld í vaxandi mæli hér, svonefnd torfærumótorhjól. Um er að ræða gríðarlega öflug tæki, sem fara nánast yfir allt á landi, jafnt fjallshlíðar, sem annað torleiði, að undan- skildum vötnum. Tæki þessi valda ótrúlega miklum gróðurskemmdum, en þar sem afli þeirra er beitt sneiða þau í sundur gróður- svörðinn líkt og hárbeittur hnífur. Eftir skamman tíma mynd- ast svo vatnsrás og í kjölfarið uppblástur, eyðilegging jarð- vegs og gróðurlendis. Þessi tæki eru snöggtum að- gangsharðari við móður jörð, en venjulegur tveggja drifa bíll. Stjórnendur tækja þessara eru gjarnan unglingar sem skynja einungis ánægjuna, spennuna, sigurtilfinninguna, þegar hægt er að komast á fjallsins brún á örfáum mínút- um. Þau sjá ekki sárin, vita ekki hverjar verða afleiðing- arnar. Hversvegna, jú, þau hafa1 ekki fengið fræðslu eða hand- leiðslu í æsku. Við sem eldri erum höfum brugðist. Það hef- ur gleymst að innræta þessu fólki virðingu fyrir umhverfi sínu og þau kunna ekki að umgangast og njóta náttúru landsins. Heimili og skólar þurfa að gera betur. Fræðslan, handleiðslan og fordæmin er það sem hér mun best duga, eins og á fleiri sviðum. Það þarf að glæða skilning og efla áhuga landsmanna allra á náttúru Islands og skynsam- legri, ekki einstrengingslegri, náttúruvernd. Ríkisfjölmiðl- arnir þurfa að sinna þessu t'ræðslu- og uppeldishlutverki, einkum sjónvarpið. Máttur þessa tækniundurs er gífurlegur, nýtum hann. Auðvelt er að gera hér á landi skemmtilegar og jafnframt fræðandi umhverfismyndir, þar sem komið væri inn með hagnýta fræðslu í eðlilegum og jákvæðum tengslum viþ mynd- efnið. Nýta ber þá möguleika ■ Eftir skamman tíma mvndast svo vatnsrás og í kjölfarið uppblástur, eyðilegging jarðvegs og gróðurlendis. ■ Friðjón Guðröðarson til umhverfisfræðslu erskapast í útivinnu barna- og unglinga, t.d. hjá sveitarfélögunum að sumarlagi. Hæfir flokksstjórar geta gert vinnuna jákvæða og skemmtilega. Kennarar þurfa að fara með nemendur sína í vettvangsskoðun í fjöruna, um dalinn, uppá fjallið. Enginn skynjar dýra- plöntu- og stein- aríkið, nema að hluta, í grá- myglu skólastofunnar. Reglur um umgengni eru nauðsynlegar Boð og bönn, viðurlög og refsingar eru sjaldnast jákvæð- ar lausnir. Til þeirra verður þó að grípa ef um þverbak keyrir. Mun líklegra til jákvæðs árang- urs, er sú leið, þegar t.d. eru framin náttúruspjöll, að láta hinn brotlega bæta úr spjöllum. Þetta hefur aðeins verið. reynt og Náttúruverndarráð hefur mælt með þessari til- högun. Ekki verður hjá því komist að banna akstur vélknúinna ökutækja í óbyggðum utan vega eða merktra ökuslóða. Til þess að svo megi verða og líklegt að eftir verði farið, þarf tvennt til að koma. í fyrsta lagi að merktar ve'rði ökuslóðir í óbyggðum. Hins vegar að komið verði á hreyf- anlegri landvörslu einkum á Trjámaur veldur skaða í Hallormsstaðarskógi ■ Undanfarna daga liafa komið fréttir í blöðum og sjón- varpi um skaða á trjám á Hallormsstað af völdum trjá- maurs. Af þessu tilefni óskar Skóg- rækt ríkisins að koma á fram- færi eftirfarandi upplýsingum um þetta mál: I. Um er að ræða maurteg- und (stundum nefnd köngur- lingur), sem sækir á allar greni- tegundir, sem hér eru í ræktun og auk þess þin, en erlendis á fleiri barrtrjátegundir eins og lerki, furu, sýprusvið o.fl. Þetta dýr er til vandræða um allt norðurhvel jarðar. Kvikindið getur drepið tré, þegar verst lætur og eru dæmi um það, t.d. frá Bandaríkjum Norður-Anteríku og héðan frá íslandi. Það nærist á inni- haldi grænna frumna í barrnál- um, svo að þær missa lit. Tré, sem verða fyrir þessu áfalli, eru ekki nýtanleg sem jólatré næstu 3-5 árin, en ef þau haldast heilbrigð næstu árin, koma nýir sprotar með græn- um nálum og þau geta orðið jafngóð öðrum trjám sem jóla- tré. Erlendis veldur maurinn einkum tjóni á jólatrjám og plöntum í gróðrarstöðvum. 2. Fyrst varð vart við maur þennan á Hallormsstað um 1960 í greniteig, sem vaxinn var upp af plöntum innfluttum frá Noregi 1948. Hér var um að ræða stóra grenisendingu, sem var dreift víða um land, enda hefir maurinn fundist á ýmsum stöðum, en hann hefir ekki valdið verulegu tjóni fyrr en árið 1976, og svo sérstak- lega í ár. Hann er mest áber- andi á Hallormsstað og í Eyja- firði, þar sem vorað hefir snemma, sumarhiti hefir verið hæstur og úrkoma minnst, en þessir þættir virka saman fyrir viðgang hans. Eins og tíðarfari hefir verið háttað undanfarna tvo áratugi á Suður-, Suðvestur- og Vest- urlandi er ekki hætta á að maurinn valdi skemmdum á greni í þessum landshlutum, eftir því sem nú er best vitað. 3. Allur lifandi gróður er með meira og minna af lifandi sníkjudýrum, m.a. innflutt jólatré. 4. Tjón það, sem maurinn veldur nú á Hallormsstað er að umfangi sem hér segir: Hann sækir - eins og fyrr var frá greint - á allar grenitegund- ir og fjallaþin, en mjög mis- jafnlega milli tegunda og svæða í skóginum. Yfirleitt er 1-20% af trjám orðið: brúnt, en af grænum trjám er 0-50% sýkt og skemmdir á minna en 1% af blaðgrænu. 5. Á Hallormsstað, þar sem skemmdir eru 'einna mestar af völdum maursins í ár, verður minna höggvið en ella hefði orðið af jólatrjám (þaðan hafa komið um 15% af íslenskum jólatrjám síðustu árin). Sá munur verður þó væntanlega meira en bættur upp annars staðar vegna þess, hve árferði hefir að þessu leyti verið trján- um hagstætt í öðrum landshlut- um. 6. Unnið er nú að rannsókn á lifnaðarháttum og skaðsemi maursins hérlendis og vörnum gegn honum. Markmiðið er að hindra frekari skemmdir, og að geta í tíma gengið úr skugga um, hvenær plága er í aðsigi, svo að vörnum verði við komið. Sigurður Blöndal skógræktarstjóri. Dr. Jón Gunnar Ottósson, lílíræðingur. ■ Úr Hallormsstaðarskógi

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.