NT - 28.08.1984, Page 11

NT - 28.08.1984, Page 11
Þriðjudagur 28. ágúst 1984 11 Frábært popp!! Industry/Stranger to Stranger EMI/Fálkinn ■ Industry er hljómsveit sem kom mér virkilega á óvart. Fjórir piltar að westan sem spila vandað popp með bresk- um áhrifum, ósviknum bresk- um áhrifum. Peir eru lausir við öll vemmilegheitin sem ein- kenna kanann svo oft. Industry finnst mér mun betri sveit en Duran Duran til dæmis og gefa Private Lives og Spandau Ball- et lítið eftir þó tónlistin sé kannski ekki alveg eins. Styrkleiki Industry liggur í þrælsterkum lagasmíðum fé- laganna fjögurra og snyrti- legum útsetningum. Allt sem heitir að yfir-útsetja fyrirfinnst ekki, heldur passar allt eins og flísf... (þiðvitiðhvaðégávið). Þetta eru fögur orð sem Industry fær úr barka mínum en það er líka allt í lagi. Ég þrælfíla plötuna þeirra nýju, Stranger to Stranger, því hvað er skemmtilegra en gott, vand- að og áheyrilegt popp. Shangri-La heitir fyrsta lagið og finnst mér það besta lagið. Þar syngur bassistinn Rudy Perrone og hann hefur rödd svipaða Leo Sayer og lagið er yndislegt vægast sagt og dulúð- ugt. Pá koma fjögur lög. Fyrst Communicat og þá All I need is you bæði ágætis poppflugur. Stranger in a strange land og Living alone too long eru enn betri. Pað er áberandi hvað lögin eru vel byggð upp. Milii- kaflar snyrtilega gerðir og hvíla vel eyrun fyrir húkkunum sem eru hver öðrum betri. Still of the night er fyrsta lagið á hlið 2 og það hefur verið vinsælt í Evrópu held ég og ekkert skrýtið. Until we're together og Romantic Dreams eru hvort tveggja original smellir og ekki síður síðustu tvö lögin. What have I got to lose og State of the nation sem er þrusulekkert, ha??? Ég vona heitt og innilega að íslendingar opni augu og eyru fyrir hljómsveitinni Industry. Þetta er popp eins og það best gerist. Gott til að hlusta á. Gott í partý og frábært á klósettið. Allir upp með budduna og finna rauða seðilinn og svo er bara að vinda sér í næstu hljómplötubúð og biðja um „nýjustu plötuna" með Indu- stry. Ekkert múður. Petta er klassi... Jól. (8 af 10) Ljúft jasspopp Sade - Diamond Life Epic/CBS ■ Sú plata sem undanfarið hefur verið efst á lista á breska vinsældarlistanum heitir Dia- mond Life. Það er söngkonan Sade Adu sem syngur á þessari plötu ásamt með hljómsveit sinni, sem í eru þeir Stuart Mathewman, saxafón- og gít- arleikari, Andrew Hale hljómborðsleikari og Paul S. Denman bassaleikari. Auk þess eru 1 ýmsir sessionmenn til aðstoðar með áslátt og blást- urshljóðfæri. Líklega hafa ýmsir heyrt lag Sade, Your Love Is King, og jafnvel lagið Smooth Operat- or. Bæði þessi lög voru komin út á litlum plötum áður en sú stóra kom út, og um leið og hún kom’ut kom lagið When Am I Going To Make A Living út á lítilli plötu. Peir sem hafa heyrt þessi lög vita að tónlist Sade er mjög ljúf jass-popp- tónlist. Klisjan um reykfyllta næturklúbba 5. áratugarins hefur oft verið notuð til að lýsa andrúmsloftinu í þessum lögum, og á eins vel við hér. Rödd söngkonunnar fellur frábærlega vel að þessari tónlist, þetta er frekar djúp, mjög tjáningarrík rödd, sem er bæði vel öguð og falleg. Þetta er ein af þeim plötum sem manni finnst að hafi alltaf verið til. Hún byggir á langri skila, þetta er í senn klassískt og nútímalegt útlit, og jafn- framt mjög persónulegt. Það sama má segja um tónlistina, hún er klassísk, nútímaleg og persónuleg. Bestu meðmæli. ÁDJ (8 af 10) Fyrsta lagið heitir Get it out of your head og ku vera eftir- fari Súsönnu á vinsældarlist- um. Það er gott lag og grípandi í sing a long stíl og með léttum reggí fíling en hann er áber- andi í þessari grænu plötu. Þá kemur lagið I don’t wanna be without you ekki jafn gott en gaman að notkum harmónikkunnar, rétt eins og í næsta lagi sem er einmitt Súsanna. Á eftir Súsönnu kem- ur Maríanna, lagið Marianne. Nokkuð grípandi en ekkert rosalega katsjí. A life like yours er síðasta lagið á hliðinni og það er hundleiðinlegt. Enn er reggíið skammt undan. I can see a future startar hlið tvö og er í þessum You can’t hurry love Motown bíti sem ég hef alltaf fílað vel. Maybe Tomorrow er mjög líkt Súsönnu og reyndar í alveg sama bíti framan af en ekki jafn grípandi. Restin á plötunni er svo sem ekki neitt, svipað og allt hitt og litlar breytingar í útsetningum sern eru frekar einhæfar plötuna í gegn. Söngvarinn Nol Havens hefur ágæta rödd en full ein- hæfa. Hann er eini maðurinn sem syngur á plötunni og gefur það henni einhæft yfirbragð. Sem fyrr segir er þetta fyrst og fremst partý plata og þá er nú ekki mikið pælt í útsetningum. Sem slík er hún fín, en frum- legheitin eru auðvitað víðs fjarri. Jól. (5 af 10) um angistarfull sálarstríð. Tónlistin nálgast oft á tíðum popp, en heldur sig þó fyrst og fremst að vera rokk. Samanborið við Crocodiles er þó þessi plata síðri. Á Crocodiles var mikil spenna innan um allan léttleikann. Ocean Rain sýnir hljómsveit sem er orðin mjög örugg með sig, kann sitthvað fyrir sér og notar það vel, en hér er frekar um að ræða verklagni iðnaðar- mannsins en sköpunarkraft listamannsins. í heild má þó tvímælalaust segja að hér sé um mjög þægi- lega og áheyrilega plötu að ræða. Strengir og órafmagnað- ir gítarar eru mikið notaðir, og bæði verið gefin út á litlum plötum, sem og Silver. Silver er líka mjög gott lag, og mörg önnur lög eru góð og skemmti- leg. Miðað við Porcupine þá er þetta skemmtilegri plata, af- slappaðri og betri. Það er kannski of mikið að segja eins og ég sagði áðan að þetta sé fyrst og fremst iðnaðartónlist, þetta er engin klisjutónlist hcldur vel gerð og frumleg popptónlist. En miðað við tvær fyrstu plötur hljómsveitarinnar er þetta nærri því slappt, það vantar þann neista sem þar var. Echo & The Bunnymen sýna þó með þessari plötu að þeir standa nokkrum skrefum • ’ i Skemmtilegt ogafslappað Echo & The Bunny- men - Ocean Rain jasshefð. Ef nefna ætti áhrifa- valda mætti nefna Billie Holly- day, Ellu Fitzgerald og Cleo Laine, og jafnvel má oft heyra svipaða hluti og Joni Mitchell var að gera um miðbik síðasta áratugar. Platan er þó á engan hátt ófrumleg eða upptugga á gömlum hlutum. 011 lögin og textarnir eru samin af Sade og félögum hennar í hljómsveit- inni. Fyrri hliðin situr enn sem komið er fastar í vitund minni, enda eru þar öll þrjú lögin sem gefin hafa verið út á litlum plötum. Hin tvö, Hang On To Your Love og Frankie’s First Affair eru alveg jafngóð. Fyrsta lagið, Smooth Oper- ator, er fremur hresst, borið uppi af grípandi saxafóni. Your Love Is King er rólegra og gott vangalag. A hinni hliðinni eru fjögur lög, og fyrsta lagið á þeirri hlið, Cherry Piem er sísta lag plötunnar. Hin þrjú eru í sama klassa og fyrri hliðin, allt sam- an fljótandi ljúfar jasspopp- ballöður. Ekki spillir útlit söngkon- unnar fyrir, það er sérstætt og fagurt. Manni finnst eiginlega að engin önnur söngkona hefði getað komið þessari tónlist til Dágóðí partýin Art Company/Get it out of your head CBS/Steinar ■ „Susanna I’m crazy loving you“. Þessi fleyga setning hef- ur heyrst ansi oft á öldum ljósvakans á undanförnum sól- ardögum hér fyrir sunnan og líklega víðast hvar um foldina fögru. Susanna, Susanna. Þetta lag er flutt af hollenskum piltum sem saman skipa hljóm- sveitina Art Company. Felldur var dómur yfir þessu lagi á dögunum ög var hann víst upp og ofan. Músík sú sem Árt Company flytur er hreint og klárt kántrý popp og sem slíkt er það nokkuð gott. Einhver sagði mér að Art Company væri svona Stuðmannaband þeirra Hollendinga. Það var upphaflega stofnað sem létt grín og Súsanna var tekin upp. Lagið sló í gegn svo strákarnir þurftu að taka upp fleiri lög og nú er árangur þeirra upptakna kominn í Ijós á plötunni Get it out of your head. ■ Echo & The Bunnymen hafa nú gefið út sína fjórðu plötu. Nefnist hún Ocean Rain. Hún var tekin upp í París og olli mun minni vand- ræðum en næsta plata á undan, Porcupine, sem var tekin upp tvisvar, hljómplötufyrirtækið hafnaði henni í fyrra skiptið. Söngvari Echo & The Bunnymen, Ian McCulloch, hefur mjög mikið álit á sjálfum sér og hljómsveitinni. Hann hefur m.a. lýst því yfir að þetta sé besta hljómsveit heims, og að sjálfur David Bowie skuli líta upp til þeirra. Bowie var æskuhetja Macs. Víst er að fyrsta og önnur plata hljóm- sveitarinnar, Crocodiles og Heaven Up Here, voru og eru meistaraverk innan nútíma popptónlistar, jafngóðar ef ekki betri en jafnvel bestu plötur Bowies. Porcupine var aftur á móti síðri, erfið að hlusta á (eins og Heaven Up Here) en mér tókst aldrei að finna þann sjarma sem var yfir fyrri plötunum tveimur á henni. Nú er semsagt komin sú fjórða. Að sumu leyti líktist hún meira fyrstu plötunni en hinum tveimur. Þetta er mun afslappaðri plata, hljómsveitin virðist léttleikandi og lítið er gefur það plötunni afslappað yfirbragð. Bestu lög plötunnar finnast mér vera Killing Moon og Seven Seas. Þau hafa franiar en flestir samtíðar- menn þeirra í rokkinu, svo að kannski hefur lan MacCulloch nokkuð til síns máls. ÁDJ (8 af 10) Einkunnaskali plötudóma NT: 10 Meistaraverk 9 Frábært 8 Mjöggott 7 Gott 6 Ágætt 5 Sæmilegt 4 Ekkert sérstakt 3 Lélegt 2 Afburða lélegt 1 Mannskemmandi

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.