NT - 28.08.1984, Page 23
Þriðjudagur 28. ágúst 1984 23
Utlönd
Hollenskt og belgískt
fyrirtæki freista björgunar
ágreiningur um mengunarhættu
frumbyggjum meira landi
■ Formaður Verkamannaflokks ísraels, Shimon Peres (t.h.), og
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra, heilsuðust með vingjarnlegu
handabandi þegar þeir hófu tveggja tíma fund sinn í gær.
Símamynd-POLFOTO
Sydney-Reuter
■ Land til handa frumbyggj-
um er mikið hitamál í Ástralíu
og má búast við því að það hafi
nokkur áhrif á úrslit í kosning-
unum sem þar verða líklega í
lok þessa árs.
í Ástralíu eru nú um 160.000
frumbyggjar samkvæmt opin-
berum tölum en ýmsir telja þá
mun fleiri. Þeir voru einu íbúar
landsins þegar Evrópumenn
komu þangað fyrir 200 árum en
þá er talið að frumbyggjarnir
hafi verið um 200.000 talsins.
Margir Ástralíubúar hafa
slæma samvisku yfir því hvernig
forfeður þeirra komu fram við
frumbyggjana. Þeir voru reknir
af heimaslóðum sínum og sjúk-
dómar, átök við hvíta innflytj-
endur, áfengisneysla og almenn
vesæld varð til þess að á hundr-
að árum fækkaði þeim niður í
um 60.000 manns. Síðan hefur
þeim fjölgað aftur en kjör
margra þeirra eru samt ennþá
mjög bág.
Verkamannaflokkurinn, sem
nú fer með stjórn í Ástralíu,
hefur lofað að bæta fyrir það
óréttlæti sem frumbyggjarnir
hafa orðið að þola. Þetta ætlar
flokkurinn m.a. að gera með
sérstökum lögum um landrétt
frumbyggja á svæðum þar sem
þeir hafa hefðbundin heim-
kynni. Sem stendur eru um 6%
af áströlsku landi í eigu frum-
byggjanna sem eru aðeins um
1% af íbúum Ástralíu. En meiri-
hluti lands þeirra er hrjóstrugt
og illbyggilegt.
í norðanverðri Ástralíu hafa
nú þegar verið sett landréttarlög
svipuð þeim sem stjórnin vill að
verði sett fyrir allt landið.
Norðursvæðin eru ntjög
strjálbýl og um 24% íbúanna
þar eru frumbyggjar. Á undan-
förnum átta árum hafa frum-
byggjar notfært sér landréttar-
lögin til að kasta eign sinni á um
30% alls lands í umræddu fylki.
Gagnrýnendur landréttarlag-
anna halda því fram að þau gefi
frumbyggjum allt of mikil rétt-
indi þótt lögin gefi þeim aðeins
rétt á því að setja fram eignar-
kröfu. til lands í eigu ríkisins.
Námafyrirtæki hafa verið
rnjög hörð í gagnrýni sinni á
landréttarlögunum. Þau segja
að lögin hindri þróun námaiðn-
aðarins og komi í veg fyrir
rannsóknir á ýmsum svæðum
sem séu rík af jarðefnum.
Þrátt fyrir þessa gagnrýni
endurtók forsætisráðherra
Ástralíu, Bob Hawk, nýlega
loforð flokks síns um að land-
réttarlögin yrðu sett, Leiðtogi
stjórnarandstæðinga, Andrew
Peacock, hefur hins vegar sagt
að ríkisstjórn undir forsæti hans
muni afnema slík lög ef þau
verða sett.
við farþegaferju.
Talsmaður hollenska fyrir-
tækisins sagði að byrjað yrði að
kanna aðstæður til björgunar í
dag, þriðjugdag, en takmarkið
væri að ná á þurrt bæði farmi
skipsins og eldsneytisbirgðum
þess. Hins vegar er talið líklegt
að skipinu sjálfu verði ekki
hægt að bjarga. Það voru eig-
■ Á fjöru á mánudaginn sást
flakið af franska flutninga-
skipinu Mont Louis, sem flutti
240 tonn af citruðu úraníum-
hexaflúrídi, greinilega. Inn-
fellda mvndin var tekin i
frönsku hafnarborginni Le
Havre í fyrra og sýnir geyma
svipaðrar tegundar og þá sem
sukku með Mont Louis.
Símamynd-POLFOTO
endur Mont Louis sem leituðu
eftir því við hollenska fyrirtækið
að það tæki að sér að bjarga
farminum að tilmælum franskra
stjórnvalda.
Víða velta menn því nú fyrir
sér hver hætta stafi af farmi
franska skipsins, um 240 tonn-
um af úraníum-hexaflúrídi, sem
eru í þrjátíu geymum á þilfari
skipsins. Enn hafa ekki fundist
nein merki um óeðlilega geisla-
virkni á svæðinu og franski um-
hverfismálaráðherrann, Hug-
uette Bouchardeau, sagði í
sjónvarpsviðtali í gær að meiri
hætta væri á „hefðbundinni
efnamengun'" en geislavirkni.
Hins vegar lýsti talsmaður unt-
hverfisverndarsamtakanna
Greenpeace í París því yfir, að
hætta væri á mikilli sprengingu
ef vatn kæmist að úraníum-hexa-
flún'dinu með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum fyrir lífríkið á svæð-
inu, jafnt ofan sjávar sem
neðan. Hann andmælti einnig
þeirri kenningu franskra sér-
fræðinga að geymarnir geti legið
óskaddaðir á hafsbotni í heilt ár.
Franska skipið var á leið með
farm sinn til Sovétríkjanna þar
sern úraníum-hexaflúrídið er
blandað til að auka kjarnkleifni
þess. Þessi viðskipti fara fram í
krafti samnings sem undirritað-
ur var milli Frakka og Sovét-
manna árið 1973 og síðan
endurnýjaður fram til ársins
2010fyrirtveimurárum. Ástæð-
urnar fyrir þessum samskiptum
ríkjanna á sviði kjarnorku munu
fyrst og fremst vera tvær -
hagstætt verð í Sovétríkjunum,
auk þess sem Frakkar vilja forð-
ast það að verða of háðir einu
ríki í kjarnorkumálum. Frakkar
hafa einnig gert svipaða samn-
inga um vinslu úraníums við
Bandaríkin.
Talið er að hinn geislavirki
farrnur sé enn tryggilega fastur
á þilfari skipsins, sem liggur á
fimmtán metra dýpi um tíu
mílur frá hafnarborginni Ost-
ende.
Kólombía:
Kanada:
Hundar rifu hönd
París, Rotterdam - Reuter
■ Hollenska björgunarfyrir-
tækið Smit Tank lýsti því yfir í
gær að það hefði í félagi við
belgíska fyrirtækið Union de
Remorquagé et de Sauvetage
tekið að sér það verkefni að
bjarga farmi franska flutninga-
skipsins sem sökk undan strönd
Belgíu um helgina eftir árekstur
af tíu ára dreng
Fær 160 milljónir I skaðabætur
■ Hæstiréttur í Bresku Kól-
umbíu í Kanada hefur fallist á
skaðabætur, sem samtals geta
orðið allt að 7 milljónir kanad-
ískra dollara (um 168 milljónir
ísl. kr.), séu hæfilegar bætur til
tíu ára drengs sem missti hægri
hönd sína eftir að tveir Rott-
weilerhundar ráðust á hann árið
1982.
Rétturinn staðfesti þannig
dómsátt sem eigendur hund-
anna gerðu við foreldra
drengsins. Drengurinn, sem
heitir Shawn Fraser, mun fá
bætur sínar greiddar í föstum
greiðslum.
Á 19 ára afmælisdegi sínum
Israel:
Gefast ekki upp
Jerusalem-Reuter
■ Formaður Verkamanna-
flokks ísraels, Shimon Peres og
Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra, hafa enn ekki gefist upp
við stjórnarmyndunarviðræður
sínar, þótt þær gangi brösug-
lega.
Eftir tveggja tíma fund í
gærkvöldi, þar sem þeir ræddu
um stofnun þjóðstjórnar, sögðu
þeir fréttamönnum að það væri
hugsanlegt að stofna slíka sam-
steypustjórn þótt eining næðist
ekki að öllu leyti um stefnu
hennar. Peres sagði að þeir
hefðu meðal annars rætt um
leiðir til að setja upp ríkisstjórn
sem væri starfhæf þótt mismun-
andi skoðanir væru uppi innan
hennar. Hann sagði samt að
enn væri nauðsynlegt að halda
marga fundi leiðtoga Verka-
mannaflokksins og Lik-
udbandalagsins áður en stofnun
slíkrar stjórnar væri möguleg.
Bæði Peres og Shamir sögðu
að nú þegar hefði náðst sam-
komulag í nokkrum mikilvæg-
um málum.
fær hann 30.000 kanadíska doll-
ara (um 720.000 ísl. kr.) og
síðan fær hann mánaðarlega
sem svarar um 70.000 ísl. kr. í
að minnsta kosti 30 ár.en síðan
eins lengi og hann lifir.
Fyrsta greiðslan verður 3.671
kanadískur dollari en upphæð-
in mun hækka um 3% á ári til
að hún rýrni ekki vegna verð-
bólgu.
Lauslega áætlað gætu skaða-
bæturnar numið allt að 7 millj-
ónum kanadískra dollara.
Kanadískt tryggingarfélag sér
um greiðslurnar að mestu leyti
en eigendur Rottweilerhund-
anna hafa samt orðið að veð-
setja heimili sitt fyrir 25.000
kanadíska dollara.
■ Shawn Fraser missti hægri
hönd sína vegna árásar tveggja
Rottweilerhunda.
60 slasast við nautaat
Bogota-Reuter
■ Nautaat er ekki aðeins
hættulegt fyrir nautabana held-
ur verða áhorfendur stundum
einnig fyrir skakkaföllum.
Næstum því 60 áhorfendur
slösuðust við nautaöt í Kólomb-
íu nú um helgina.
52 slösuðust þegar áhorfenda-
stæði hrundi í Tocaima-borg
sem er 100 km fyrir suðaustan
Bogota og sjö mann slösuðust í
svipuðu slysi í Firavitoborg sem
er fyrir norðan höfuðborgina.
Bandaríkjamet í fangelsun
Washington-Rcuter
■ í lok júnímánaðar munu
hafa verið 454.136 fangar í
bandarískum fangelsunt. Að
sögn 'talsmanns Bandaríkja-
stjórnar er það met og hefur
föngum fjölgað um nær fjögur
prósent frá árslokum 1983.
Flestir eru fangarnir í Kaliforn-
íu, Texas, New York og Flór-
ída, eða samanlagt þrjátíu og
þrjú prósent allra fanga í
Bandaríkjunum.
Sovétmenn sprengja
Washington-Reuter
■ Bandaríkjamenn
skýrðu frá því í gær að
þeir hefðu orðið varir við
jarðhræringar sem virtust
koma frá tilraun Sovét-
manna með kjarnorku-
vopn.
Jarðhræringarnar áttu
upptök sín norðarlega í
miðjum Sovétríkjunum.
Ástralíustjórn heitir