NT - 03.11.1984, Page 2
Laugardagur 3. nóvember 1984 2
Orlof opinberra startsmanna
skert og þeir hýrudregnir?
■ Þar sem fjöldi orlofs-
daga sem vinnuveitandi
þarf að greiða starfs-
mönnum sínum miðast við
hlutfall af unnum
starfstíma þeirra á orlofsár-
inu geta þeir sem nú hafa
verið frá vinnu vegna verk-
falls frá einum og upp í
hálfan annan mánuð átt á
hættu að missa 2-3 greidda
orlofsdaga sumarið 1985.
Spurður, sagði Indriði H.
Porláksson, deildarstj. launa-
deildar fjármálaráðuneytisins
enga sérstaka samninga varð-
andi orlofið 1985 hafa verið
gerða í sambandi við nýgerða
kjarasamninga BSRB, en rætt
um að taka þetta atriði til athug-
unar síðar. Svo langt verkfall
hafi aldrei komið til hjá ríkinu
fyrr og því ekki áður þurft að
taka afstöðu til orlofsskerðing-
ar. Of snemmt sé því að fullyrða
neitt um það hvort til slíks muni
koma.
Indriði var jafnframt spurður
hvort laun sem greidd voru fyrir
dagana 1. til 3. október verði
dregin af þeim ríkisstarfs-
mönnum sem lögðu niður vinnu
þessa daga, þ.e. áður en til
verkfalls kom. „í rauninni
höfum við engar upplýsingar í
höndunum til að meta þetta mál
og ég á ekki von á að afstaða
verði tekin til þess fyrr en það
kemur frá forstöðumönnum
stofnana hvort um óheimilar
fjárvistir var að ræða. Þetta
hvílir á forstöðumönnum við-
komandi stofnana“.
Skriður kominn á samningamál Alþýðusambandsins:
VSÍ bauð í gær 19.5%
■ Samningafundi ASÍ og
VSI var frestað um kvöld-
matarieytið í gærkvöldi, sam-
kvæmt ósk VSÍ sem vildi taka
sér tíma til frekari umhugsunar
og útreikninga. VSÍ lagði í gær
Kirkjuþing:
Kirkjan svikin um stórfé
- innheimtulaun ríkisins 6% í stað 1%
■ „Kirkjan gæti ráðið 15 til 20
manns til nauðsynlegra þjónustu-
Úrslit frá Ólympíu-
mótinu í bridgs
j2. Umferð:
ísland - Sameinuðu arabisku
furstadæmin 24-6
13. Umferð:
fsland - Indónesía 7-23
14. Umferð:
ísland - Þýskaland 8-22
15. Umferð:
ísland - Ítalía 14-16
Eftir 15 umferðir er ísland
með 235 stig og líklega í ellefta
sæti. Indónesía er í efsta sæti í
b-riðli með 285 stig.
Næstu andstæðingar íslend-
inga vcrða Guadeloupe og
írland.
starfa fyrir það fé sem hún of-
borgar til innheimtumanna ríkis-
sjóðs fyrir innheimtu kirkju-
gjalda og kirkjugarðsgjalda",
sagði Halldór Finnsson á Kirkju-
þinginu í gær. Umræður fóru
fram um breytingu laga um
kirkjugarða en samkvæmt þeim
fá innheimtumenn 6% fyrir inn-
heimtuna. Er það hæsta inn-
hcimtuprósenta í gildandi lögum.
Dómprófasturinn í Rcykjavík
hefur fcngið samþykki fjármála-
ráðherra ogborgarstjóra áþví að
gjaldheimtan í Reykjavík taki
aðeins 1% innheimtugjald fyrir inn-
heimtu þarog tckur það gildi um
næstu áramót. 5% af kirkjugarðs
og kirkjugjöldum sem telja má
ofborguð jafngilda tvöfaldrí
þeirri upphæð sem veitt er til
kirkjustjórnarinnar og þrefaldari
þeirri upphæð sem fer til starfssjóðs
kirkjunnar. 1 frumvarpinu sem
Veturinn að taka
völd í Skagafirði
Frá Erni Þórarinvsyni fréllaritara NT í
Fljótum:
■ Vetur er nú að taka
völdin í Skagafirði eftir
langt og gott sumar. Alhvítf’
er um allt héraðið og hálka
mikil á vegum. Það byrjaöi
að snjóa s.l. sunnudag og á
mánudag var slydda í
SamiðáSel-
tjarnarnesi
■ Samkomulag náðist
síðdegis í gær á milli
sveitarstjórnarmanna á
Seltjarnarnesi og stjórnar
starfsmannaíélagsíns á
staðnum um nýjan aðal-
kjarasamning mili aðila.
Er hann samhljóða þeim
samningi sem Reykjavík-
urborg gerði við starfs-
menn sína fvrr í vikunni.
liggur fyrir Kirkjuþinginu er gert
ráð fyrir 1% innheimtulaunum.
Af öðrum málum Kirkjuþings
má nefna að rætt var um stofnun
bókhlöðu í Skálholti yfir hið
stórmerka bókasafn Þorsteins
Dalasýslumanns sem geymt er í
turni kirkjunnar. Fram kom að
Árnes-, Rangár-, Skaftafellssýsl-
ur og Selfossbær hafa veitt fé til
byggingarinnar. Þá ræddu menn
þjónustu við aldraða í höndum
kirkjunnar og stöðu sjúkrahúss-
prests. Staða hans var sett í lög
fyrir 14 árum en ennþá hefur
ekki fengist fjárveiting til þessar-
ar stöðu.
fram hugmynd að samningi
sem metinn var á um 19.5%,
en í ASI liðinu töldu menn enn
vanta nokkuð upp á samning
er væri jafnvirði þess er BSRB
hefur fengið. Gerðu ASÍ-
samningamenn ýmsar athuga-
semdir við samningsdrögin.
Þá er enn ágreiningur með
samningsaðilum m.a. um
bónussamninga. Um lOverka-
lýðsfélög eru með bónus-
samninga sína lausa eða að
losna nú alveg á næstunni og,
telja þau sig hafa 2 ára
gamalt loforð fyrir endurnýjun
þeirra. Samkvæmt heimildum
NT vill VSÍ hins vegar enn
fresta þeirri endurskoðun og
fá bónussamningana óbreytta
inn í það samkomulag sem nú
verður gert.
Skagafirði og er það aðal
orsökin fyrir hálkunni.
Nokkuð hefur verið um útaf-
keyrslur síðustu daga en
ekki orðið slys á fólki, að
sögn lögreglunnar á Sauð-
árkróki. Hins vegar er all
mikið um að bílar séu iilla
búnir til vetrarakstuis.
Vegurinn til Siglufjarðar var
orðinn ófær fólksbílum en var
ruddur á föstudag. Lágheiðin,
milli Ólafsfjarðarog Fljóta. hef-
ur verið góð allt fram að þessu
og er það óvanalegt á þessum
árstíma og sýnir vel hve haustið
hefur verið gott.
Lít'ið hér í Skagafirði er nú að
komast í eðlilegt horf eftir
vcrkfall BSRB og langvarandi
útvarps- og sjónvarpsleysi.
Skólarnir hér hófu yfirleitt
kennslu á miðvikudag, nema í
Varmahlíð þar sem kennsla
hófst á fimmtudagsmorgun.
Nokkuð var farið að bera á
vöruskorti í verslunum. Einkum
munu tóbaksbirgðir hafa verið
á þrotum.
Vinnur
kauplaust ■■■
■ Oft er talað um hinn
samviskulausa bílífa em-
bættismann sem hreiðrar um
sig í einhverri valdastofnun-
inni með æviráðningu og ger-
ir svo ekkert meir. Nema þá
að bíða eftir því að komast á
eftirlaun.
En þeir eru ekki allir þessu
marki brenndir. Þær reglur
eru hér í gildi að hæstaréttar-
dómarar og ríkissaksóknari
geta hætt störfum 65 ára en
haldið fullum launum.
Þeir geta líka unnið áfram
en fá að sjálfsögðu ekkert
upp úr krafsinu. Þess eru því
fá dæmi. Það vakti því at-
hygli Dropa þegar okkur var
bent á að Þórður frændi
Björnsson ríkissaksóknari er
fæddur 1916 og varð því 68
ára á þessu sumri. Enn liefur
ekkert heyrst frá Þórði þess
efnis að liann hyggist hætta
en hann er Iíklega eini opin-
beri starfsmaðurinn sem
vinnur af hreinni hugsjón,
vinnur kauplaust.
Tii gamans þá var Þórður
einmitt nýbúinn aó ná aldri
þegar frændi hans úr Skaga-
firöinum. Úlfar Þormóðsson
hóf útgáfu Spegilsins. En þar
skjátlaðist þér Ulfar ef þú
ætlaðir að stíla upp á að
frændi þinn yrði orðinn
valdalaus þegar þú gerðir
árásir á andlega heill góð-
borgaranna.
■ Einn opinberra starfs-
manna vinnur Þórður sitt
starf kauplaust. Annað en
verkfallsgleði undirtyllanna.
■ Á morgun gengst ferðaskrif-
stofan Farandi fyrir Vínarkvöldi
á Hótel Sögu, ásamt Gildi hf.
Á skemmtuninni koma fram
þau Gabriele Salzbacher,
sópran, Friedrich Springer, ten-
ór og Norbert Huber undirleik-
ari.
Tónlistarfólkið, sem kemur
frá Vín og nágrenni, mun flytja
léttklassiska músik eftir Mozart,
Lehar, Strauss o.fl.
Að sögn Haraldar Jóhanns-
sonar, eiganda Faranda, hefur
ferðaskrifstofan Farandi staðið
fyrir vorferðum til Vínar nokk-
Kennslutap ■■■
■ Uppákomur af völdum
verkfallsins eru margskonar.
í einum framhaldsskóla á
höfuðborgarsvæðinu voru
tveir líffræðikennarar sem
báðir kenndu samskonar
bekkjum sama námsefni.
Annar í BHM og hinn í
BSRB. Nú fór BSRB-inn í
verkfall og því féll öll líf-
fræðikennsla niður í hans
hópi. Til þess að ekki kæmi
til óeðlilegs miræmis og
vandræða við próftöku hætti
BHM kennarinn líffræði-
kennslu í sinni bekkjardeild
á meðan verkfallið stóð yfir.
En nú er kornið babb í
bátinn. Skólastjórinn fer
fram á fjárframlag frá Ragn-
hildi til þess að allir BSRB
kennarar megi kenna á laug-
ardögum og vinna þannig
upp kennslutapið. Þar með
yrði BSRB bekkjardeildin
komin með laugardags-.
kennslu í líffræði. Þá er lík-
lega ekki annað fyrir BHM-
inn að gera en að kenna líka
á laugardögum - kauplaust
því fyrir þessa líffræðitíma
hafði hann þegar fengið
borgað. Nú eða kannski að
við treystum á að Ragnltildur
fari ekki að sólunda fé til
handa uppreisnarliðinu í
BSRB.
HiH
MMHH
á morgun
ur síðastliðin vor og vonast til
að þær ferðir geti orðið árvissir
atburðir.
Á blaðamannafundi í gær
sagði tónlistarfólkið að Island
væri mjög frábrugðið Vín.
„Stórkostlegt" sagði Gabriele,
„mjög áhrifaríkt, trén í Vín eru
í haustskrúða en hér sjást ekki
tré.“
í dag heldur ferðaskrifstofan
samskonar skemmtun á Akur-
eyri, í Sjallanum, en eins og
áður segir verður skemmtunin
á sunnudagskvöld hér á Hótel
Sögu. Miðaverð er 960, og þar
innifalið er matur.
Stúlka
fannst
■ 18 ára stúlka týndist í hlíð-
um Esju síðdegis í gær. Hún
fannst eftir tæplega tveggja tíma
leit, heil á húfi. Auk lögreglu
voru fjórar hjálparsveitir kall-
aðar út til leitarinnar. Stúlkan
var í fjallgöngu með skólasyst-
kinum sínum úr Menntaskólan-
um við Sund þegar hún ákvað
að snúa við og halda niður ein
en hin héldu áfram göngunni.
Þegar hún hafði ekki komið
fram um klukkan sjö var til-
kynnt um hvarf hennar til lög-
reglunnar í Hafnarfirði og
fundu björgunarsveitarmenn
hana laust fyrir klukkan níu.
Hans í Ás*
mundarsal
■ Hans Christiansen opnar
myndlistarsýningu í Ásmund-
arsal í dag. laugardag. Þetta er
8. einkasýning Hans og á veggj-
um eru rúmlega 30 vatnslita-
myndir. Sýningin stendur til 11.
növember.