NT - 03.11.1984, Blaðsíða 29

NT - 03.11.1984, Blaðsíða 29
 ffT? Laugardagur 3. nóvember 1984 29 ll Útlönd Pólland: Glemp jarðsyngur Popieluszko í dag Varsjá-Reuter ■ Kirkjuklukkur hringdu í Varsjá í gær og þúsundir manna veittu sorg sinni útrás þegar lík Jerzy Popieluszko andófsprestsins sem meðlimir úr pólsku lögreglunni myrtu á dögunum, var flutt til Varsjár. Þar verður hann jarðsettur í dag. Sex menn báru kistu Popiel- láusar í úthverfi Varsjár, en uszkos til kirkju heilags Stanis- þar predíkaði hann oftsinnis harðlega gegn kommúnískum stjórnvöldum. Fjöldi manns gekk síðan fram hjá kistunni og utan við kirkjuna söfnuðust þúsundir saman og hengdu upp borða með tilvitnunum úr ræðum Popieluszkos og slag- orðum til stuðnings Samstöðu. Það verður Jósef Glemp kardínáli, leiðtogi pólsku kirkjunnar, sem jarðsyngur Popieluszko og er búist við því að hundruðir þúsunda streymi hvaðanæva að úr Pól- landi til að vera við útförina. Búist er við því að mannsöfnuð- urinn verði síst minni en þegar Stefan Wyszynski, kardínáli, ástsæll leiðtogi pólsku kirkj- unnar, varð jarðaður árið 1981. Meðal þeirra sem verða við- staddir úrförina er Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu. Hann hélt til Varsjár í gær frá heimili sínu í Gdansk. “ Búist við hundruðu m Þúsunda á útförina Hann hefur fordæmt morðið og ekki síður Woijiech Jarus- elski Póllandsleiðtogi. Búist er við því að morðingjar Pop- ieluszkos verði ákærðir formlega innan skamms. Þeirra gæti beðið dauðadómur. Niður- stöður krufningarinnar á líki Popieluszkos hafa ekki enn verið birtar, en talið er að stjórnvöld vilji hraða þessu máli og hreinsa sig af áburði um hlutdeild í morðinu. Umsjón: Ragnar Baldursson og Egill Helgason Skjávinna verði Genf-Reuter ■ Á alþjóðafundi verkalýðs- félaga, sem haldinn var í Genf fyrr í þessrí viku, var samþykkt ályktun þess efnis að nauðsyn- legt værí að takmarka skjávinnu þannig að hún bitni ekki á líkamlegri og andlegrí heilsu starfsmanna. Meira en 200 fulltrúar frá 20 löndum sátu þennan fund sem var skipulagður af 13 alþjóð- legum verkalýðsráðum og Al- þjóðasambandi frjálsra verka- lýðsfélaga. Fundurinn lagði til að starfsmenn skyldu ekki vinna nema hálfan vinnudag sinn við skjá þar sem slíkt væri mögulegt. Á vinnustöðum þar sem mikill meirihluti allrar vinnu væri skjávinna ætti að taka upp að minnsta kosti fimmtán mínútna hlé á hverri klukkustund ef um mikla og stöðuga vinnu væri að ræða en á tveggja stunda fresti ef skjá- vinnan væri ekki stöðug. Kosningafundur í Managua ■ í þessum mánuði verða haldnar kosningar í Nicaragua, hinar fyrstu eftir að Sandinistar tóku völdin fyrir um fímm árum. Um margt er deilt í kosningabaráttunni, þar á meðal salernispappír, en stjórnarandstæðingar hafa notað skort á slíkrí munaðarvöru óspart í árásum sínum á Sandinistastjórnina. Þessi mynd er tekin af nokkrum helstu leiðtogum Sandinista á kosningafundi í höfuðborginni Managua í vikunni. Þeir eru frá vinstri: Sergio Ramirez, Daniel Ortega, Jaime Wheelock og Bayardo Arce. símamynd-Poiraio ■ Síðan lik Jerzy Popieluszko fannst hafa pólskir skátar staðið heiðursvörð við kirju hans, Stanislaw Kostka kirkjuna í Varsjá. Þar verður hann jarðsunginn í dag. Símamvnd-POLFOTO Afganistan: Skera skærulið- ar nef af sovésk- um yfirmönnum? Moskva-Reuter ■ Sovéska dagblaðið Sotsial- isticheskaya industríya heldur því fram að uppreisnarmenn í Afganistan hafí þann sið að skera nef, eyru, höfuðleður eða fíngur af sovéskum foringjum sem þeir hafí fellt. Þetta kom fram í grein í blaðinu um hugrekki sovésks foringja sem hefði lent í árás skæruliða. Skæruliðar hefðu haldið hann látinn og hirt skil- ríki hans um leið og þeir leituðu á líkum annarra fallinna her- manna. Samkvæmt greininni óttaðist sovéski foringinn, Sasha, það þá mest að hann yrði lim- lestur þar sem skæruliðar skæru gjarnan nefn, eyru, höfuðleður eða fingur af Sovétmönnum til að sanna að þeir hafi fellt þá. Sasha slapp þó í þetta skipti en féll síðan aðeins nokkrum klukkustundum síðar í annarri árás skæruliða. Umrædd grein er ein af mörg- um sem hafa birst að undan- förnu um stríðið í Afganistan í sovéskum blöðum. I greinum þessum hefur gætt stöðugt meiri hreinskilni um gang stríðsins sem vestrænir stjórnarerindrek- ar í Moskvu segja að sé merki um að Sovétmenn telji stríðið eiga eftir að standa lengi enn. Þeir verði því að gefa þjóðinni meiri upplýsingar um það hvað sé að gerast í Afganistan og hvert hlutverk sovéskra her- manna þar sé. CIA-stjóri heldur uppi vömum fvrir handbókina Washington-Reutcr ■ Stórblaðið New YorkTim- es skýrði frá því í gær að William Casey, hinn umdeildi yfírmaður bandarísku leyni- þjónustunnar CIA, hefði hald- ið uppi vörnum fyrír handbók OPEC: Nígería fær sérmeðferð Lagos-Reuter ■ Nígeríumenn þurfa ekki að draga úr olíuframleiðslu sinni þótt önnur aðildarríki OPEC þurfí að skera niður framleiðslu sína um 8,5%. Nígeríumönnum virðist því hafa tekist að sann- færa önnur olíuframleiðsluríki um að efnahagsvandi þeirra sé það alvarlegur að þeir geti á engan hátt minnkað oh'ufram- leiðslu sína. Nígeríumenn sýndu að þeir voru ekki hræddir við að brjóta einingu olíuframleiðsluríkj- anna, er þeir töldu efnahagsmuni sína í veði, þegar þeir lækkuðu olíuverð sitt í síðasta mánuði í blóra við ákvarðanir OPEC. Nígeríumenn skulda háar fjár- hæðir erlendis, þar af skulda þeir um fimm til sex milljarða dollara í skammtímalánum sem þeir hafa ekki enn samið um greiðslufrest á þótt hluti þeirra sé gjaldfallinn. Um 95% af öllum gjaldeyristekjum þeirra koma af olíuútflutningi. OPEC féllst á að Nígeríu- menn gætu framleitt um 1,4 milljónir tunna af olíu á dag sém er örlítið meira en þeir hafa framleitt að meðaltali á undan- förnum níu mánuðum. Al- mennt er litið á þetta sem mik- inn sigur fyrir Nígeríumenn þar sem önnur olíuframleiðsluríki virðast hafa raunverulegan skilning á því hvað vandi þeirra sé mikill. fyrir uppreisnarmenn í Nicar- agua í bréfí sem hann sendi meðlimum upplýsinga og leyni- þjónustunefnda bandarísku öldunga- og fulltrúadeilda þingsins. Handbók þessi vakti mikla hneykslun fyrir skömmu, en í henni eru auðskildar hvatning- ar til stjórnarandstæðinga í Nicaragua um að ræna eða fyrirkoma embættismönnum Sandinistastjórnarinnar. Walter Mondale, forsetafram- bjóðandi demókrata, er einn þeirra sem hefur gagnrýnt handbókina harðlega og þing- nefndir hafa verið að rannsaka dreifingu hennar og hlutdeild CIA í útkomu hennar. New York TimeS hafði náð sér í eintak af bréfi Caseys og skýrir frá því að þar ásaki hann fjölmiðla fyrir að hafa blásið málið upp og að hann segi að í handbókinni sé eink- um miðað við að efla „pólit- íska vitund" skæruliða í Nicar- agua. BUNAÐARDEILD SAMBANDSINS AUGLÝSIR Varahlutaverslun okkar (Dráttarvélar h.f.) sem veriö hefur ad Suðurlandsbraut 32, er flutt að Armúla 3 (Hallarmúlamegin). Símar 38900 - 39811 - 686500 - 686320. éS BUNAÐARDEILD

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.