NT - 03.11.1984, Side 5
■ „Hvernig spyrðu? Carmen
er alltaf skemmtileg. Sýningin
er skemmtileg og hlutverkið er
mjög krefjandi. En ef þú veist,
að þú getur gert það vel, hlýtur
það að veita ákveðna fullnæg-
ingu.“
Petta sagði Sigríður Ella
Magnúsdóttir, sem syngur titil-
hlutverkið í Carmenuppfærslu
óperunnar, sem sýningar eru
hafnar á.
Pær Sigríður Ella og Carmen
eru ekki bláókunnugar mann-
eskjur. Sigríður söng hlut-
verkið um 50 sinnum í Þjóð-
leikhúsinu fyrir 9 árum. „Það
er mjög oft fyrir einn söngvara.
Margir komast ekki einu sinni
yfir það á heilli ævi. Þegar ég
söng það á sínum tíma, var
það mjög erfitt fyrir mig radd-
lega, ég var mjög ung. Núna
hentar það mér mjög vel og ég
nýt þess.“
- Er mikill munur á sýning-
Laugardagur 3. nóvember 1984 5
■ „Carmen er alltaf skemmtileg,“ segir Sigríður Ella Magnús-
dóttir, sem hér dansar flamenco af lífi og sál. NT-mynd Ámí Bjama
Sigríður Ella Magnúsdóttir:
„Carmen þolir alla meðferð"
unni í Þjóðleikhúsinu fyrir 9
árum og sýningunni núna?
„Já, þær eru mjög ólíkar.
Leikhúsin eru gjörólík. Gamla
bíó hefur ýmsa annmarka fyrir
mannmarga sýningu. Það er
ekki hægt að skipta um svið,
en það hefur að mínu viti verið
meistaralega leyst með svið-
setningu, ljósum og
sviðsmynd. Svo hefur hrein-
lega tískan breyst á 9 árum.
Maður finnur það í leikhúsi
hvernig tíminn breytist, og
kröfurnar, og það eru önnur
viðhorf.“
- Nú er mikill blóðhiti í
þessu fólki, sern verið er að
setja á svið. Hvernig tekst
ykítur að koma því til skila?
„Tónlistin stendur fyrir sínu
og maður kemur henni til skila,
og blóðhitinn felst að mestu í
því. Það er reynt að bæta það
eins og hægt er, að við erum
ekki dökk á hörund og með
svart hár. Að öðru leyti hlýtur
hver og einn að túlka Carmen,
eða hvert af öðrum hlutverk-
unum, á sinn máta. Mér finnst
persónulega fáránlegt að fara
að leika einhvern blóðheitan
Spánverja og vera með handa-
pat. Það yrði ekki sannfærandi
frá okkar hendi. En ef maður
hefur sannar tilfinningar,
hlýtur það að komast til skila
og verka á íslenska áheyrend-
ur.“
- Hvernig stendur á því, að
Carmen er svona vinsæl ópera?
„Ástæðurnar eru margar.
Fyrst og fremst vegna þess hve
tónlistin er stókostleg. Það er
hálfgert Carmenæði í heimin-
um í dag og hún þolir greini-
lega alla meðferð. Það er
hreinlega af því að efnið er
ekki gamaldags, heldur gæti
hún alveg eins gerst í nútíman-
um.“
- Heldurðu að þetta verði
vinsæl sýning hjá ykkur?
„Það er erfitt að spá um það.
En ég held, að þetta sé sýning,
sem höfðar til stórs hóps. Þetta
er upplögð ópera til að fara
með krakka á og láta þau
kynnast óperu,“ sagði Sigríður
Ella Magnúsdóttir.
■ „Frumsýningarskjálftinn
er að koma, ég fæ alveg hnút í
magann og er ferlega
stressuð“, segir Guðrún Krist-
mannsdóttir 16 ára Selfossmær
í samtali við NT, en hún treður
upp á fjölum Iðnó í kvöld í
aðalhlutverkinu í uppfærslu
Leikfélags Reykjavíkur á
„Dagbók Önnu Frank“.
„Þetta er svo einkennileg
tilfinning", segir Guðrún, „mig
dreymir á nóttinni að ég standi
uppi á sviði og muni ekkert!
Annars er búin að vera svo
mikil óvissa um frumsýninguna
útaf verkfallinu að ég hef ekki
haft tíma til að hafa áhyggjur
af þessu fyrr en núna síðustu
dagana", bætir Guðrún við og
er strax farin að tala eins og
atvinnuleikari. Hlutverk Önnu
Frank er ekki frumraun hennar
á sviði því hún lék sama
hlutverk með Leikfélagi
■ Guðrún: „Frumsýningarskjálftinn er að koma og ég fæ alveg
hnút í magann, ég er svo stressuð". NT-mynd: Róbert
Einkennileg tilfinning!
- segir Guðrún Kristmannsdóttir, 16 ára Selfossmær sem
treður upp á fjölum Iðnó í kvöld í „Dagbók Önnu Frank“
Selfoss, þegar hún var 13 ára.
- Er þetta mikið öðru vísi
en þegar þú lékst á Selfossi?
„Já, já, uppsetningin er allt
öðru vísi og vinnubrögðin
sömuleiðis. Heima þurftum
við alltaf að æfa á kvöldin og
fram á nótt, en hérna hefur
verið æft á morgnana og dag-
inn svo ég hef oftast getað hvílt
mig á kvöldin".
- Var ekkert erfitt að koma
innan um allt þetta atvinnu-
fólk?
„Nei, það fannst mér ekki.
Það hafa allir verið einstaklega
góðir við mig og þetta hefur
gengið ágætlega“.
- Höfðar boðskapur Önnu
Frank til þín?
„Ég veit það ekki. Það er
erfitt að segja, auðvitað höfðar
þetta til manns þegar maður
hefur kynnst því. Áður fyrr
voru Gyðingaofsóknirnar í
seinni heimstyrjöldinni fjar-
læguróraunveruleiki fyrir mér,
en eftir að ég kynntist Önnu
þá hef ég sóst eftir öllu því
lesefni sem ég hef getað fundið
um Gyðinga".
- Heldurðu að unglingar á
þínum aldri hugsi eins og Anna
Frank gerði?
„Nei, það held ég ekki. En
ég held líka að hún hafi verið
alveg sérstök á sínum tíma,
svo full af trú á hið góða í
öllum".
- Ertu að hugsa um að
leggja leiklistina fyrir þig í
framtíðinni?
„Ég hef ekki hugmynd um
það ennþá hvað ég ætla að
gera. Ég er í fjölbraut á Sel-
fossi núna, en leikarabakterían
hefur bitið sig í mig, þannig að
það er aldrei að vita...“
A
BÍLASMIfXJAN w
KYNDU.I.
Stórhöfða 18 II
«. Illi
Bílamálun
Bílaréttingar
Vönduð vinna
SÍMI35051
KVÖLDSÍMI
35256
DESOUTTER LOFTVERKFÆRI DITZLER BÍLALAKK
BINKS SPRAUTUKÖNNUR
Bíleigendur athugið
Við höfum margra ára reynslu í viðgerðum á mikið löskuðum
bifreiðum, þess vegna notum við eingöngu Guy Chart réttingar og
mæiitæki. Við bjóðum viðskiptavinum okkar staðgreiðsluafslátt á
. allri tækjavinnu, greiðslukjör og föst verðtilboð á allri vinnu. A
málningarverkstæði okkar notum við Ditzler málningarefni sem er
amerískt efni og sú staðreynd að General Motors og margar aðrar
amerískar bílaverksmiður nota Ditzler efni tryggir fagmönnum
árangur. Þar ætlum við líka að koma viðskiptavinum á óvart.
Við sækjum bílinn og sendum eiganda að kostnaðarlausu.
Eigum á lager Desoutter loftverkfæri, amerískar
Binks sprautukönnur og varahluti í þær og Ditzler málningarefni
stórho.fðl
funahofoi
CD HYRJARHOFOt
KTMDIIJL
Stórhöfða 18
SHIÐSHOFOI
HAMARS HÖF0J
DVERGSHÖFÐt
VAGNHOFÐI ;
TANGAR HÖF-OI j
BÍLOSHOFOI S
PARTÝ
ÍKÓPAKRÁNNI
og dansleikur í salnum.
Meiriháttar fjör á báðum stöðum.
Opið allar helgar.
Tökum einnig að okkur að sjá um veislur,
mannfagnaði og fundarhöld.
Allar veitingar.
Skelltu þér í Kópinn.
Auðbrekka 12 símar 46244 og 73120.