NT - 05.11.1984, Page 2

NT - 05.11.1984, Page 2
Mánudagur 5. nóvember 1984 2 faÚAFjöt-ni Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu: Ófremdarástand í umferðarmálum ■ Línurit yfír fólksfjölgun á höfuöborgarsvæðinu fram til ársins 2030. Þær forsendur eru gefnar að flóttinn frá lands- byggðinni haldi áfram. Efri lín- an gerir ráð fyrir óbreyttri fæð- ingartíðni en sú lægri gerir ráð fyrir lækkandi fæðingartíðni. Ibúatalan í dag er um 128 þús- und en gæti farið yfír 200 þús- und árið 2030 miðað við óbreyjta fæðingartíðni. NT-myndir: Sverrir ■ Frá aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu um helgina. Gestur Ólafsson forstöðumaður Skipu- lagsstofu höfuðborgarsvæðisins Stöðva þarf fólksflóttann frá landsbyggðinni ■ „Það var mikið rætt um umferðarmál hér á svæðinu. Þegar menn sjá þessar tölur á pappír þá hrökkva þeir við. Hins vegar hefur það legið lengi Ijóst fyrir að það þyrfti að gera verulegt átak í umferðarkerfi höfuðborgarsvæðisins og þarf ekki annað en benda á það ófremdarástand sem skapast daglega á Hafnarfjarðarveg- inum,“ sagði Júlíus Sólnes for- maður Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í samtali við NT er hann var spurður um helstu málefni á nýafstöðnum aðalfundi sambandsins á Kjar- valsstöðum um helgina. Júlíus sagði að það væri Ijóst að fara þyrfti út í verulegar framkvæmdir á næstunni ef ekki ætti að skapast ófremdarástand í umferðarmálum höfuðborgar- svæðisins. Mikil vinna hefur verið lögð í svæðisskipulag á þessu ári og er sú vinna að byrja að skila sér. Sagði hann að reiknilíkön um umferðarþunga bentu til þess að mjög víða þyrfti að bæta stöðuna. Það væri enn deilt um Fossvogs- brautina og ef hún kæmi ekki þyrfti að gera stórátak á öðrum stöðum. Þá kvað hann hafa komið fram mikla óánægju með hversu seint framkvæmdir gengju við Reykjanesbrautina og væri það fyrst og fremst vegna fjárskorts. Enda væri það svo að þegar fjármagni væri úthlutað til vegaframkvæmda þá kæmi alltaf of lítið í þeirra hlut og þingmenn Reykjavíkur og Reykjaness væru þeir einu sem ekki væru kallaðir til þegar gengið væri frá þessum þætti í fjárlögum. Af öðrum málefnum sem til umfjöllunar voru, nefndi Júlíus framtíðarskipulag almennings- samgangna, samvinnu í vatns- veitumálum og eins yrði að takast á við þá óheppilegu þró- un í fólksfjölgun sem væri að skapast á ný, með flótta frá landsbyggðinni til höfuðborgar- svæðisins. Lægi ljóst fyri rað það yrði að hamla á móti þessari þróun, sem kæmi illa við byggðar- lögin á Reykjavíkursvæðinu, það kostaði óhemju uppbygg- ingu ef öll þjóðin ætlaði að flytja suður! Það kom fram hjá Júlíusi að í sumum byggðarlögum á höfuð- borgarsvæðinu væri farið að tala um að byggð mætti ekki fara yfir ákveðin stærðarmörk, m.a. svo að opnum svæðum yrði ekki útrýmt. Hann sagði það ljóst að ef þróunin héldi áfram eins og verið hefði þá yrði íbúatala höfuðborgarsvæðisins komin yfir 200 þúsund árið 2030. Eins og staðan er í dag búa um 128 þúsund manns á þessu svæði og er það um 54% þjóðarinnar. Carmen vel fagnað ■ Óperan Carmen eftir Bizet | var frumsýnd í Gamla biói á ! föstudagskvöld og var þar I þröngt setinn bekkurinn. Ahorfendur fögnuðu söngvur- um, hljómsveitarstjóra, leik- stjóra og öðrum aðstandendum innilega í sýningarlok. Carmen er fyrsta verkefni nýbyrjaðs starfsárs íslensku óp- erunnar og jafnframt hið síðasta sem Marc Tardue stjórnar sem fastur hljómsveitarstjóri óper- unnar. Söngvarar í sýningunni stóðu sig margir hverjir með miklum ágætum, en að margra dómi voru það börnin, sem voru hetj- ur kvöldsins, að öðrum ólöst- uðum. Þau stóðu sig frábærlega vel í hlutverkum hrekkjalóm- anna og sungu eins og englar. ■ Frumsyningargestir í óperunni á föstudagskvöld skáluðu í kampa- víni í hléinu og á myndunum, sem fylgja hér með, má sjá hljómsvcit- arstjórann Marc Tardue skegg- ræða við Þorstein Gylfason stjórn- armann íslensku óperunnar, og Þórhildi Þorleifsdóttur leikstjóra ræða við eiginmann sinn Arnar Jónsson leikara. NT-myndir Ámi Bjama Ráðstefna um réttindamál heimavinnandi húsmæðra: Húsmóðurstörf verði metin en ekki hegnt fyrir þau ■ Súlnasalur Hótel Sögu var þéttsetinn á ráðstefnu Bandalags kvenna um hagsmuni og réttindamál heimavinnandi húsmæðra og ekki heyranlegur ágreiningur með þeim og útivinnandi konum í fullu Starfí. NT-mynd: Sverrir ■ Utivinnandi konur, ekki síður en þær heimavinnandi, virðast sammála um að leiðrétta þurfí ýmis konar misrétti sem bitnar á þeim konum sem ein- ungis starfa á heimilum sínum miðað við þær sem úti vinna og fram kemur m.a.í trygginga- og skattalöggjöf, að því er fram kom á ráðstefnu um hagsmuni i og réttiiidanm heimavinnandi húsmæðra. Ráðstefnan var haldin á < ;um Bandalags kvenna í Reyi <; vík, Þaðþyk’fi.1 ■, mikiðmisrétti að heimavmmindi konur skuli fá þrisvar sin.nnö lægra fæðingar- orlof og i adagpeninga en þær konur scm eru í fullu starfi utan heimils. Margar heima- vinnandi konur, t.d. þær.sem bundnar eru yfir gamalmennum eða velja það að annast sjálfar ung börn sín spara ríki eða bæjarfélagi með því stórar fjár- hæðir. Þykir konum það hið mesta réttindamál og þessi mikilverðu störf þeirra heima á heimilum séu að einhverju met- in í stað þess að þeim sé nánast hegnt með hærri sköttum og lægri bótagreiðslum frá al- mannatryggingum. Meðal framsögumanna á ráð- stefnunni voru: Guðrún Erl- endsdóttir, lögfr. sem talaði um eigna- og erfðarétt, Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkisskattstj. um skattamálin, Margrét Thor- oddsen um réttindi heimavinn- andi til bótagreiðslna og Mar- grét Matthíasdóttir um starf heimavinnandi húsmæðra. Reykjavík: „Villta vestr- ið var hér“ ■ Ungir aðdáendur sækja að kúrekum norðursins á kántríhátíð- inni við Tommaborgara. Hallbjörn á hestinum, Siggi Helgi fyrir miðju og Johnny King sem horfír friðlausu augnaráði á Ijósmyndar- ann um leið og hann smellir af. ■ „Eg er mjög svo ánægður með kvikmyndina og suðurreið- ina, þetta hefur verið skemmti- legt í alla staði og fólk verið elskulegt og tekið vel á móti okkur“, sagði Hallbjörn Hjartarson kántrísöngvari í samtali við NT, en hann hefur gert garðinn frægan í höfuð- borginni um helgina í tilefni frumsýningar kvikmyndarinnar „Kúrekar norðursins“ og í gær var haldin kántríhátíð á Grens- ásveginum fyrir utan Tomma- hamborgara. Á annað hundrað manns voru imættir á Grensásveginn í kalsa- veðri til að sjá kántrísöngvarann frá Skagaströnd og félaga hans að norðan flytja söngva sína og komast í snertingu við sveitalíf- ið. Hestar voru teymdir undir börnum og ungtuddar bauluðu í stíu en eitthvað fór úrskeiðis með músíkkina, því sveitasælu- hljómsveitin Týról og frá Sauðár- króki lét ekki sjá sig og varð að flytja lögin af spólum. En Hall- björn lét ekki deigan síga og söng fullum hálsi og lék við hvern sinn fingur og var ekki annað að sjá á þeim er voru mættir en þeir hefðu gaman af tiltækinu. Hallbjörn sagði að þetta hefði verið hin ánægjulegasta helgi og lægi leiðin norður á nýjan leik á þriðjudag. Það stæði til að frum- sýna „Kúreka norðursins" á Skagaströnd um næstu helgi, en kópía nr. 2 af myndinni er væntanleg til landsins á ■ Mjór er mikils vísir. Hver veit nema hér séu á ferðinni flaggberar aldamóta- kúrekakynslóðarinnar! NT-myndir: Sverrir. miðvikudaginn kemur. Hann sagðist ekki vita hvort farið yrði út í einhver hátíðarhöld í tilefni af frumsýningu fyrir norðan, það yrði ákveðið næstu daga. Hallbjörn var að lokum spurður hvort ný plata væri á leiðinni og sagðist hann ætla að gefa út Kántrí 4 með vorinu og væri hann að safna nýjum anda fyrir hana þessa dagana.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.