NT


NT - 05.11.1984, Síða 5

NT - 05.11.1984, Síða 5
Mánudagur 5. nóvember 1984 5 Þjóðleikhúsið: Breytingar á verkefnum - vegna verkfallsins ■ Fyrir helgi kom til landsins John Burgess, leikstjóri frá breska þjóðleikhús- inu, til að leikstýra jólaverkefni Þjóðleik- hússins, Ríkharði III. Á blaðamannafundi í Þjóöleikhúsinu kom fram, að þrátt fyrir að æfingar á leikritinu hafi tafist um mánuð vegna verkfails opin- berra starfsmanna, stefndi leikhúsið að því að frumsýna leikritið á jólum samkvæmt áætlun. Breytingar á starfsemi leikhússins vegna verkfallsins verða þær að söngleikurinn Chicago fellur niður en í stað hans verða Gæjar og Píur á dagskrá. Aðrar breytingar eru þær að Gæjar og Píur, Kardimommubærinn og balletsýning flytjast aftur fyrir áramót. Á föstudag verður sýnt leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar, Milli skinns og hörunds. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Með helstu hlutverk fara Sigurður Skúlason og Edda Backman. Laugardaginn 17. verður Skugga-Sveinn frumsýndur. Leikstjóri er Brynja Bene- diktsdóttir, en með hlutverk Skugga-Sveins fer Erlingur Gíslason, Árni Tryggvason leikur Grasa-Guddu og Ketill Larsen Ketil skræk. Önnur verkefni leikhússins á starfsárinu verða Rashomon, bandarískt verk eftir japanskri sögu, Haukur Gunnarsson leik- stýrir. Þetta verk verður frumsýnt í janúar. Daphnes og Cloe, danssýning, verður í maí, íslandsklukkan verður sýnd 20. apríl í tilefni 35 ára afmælis leikhússins. Góða nótt mamma, sem Lárus Ýmir Óskarsson leik- stýrir, verður frumsýnt á litla sviðinu innan skamms og þá verða miðnætursýningar á bresku gamanleikriti „Run for your wife.“ Gísli Alfreðsson, Þjóðleikhússtjóri, sagði blaðamönnum í gær að ekki væri útlit fyrir að fleiri en 8-10.000 gestir kæmu á leiksýn- ingar fram að áramótum í stað ríflega 30.000 sem búist hefði verið við. ■ Sigurður Skúlason og Edda Backman í hlutverkum sínum í leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar, Milli skinns og hörunds. Indónesía: íslensk fyrir- tæki í norrænu sjávarút- vegsverkefni ■ Tvö íslensk fyrirtæki, Marel hf. og ráðgjafafyrirtækishópurinn Ice-Fish-Co, verða þátttakendur í norrænu sjávarútvegs- verkefni í Indónesíu. Er talið, að í hlut íslenska ráðgjafafyrirtækisins komi skipu- lagning á veiðitækni og vinnslutækni, auk athugana á markaðsmálum. Aðalsvæðið, sem haft er í huga í verkefni þessu er eyjan Bali og nágrannaeyjan Lombok. Verkefnið mun taka til byggingar á fiskibátum, fiski- hafnar, frystihúsa og niðursuðuverksmiðja. Alls eru það fimm norræn fyrirtæki, sem standa að því. Frumkvæðið að verkefninu átti Norræni verkefnissjóðurinn, sem í samvinnu við Norræna fjárfestingabankann ákvað fyrr á þessu ári að bjóða nokkrum ráðamönnum Indónesíu til Norðurlandanna. Útflutnings- miðstöð iðnaðarins, sem hefur starfað að sjávarútvegsverkefnum í 3. heiminum með Norræna verkefnissjóðnum, og Samband- ið, áttu fulltrúa á fundi með aðalfiskimála- stjóra Indónesíu, þar sem þessi mál voru rædd. Að loknum skoðunarferðum til Indó- nesíu var svo áðurnefnt verkefni ákveðið. Yfirstjórn þess verður í höndum finnska fyrirtækisins Finn-Stroi OY. ÞÚ HEFUR ÞRIÁR GULLVÆGAR ÁSLÆÐUR TILAÐ VEUA INNLANSREIKNING MEÐ ABOT TILÁVÖXTUNAR SPARMÁR ÞÍNS: Þér bjóðast fyllstu vextir, 26,2%, 5trax í fyrsta mánuði eftir stofnun reiHningsins. :. Þér býðst fast að 28% ávöxtun á 12 mánuðum. w Þú mátt taha út hvenær sem er án þess að áunnir vextir skerðist. flotaleg tilhugsun, eHHi satt? Fjolmorg sjo- slys verða vegna mistaka við stjórnun ■ „Það er samnorræn reynsla, einkanlega að því er varðar fískiskip og minni flutningaskip, að ein helsta orsök fjölmargra sjóslysa er. mistök við stjórnun og notkun skipanna. Þess vegna er talið brýnt að auka þekkingu og skilning skipstjórnar- manna, og raunar allra sjómanna á minni skipum, á öllum þeim atriðum sem snerta stöðugleika og sjóhæfni skipanna og siglingu þeirra við breyti- legar aðstæður.“ Þetta er ein af þeim niðurstöðum sem siglingamálastjórar Norðurlanda komust að, en þeir héldu nýverið fund sinn hér á landi, til að ræða ýms atriði varðandi öryggismál sjófarenda og framkvæmd alþjóðlegra sam- þykkta um þau málefni. EKKISTIGHÆKKANDI InnlánsreiHnigur með Ábót þýðir eHHi stighæHHandi ávöxtun og þar með margra mánaða bið eftir hámarHinu, heldur fyllstu vexti strax í fyrsta mánuði eftir innlegg. SKÍNANDIÁVÖXTUN, STRAX. ABOT Á VEXTI GULLS ÍGILDI Út EINN BANKI • ÖLL MÓNUSTA

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.