NT - 05.11.1984, Page 11
■ Jodie Foster var fræg sem barnastjarna, en hér sjáum vð hana sem hressilega unga stúlku. Hún segist safna leikföngum, „það er
líklega af því að ég hafði aldrei tíma til að leika mér þegar ég var Iítil.“
Mánudagur 5. nóvember 1984 11
-13 ára var hún í
3 myndum á kvikmynda
hátíð í Cannes!
I'
•• :
sta** Jfooii
wítten... • Mwrapt. m tad
% °sar ötew 1» & deSnite
posstbliity
I itSl ll
■ Úrklippa úr
blaði frá því í
mars 1981.
■ „Þetta varhræðilegurtími,
og ég var hreinlega að verða
vitlaus," segir Jodie Foster, er
hún minnist á atburðina, sem
gerðust fyrir 3 árum, þegar
ungur maður reyndi að myrða
Reagan Bandaríkjaforseta og
sagðist gera það vegna ástar
sinnar á hinni bráðungu leik-
konu Jodie Foster. Maðurinn
héitir John Hinckley jr., og
eftir yfirheyrslur, þarsem hann
þrástaglaðist á nafni Jodie,
sagðist hann hafa gert árásina
á forsetann til að vekja athygli
á sér og ganga í augun á Jodie!
Hinckley sagðist hafa horft
mörgum sinnum á myndina
Taxi Driver og orðið stórhrif-
inn af Jodie þar (hún var 13 ára
þegar hún lék í myndinni) að
hann hefði skrifað henni ótal
ástarbréf, en aldrei fengið
svar. Síðasta bréfið til hennar
skrifaði hann 2 tímum áður en
hann gerði skotárásina. Það
bréf fannst á hótelherberginu í
Washington þar sem Hinckley
dvaldist þá. Hann skrifaði
m.a.:
„Elsku Jodie, það er mögu-
leiki á því að ég lifi ekki af
tilraun mína til að skjóta Reag-
an. Þess vegna skrifa ég þér
nú...“ og svo komu yfirlýsing-
ar um ást hans til hennar.
Jodie var ekki nema ung-
lingur þegar þetta gerðist, og
hún var hundelt af Ijósmyndur-
um og blaðamönnum, sem
vildu fá að vita hvað hún segði
um þetta. Hún sagðist hafa
hrædd við allt og alla.
Nú er Jodie Foster háskóla-
nemandi, heilbrigð og glaðleg
og mjög ópjöttuð í útliti.
Breskur blaðamaður hitti liana
á útikaffihúsi í París í sumar og
tók smáviðtal við hana. Blaða-
maðurinn hafði orð á því í
formála að viðtalinu, að hún
hefði talað frönskuna reip-
rennandi og lýtalaust, verið
broshýr við þjóninn jafnt sern
viðmælendur sína. Jodie var
þá algeriega ómáluð í galla-
buxum og bol - en þó alveg
hrífandi í útliti.
Jodie sagðist ferðast með
tannbursta og greiðu, en ekki
neinar snyrtivörur og helst
aldrei líta í spegil!
Jodie Foster hefur lítið sést
í kvikmyndum að undanförnu,
því hún hefur helgað sig nám-
inu, en nú í haust var frumsýnd
myndin Hotel New Hampshire
eftir bók Johns Irving. Þar
segist Jodie hafa fengið algjört
óskahlutverk. Hún leikur þar
á móti Rob Lowe og þau eru
miklir vinir. „Robog Natassia
Kinski eru einu leikaravinirnir
sem ég á,“ segir Jodie í viðtal-
inu.
Frá þriggja ára aldri hefur
Jodie ýmist verið fyrirsæta eða
leikkona, og hún varð viður-
kennd barnastjarna. Þegar
hún var 13 ára, var hún t.d í
þrem kvikmyndunt, sem voru
samtímis á kvikmyndahátíð í
Cannes: Taxi Driver, Bugsy
Malone og Litla stúlkan í
|PPí:|§||||§
ÍMimlÍ
Natassia Kinski (t.v.) er góð vinkona og Rob (í miðið) er besti vinurinn og okkur tekst vel að leika saman, segir Jodie.
verið eins og flóttamaður um
tíma og orðið taugaveikluð og
næstu götu (The Little Girl
Who Lives Down The Lane).