NT - 05.11.1984, Síða 16
Utvarp kl. 13.30:
■ Franski söngvarinn Maur-
ice Chevallier er enn ógleymd-
ur, þó að talsvert sé liðið frá
dauða hans.
Gamlir og góðir söngvarar taka lagið
■ Ekki er óiíklegt að mörg-
um eigi eftir að hlýna um
hjartaræturnar, ef þeir hafa
opiö útvarpið kl. hálftvö og
heyra gamalkunnar raddir
syngja hin og þessi lög, sem
minna marga á árin, þegar þeir
voru ungir.
Meðal söngvaranna, sem við
eigum von á aö heyra í, er t.d.
Vera Lynn, en hún átti stóran
þátt í því að halda uppi siðferð-
isstyrk breskra hermanna á
heimsstyrjaldarárunum sfðari.
Þó að nú séu senn 40 ár liðin
frá stríðslokum fer því víðs
fjarri að Vera sé sest í helgan
stein. Enn ferðast hún um
Bretland ásamt eiginmanni
sínum og syogur fyrir fólk
lögin, sem það vill heyra, og
því finnst enn jafn gaman að
hlusta á og fyrir 40 árum.
Þá lætur franski söngvarinn
Maurice Chevalier heyra í sér,
en hann átti langan og góðan
feril í söngleika húsum í
heimalandi sínu, áður en hann
brá sér til Hollywood og stækk-
aði aðdáendahóp sinn heldur
betur með því að syngja í
kvikmyndum, sem náðu geysi-
legum vinsældum. Má þar á
meðal nefna t.d. Gigi. Hann
lést fyrir allmörgum árum há-
aldraður.
Sjónvarp kl. 21.10:
Mánudagur 5. nóvember 1984 16
Sjónvarp
INGMAR BERGMAN
höfundur og leikstjóri mánudagsleikritsins
■ Eftir leikæfinguna nefnist
mánudagsleikrit sjónvarpsins
í kvöld. Höfundurog leikstjóri
þessa nýja sjónvarpsleikrits er
Ingmar Bergman og er það
örugg trygging fyrir því, að
það er þess virði að horfa á
það, nema þeir kunni að vera
til, sem ekki geta hugsað sér að
koma nærri neinu því, sem
Ingmar Bergman hefur lagt
hönd að.
f kynningu á leikritinu segir
m.a.: Ytri rammi atburðarás-
arinnar - ef hægt er að tala um
atburðarás í venjulegri merk-
inu - er sá fábrotnasti sem
hugsast getur, leiksvið að lok-
inni æfingu. Þar er aðeins að
finna örfá húsgögn og nokkra
skerma. Húsgögnin minna
leikstjórann, Henrik Vogler,
á aðrar sýningar, sem hann
hefur stýrt.
Inn á sviðið ganga tvær
konur, hvor í sínu lagi, þær
Anna Egerman, sem Lena
Olin leikur, og Rakel, en hana
leikur Ingrid Thulin. Sú fyrr-
nefnda fer með stórt hlutverk
í leikritinu, en sú síðarnefnda
fær ekki að tala nema tvisvar,
enda er hún drykkjusjúk,
taugaveikluð og á allan máta
óáreiðanleg. Anna er metnað-
arfull; hún er reiðubúin að æfa
sólarhringinn á enda, ef þurfa
þykir, og er komin aftur í
leikhúsið, að aflokinni æfing-
unni, til að leita að armbandi,
sem finnst ekki.
Týnda armbandið er bara
fyrirsláttur. Henrik var um
skeið ástfanginn af móður
Önnu. Anna gæti verið dóttir
hans.
Rakel er aftur á móti gift en
undir lækniseftirliti. Maður
hennar og læknir ræða ástand
hennar í viðurvist hennar og
eru ekkert að skafa utan af
hlutunum. Læknirinn á kyn-
lífssambandi við hana, en mað-
ur hennar veitir henni bar-
smíðar. Dóttir Rakelar gæti
verið dóttir Henriks.
Á aðeins 70 mínútum tekst
Ingmar Bergman að afhjúpa
persónur leiksins, svo að ekki
stendur steinn yfir steini af
þeim varnarvegg, sem þær hafa
komið sér upp.
Leikendur eru Erland Jos-
ephson, Ingrid Thulin og Lena
Olin. Þau tvö fyrrnefndu hafa
verið samstarfsmenn Berg-
mans allt frá því á 6. áratugn-
um, en Lena Olin leikur nú sitt
fyrsta hlutverk undir stjórn
hans.
■ Ingmar Bergman á að baki langan feril við kvikmyndavélarn-
ar og oft hefur hann átt samvinnu við Sven Nykvist mynda-
tökumann, sem er með honum hér á myndinni, en hann
þykir einn sá alfærasti í sinni grein. Oft og iðulega hefur Bergman
lýst því yfir, að nú hafi hann sent frá sér sína síðustu mynd, en
jafnoft hefur hann hætt við að hætta.
þekktum kvikmyndum.
Síðan hélt Moroder áfram á
þessari sömu braut og samdi
t.d. tónlist við myndirnar Am-
erican Gigolo, Cat People og
Flashdance.
Og nú á næstunni á að fara
að sýna í Bíóhöllinni eitt stór-
virki kvikmyndanna, Metro-
polis, sem þýskur kvikmynda-
leikstjóri, Fritz Lang, gerði
1926. Hún var klippt niður og
stytt heilmikið fyrir Banda-
ríkjamarkað á sínum tíma, en
Moroder náði saman öllum
þessum afklipptu filmubútum,
safnaði allri upphaflegu mynd-
inni saman og límdi upp,
blandaði í myndina lit og hóaði
svo saman mörgum poppurum
og rokkurum, sem flytja tón-
listina við myndina.
Um þessa mynd og aðra,
sem Moroder er líka viðriðinn
og einnig verður sýnd í Bíó-
höllinni, Electric Dreams, ætl-
ar Þorsteinn sem sagt að fjalla
í þætti sínum í dag.
Gamlir kunningj-
ar í nýjum þáttum
■ í kvöld hefst í sjónvarpinu
sýning á nýjum breskum gam-
anmyndaflokki, framhald þátt-
anna í fullu fjöri, sem sýndir
voru í sumar.
Þar fengum við að fylgjast
með miðaldra hjónum, sem
voru orðin ein eftir í kotinu,
þó að dóttirin væri síhringjandi
til að þylja vandamál sín yfir
móður sinni. Verkefni hús-
móðurinnar heima fyrir eru
þess vegna ekki lengur full-
nægjandi fyrir svo atorkumikla
konu, sem hér á í hlut, svo að
hún þarf sífellt að finna sér ný
og ný áhugamál til ástundunar.
Nágrannakonan kom mikið
við sögu í þáttunum og var
ekki laust við húsbóndanum
þætti hún gera síg full heima-
komna á stundum.
Nú getum við rifjað upp
fyrri kynni af þessu fólki, en á
laugardagskvöld kvöddum við
ensku fjölskylduna í „Heima
er best“, sem að ýmsu leyti
minnti á þessa.
■ Hester og William eru
samhent hjón og oftast ánægð
með lífið. Að vísu kemur það
fyrir að William er ekki alveg
sáttur við uppátæki konu sinn-
ar til að byrja með, en sú
óánægja stendur aldrei lengi.
Þúsund-
þjalasmið-
urinn Giorgio
Moroder
- í þættinum Taka tvö
■ Þorsteinn G. Gunnarsson
heldur áfram að kynna tónlist
úr þekktum kvikmyndum í
þætti sínum Taka tvö á Rás 2 í
dag kl. 16-17.
I þessum þætti segist Þor-
steinn aðallega ætla að stikla á
stóru í ferli Giorgios Moroder,
ítalsks þúsundþjalasmiðs, sem
starfar í Bandaríkjunum.
Moroder vakti fyrst athygli,
þegar hann starfaði með
Donnu Summer fyrir u.þ.b. 10
árum, en þekktasta lagið, sem
út úr því samstarfi kom, var
Love to love you baby. En
hann gerði fyrst stóra hluti í
heimi kvikmyndanna, þegar
hann samdi tónlistina við Mid-
night Express. „Það var áhrifa-
mikil tónlist við áhrifamikla
mynd, og Moroder uppskar
fjölda verðlauna fyrir vikið,“
upplýsir Þorsteinn okkur.
■ Þorsteinn G. Gunnarsson,
umsjónarmaður þáttarins taka
tvö, er lesendum NT að góðu
kunnur, en hann starfaði sem
blaðamaður hjá okkur í sumar.
I vetur heldur hann áfram
námi sínu í íslensku við Há-
skóla Islands, en sinnir auk
þess því áhugamáli að kynna
hlustendum Rásar 2 tónlist úr
Rás 2 kl. 16.
Sjónvarp kl. 20.40:
Mánudagur
5. nóvember
11.30 Austfjar&arútan meö viökomu
á Seyðisfiröi og í Vopnafirði.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tiikynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Gunn-
vör Braga.
13.30 Vera Lynn, Maurice Chevali-
er, Dinah Washington og fi.
syngja.
14.00 „Á l'slandsmiöum" eftir Pi-
erre Loti Séra Páll Pálsson á
Bergþórshvoli les þýöingu Páls
Sveinssonar (8).
14.30 Miðdegistónleikar: Leikhús-
tónlist Þrlr þættir úr Pétri Gaut
eftir Edvard Grieg. Hallé hljóm-
sveitin leikur. Sir John Barbirolli stj.
14.45 Popphólfiö - Siguröur Krist-
insson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar: a. Faust-
forleikur eftir Richard Wagner. Sin-
fóníuhljómsveitin í San Francisco
leikur, Edo de W^art stj. b. Duett
og aría úr óperunni „La Traviata"
eftir Giuseppe Verdi. Luciano
Pavarotti og Mirella Freni syngja
meö hljómsveit undir stjórn Leones
Magiera. c. Atriði úr óperunni
„Tannhauser" eftir Richard
Wagner. Wolfgang Windgassen
syngur meö kór og hljómsveit
þýsku óperunnar i Berlin, Otto
Gerdes stj. d. „Dybbuk", ballet-
svíta nr. 2 eftir Leonard Bernstein.
Fílharmóníusveitin i New York
leikur, höfundur stjórnar.
17.10 Sfðdegisútvarp - Sigrún
Björnsdóttir, Sverrir Gauti Diego
og Einar Kristjánsson. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöl’dfréttir. Tilkynningar.
19.40 Um daginn og veginn Bóas
Emilsson framkv.stj. talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka Árflóðin í
Flóanum a. Þorbjörn Sigurðsson
les erindi eftir Jón Gislason. b.
Kórsöngur Liljukórinn syngur
undir stjórn Jóns Ásgeirssonar. c.
Stökur Jóns í Skollagróf Auöunn
Bragi Sveinsson flytur vísnaþátt.
Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigur-
bjömsson kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Hjón i Koti“
eftir Eric Cross Knútur R. Magn-
ússon lýkur lestri þýöingar Stein-
ars Sigurjónssonar (16).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Skyggnst um á skólahlaði.
Þáttur um skólamál. Umsjón: Krist-
ín H. Tryggvadóttir.
23.00 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskóla-
bíói 1. þ.m.; siðari hluti. Stjórn-
andi: Jean Pierre Jaquillat. „Ró-
meó og Júlía", svíta nr. 1 eftir
Sergei Prokofiev. Kynnir: Jón Múli
Árnason.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
5. nóvember
10:00-12.00 Morgunþáttur Mánu-
dagsdrunginn kveöinn burl meö
hressilegri músik. Stjórnandi- Jón
Ólafsson.
14:00-15:00 Dægurflugur. Nýjustu
dægurlögin. Stjórnandi: Leopold
Sveinsson.
15:00-16:00 í gegnum tíðina. Stjórn-
andi: Þorgeir Astvaldsson.
16.00-17:00 Taka tvö. Lög úr þekkt-
um kvikmyndum. Stjórnandi: Þor-
steinn G. Gunnnarsson.
17:00-18:00 Asatími. Stjórnandi:
Július Einarsson.
Mánudagur
5. nóvember
19.25 Aftanstund. Barnaþáttur meö
innlendu og erlendu efni sem verö-
ur á þessa, leiö: Tommi og Jenni,
Sögurnar hennar Siggu: nýr
þýskur brúöumyndaflokkur. Þýö-
andi Eiríkur Haraldsson. Bósi:
þýskur teiknimyndaflokkur, Sigga
og skessan: framhaldsleikrit eftir
Herdisi Egilsdóttur. Leikendur
Helga Thorberg og Helga Steff-
ensen. Áöur sýnd i Stundinni
okkar.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 í fullu fjöri. (Fresh Fields)
Fyrsti þáttur. Breskur gaman-
myndaflokkur í sex þáttum, fram-
hald þátta sem sýndir voru i
sumar. Aöalhlutverk Julia
McKenzie og Anton Rodgers. Þýð-
andi Ragna Ragnars.
21.10 Eftir leikæfinguna. (Eftir rep-
etitionen) Nýtt sænskt sjónvarps-
leikrit eftir Ingmar Bergman sem
einnig er leikstjóri. Leikendur: Er-
land Josephson, Ingrid Thulin og
Lena Olin. Gamalreyndur leikstjóri
staldrar við eftir æfingu. I viö-
ræöum hans við tvær leikkonur i
verkinu fær áhorfandinn innsýn í
starf, persónuleika og drauma
leikstjórans. Þýðandi Þorsteinn
Helgason.
22.20 Iþróttir. Umsjónarmaður Ing-
ólfur Hannesson.
22.50 Fréttir í dagskrárlok.