NT - 05.11.1984, Page 20
i
;
Mánudagur 5. nóvember 1984 20
Iþróttir
vann Fram 3-1 - Blikadömur unnu Þrótt
HK byrjar vel
■ HK byrjaði vel í 1. deild
karla í blaki um helgina, er
liðið sigraði Fram örugglega
3-1 í fyrsta leik íslandsmótsins.
Aldrei var nein spurning um
úrslitin. f fyrstu deild kvenna
lagði Breiðablik Þrótt að velli
3-1 íjöfnumogspennandi leik.
HK byrjaði vel gegn Fram,
sigraði í fyrstu hrinu 15-5 og í
annarri hrinu 15-4. f þriðju
hrinu fengu varamenn að
spreyta sig, og náði Fram þá
upp sannfærandi leik. Þrátt fyr-
ir að lykilmönnum væri skipt
inn á á ný náði HK ekki að snúa
hrinunni og unnu Framarar 15-
7. í fjórðu hrinu lék svo HK
með sitt sterkasta lið og sigraði
15-4.
Allt HK-liðið lék vel í
leiknum, enginn þó betur en
Kjartan Busk, sem sendi alla
bolta sem á hann voru gefnir
rakleiðis í gólf Framara.
Kristján Már Unnarsson lék
vel með Fram; er langsterkasti
maður liðsins. Æfingaleysi virt-
ist annars hrjá liðið, enda hefur
Fram fengið lítið af æfingatím-
um undanfarið eins og fleiri
sökum.verkfallsins.
Leikur Breiðabliks og Þrótt-
ar í kvennablakinu var spenm
andi og skemmtilegur. Breiða-
blik var sterkara, en í hverri
hrinu munaði fáum stigum.
Þróttur verður greinilega með
í baráttunni um titilinn í vetur.
Úrslit í hrinum urðu 12-15,
17-15, 15-11 og 15-12; 3-1
Breiðabliki í hag.
Alfreð og Co
töpuðu fyrsta
Frá Guðmundi Kurlssyni fréttu-
munni NT í V-Þýskulundi:
■ Alfreð Gíslason og félagar
í TUSEM Essen töpuöu sínum
fyrsta leik í þýsku Búndeslíg-
unni í handbolta um helgina.
Það var Grosswallstadt sem
stöðvaði Essen, náði að merja
sitiur í feikihörðum leik, og að
sama skapi illa dæmdum. Úr-
slitin urðu 16-18.
Jochen Fraatz var bestu í liði
Essen, þrátt fyrir að hafa
brennt af tveimur vítum, skor-
aði 9 mörk. Alfreð átti einnig
2. deildin í handbolta:
HKvannÁrmann
■ HK sigraði Ármann í 2.
deild karla í handknattleik fyrir
helgina í Digranesi 24-20.
Stórsigur
Reynis
■ í 1. deild karla í körfu-
knattleik sigraði Rcynir Sand-
gerði Laugdæli með nokkrum
yfirburðum, 97-53 í gær.
Leikið var í Sandgerði og
staðan í hálfleik var 46-25 fyrir
heimaliðið. Sigurður Guð-
mundsson 27 og Jón Sveinsson
18, skoruðu mest fyrir Reyni
en Þorkell Ingi Þorkelsson 26
og Ingólfur Kjartansson 15,
mest fyrirLaugdæli.
í 2. deild karla léku um
helgina Í.A. og Snæfell og
sigruðu Rikki og félagar í
Snæfelli með 87 stigum gegn
70 stigum Gísla og co. í ÍA.
Leikurinn var jafn framan af,
og ekki fyrr en að áliðnum leik
að HK tók af skarið. Staðan í
hálfleik var 11-11.
Mikil barátta einkenndi leik-
inn, svo og taugaspenna. Hver
leikur í deildinni skiptir miklu
máli, þar eð aðeins verða leikn-
ar tvær úrslitaumferðir eftir
deildakeppnina. Armann hafði
heldur frumkvæðið í fyrri hálf-
leik, og var yfir 11-10 þegar
tlautað var aukakast á Ármann
og leiktíma fyrri hálfleiks lokið.
Björn Björnsson skoraði beint
úr aukakastinu. Hann var
markahæstur HK manna með 7
mörk, Stefán Halldórsson skor-
aði 4, öll úr vítum, og Ársæll
Snorrason 3. Besti maður HK
í leiknum var Magnús Ingi
Stefánsson markvörður sem
lokaði markinu algerlega um
tíma í síðari hálfleik. Bragi
Sigurðsson var besti maður Ar-
manns í leiknum, skoraði 3
mörk í fyrri hálfleik en var
tekinn úr umferð í þeim síðari.
Akureyrarslagur í handbolta:
KA sterkara
Frá Gylfa Kristjánssyni frétta-
manni NT á Akureyri:
■ „Við vorum mjög slakir í
þessum leik, taupaspennan var
allsráðandi og menn gerðu
þarna barnaleg mistök“ sagði
Helgi Ragnarsson þjálfari KA
eftir leik Akureyrarliðanna KA
og Þórs í 2. deild í handknatt-
leik um helgina. „Ég þekki
þetta vekþetta er eins og þegar
FH og Haukar spila þá kemur
margt inn eins og t.d. tauga-
spennan“ bætti Helgi við.
KA sigraði í þessari viður-
eign erfðafjendanna með 22
mörkum gegn 20 eftir geysilega
baráttu en ekki að sama skapi
vel leikinn leik. Þórsarar, sem
af flestum voru álitnir minni-
máttar fyrir leikinn, lögðu
greinilega allt í sölurnar og
þeim tókst svo sannarlega að
velgja KA-mönnum undir
uggum. „Ég er ánægður með
mína menn og áhorfendur
fengu eitthvað fyrir aurana
sína“ sagði Guðjón Magnússon
þjálfari Þórs.
Jafnræði var með liðunum
framan af og var staðan 4-4
eftir 10 mínútur en þá komust
KA-menn yfir og höfðu yfir í
hléi 12-9.1 síðari hálfleik komst
KA í 14-10 en Þór tókst að
vinna það forskot upp og jafna
17-17. Jafnt varð 19-19 en KA
var sterkara á lokasprettinum
og tryggði sér sigurinn. Marka-
hæstu menn liðanna voru:
Friðjón Jónsson hjá KA með 9
mörk og Oddur Sigurðsson 5.
góðan leik, og þá sérstaklega í
vörn, Alfreð skoraði 3 mörk,
þar af 1 víti. Bestur í liði
Gerrosswallstadt var mark-
vörðurinn Sigi Roch, sem varði
oft á tíðum á heimsmælikvarða.
Diisseldorf-Handewitt...23-21
Hofewier-Marsenheim .... 22-21
Á miðvikudag leika svo Ess-
en og Kiel.
Létt hjá KR
■ Einn leikur fór fram í
1. deild kvenna í körfu-
knattleik á laugardaginn.
KR sigraði U.M.F.N.
með 52 stigum gegn 24.
Greinilegt er að KR-
stúlkurnar verða illvið-
ráðanlegar í vetur og hef-
ur leikur liðsins gjör-
breyst frá þvi í fyrravetur.
Mikill fengur erað endur-
komu Lindu Jónsdóttur
liðsins.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
■ Valur Ingimundarson býr
sig undir körfuskot með
nokkra unga KR-inga til
varnar. Hæst þeirra stekkur
Birgir Mikelsson sem skoraði
mest fyrir KR. Valur gerði
flest stig UMFN. NT-mynd: Sverrir
Naumt hjá Njarðvík
gegn baráttuglöðum KR-ingum
■ Einn leikur var í úrvals-
deildinni í körfuknattleik á
laugardaginn í Hagaskóla. Þar
áttust við KR-ingar og Njarð-
víkingar og lauk leiknum með
sigri þeirra síðarnefdu 68-62.
Leikurinn átti að hefjast kl.
14 en nokkur töf varð á því þar
sem annað körfuspjaldið brotn-
aði er liðin voru að hita upp.
Valur Ingimundarson tróð
aftur fyrir sig en hékk um leið
í körfuhringnum og brotnaði
spjaldið í átökum þessum. Það
þurfti því að skipta um spjald
og tók það þó nokkurn tíma.
En leikurinn hófst þó og
varð þrælspennandi. Réðust
úrslit ekki fyrr en á síðustu
mínútum. Njarðvíkingar byrj-
uðu heldur betur en náðu þó
aldrei neinni yfirburðastöðu,
heldur voru þetta 2-6 stig yfir,
og slepptu ungu strákarnir hjá
KR aldrei augunum af þeim.
Þeir börðust vel og var stjórnað
af bekknum, þar sem Jón Sig-
urðsson hvatti sína menn
óspart. Njarðvíkingar treystu
mest á Val Ingimundarson
enda skoraði hann jafnt og
þétt. Staðan í hléi var 34-31
Njarðvíkingum í vil.
í síðari hálfleik héldu Njarð-
víkingar forystunni framan af
en fóru svo að slaka á og spila
hálf kæruleysislega. KR-ingar
sáu um að refsa þeim fyrir það
og um miðjan seinni hálfleik
náðu KR-ingar forystu og
héldu henni allt þar til um 3 og
hálf mínúta var til leiksloka.
Þá jafnaði Valur leikinn 59-59
og síðan náðu Njarðvíkingar
forystu sem þeir héldu allt til
loka. Þeir sigruðu síðan 68-62
eins og áður er greint frá.
KR-liðið lék nokkuð vel í
þessum leik og þrátt fyrir ungan
aldur gáfu þeir íslandsmeistur-
um Njarðvíkur ekkert eftir.
Birgir Mikhaelsson var stiga-
hæstur KR;gerði 21 stig og lék
mjög vel. Þorsteinn Gunnars-
son komst einnig vel frá
leiknum svo og Guðni Guðna-
son. Hjá Njarðvíkingum bar
mest á þeim Val og Árna
Lárussyni og voru þeir jafn-
framt stigahæstlr. Valur gerði
22 stig og Árni 18. Jónas Jó-
hannesson átti sínar góðu
blokkeringar í ein tvö eða þrjú
skiptþannarsbarlítiðáhonum.
Dómarar voru Hörður Túlin-
íus og Sigurður Valsson og
stóðu sig þokkalega.
■ Leikur Njarðvíkur og KR í Hagaskóla gat ekki hafíst á réttum
tíma þar sem annað körfuboltaspjaldið brotnaði í upphitun
leikmanna. Hér er verið að taka það brotna niður. NT-mynd: Sverrfr
NBA-boltinn:
■ Nokkrir leikir voru í NBA-körfunni (bandaríska
atvinnumannakörfuboltanum) á laugardaginn. Úrslit
leikja urðu þessi:
Milwaukee Bucks-Cleveland Cauvaiiers
Houston Rockets-New York Knicks
Atlanta Hawks-Washington Bullets
New Jersey Nets-Indiana Pacers
Phoenix Suns-Dallas Mavericks
Denver Nuggets-Kansas City Kings
Portl. Trail Blazers-Los Angeles Clippers
Golden State Warriors-Utah Jazz
117-88
105-93
127- 107
118-117
105-93
128- 114
131-112
112-107