NT - 05.11.1984, Qupperneq 21
Mánudagur 5. nóvember 1984 21
Ólympíuleikarnir og deilur stjórþjóðanna:
Sovétmenn vilja ekki Seoul
■ Háttsettur sovéskur íþróttaþjálfari
, sagði í gær að Alþjóðaólympíunefndin
ætti að endurskoða gaumgæfílega þá
ákvörðun að halda næstu; sumarleika í
Seoul í Suður-Kóreu. Tók hann þar
með undir ummæli kollega síns í Sovét-
ríkjunum sem lýsti þessu yfir í fyrradag.
Yfirþjálfari sovéska handknattleiks-
landsliðsins, Anatoly Yevtushenko
skrifaði grein í stjórnarblaðið sovéska,
Izvestia í gær þess efnis að Alþjóðaólym-
píunefndin ætti að taka þá stóru ákvörð- ■
un að færa Ölympíuleikana 1988 til
Evrópu. Daginn áður hafði glímuþjálf-
arinn Ivan Yarigin sagt í Sovéska í-
þróttablaðinu, Sovietsky Sport að sú
ákvörðun að halda leikana í Seoul hefði
vakið miklar efasemdir og bæri að
endurskoða hana.
Þetta eru fyrstu opinberu yfirlýsingar
sem komið hafa frá sovéskri íþróttafor-
ystu vegna leikanna sem halda á í
-Suður-Kóreu.
Sovésk íþróttaforysta hefur enn ekk-
ert sagt um hvort lið frá Sovétríkjunum
mæti i eða mæti ekki á Ólympíuleikana
í Seoul, en eins og alþjóð er kunnugt
mættu Sovétmenn og frændríki þeirra
ekki á Óiympíuleikana í Los Angeles
„af öryggisástæðum“.
Núrnberg rak sex:
Og tapaði svo
■ Eins og fram hefur komið í NT voru
* nokkrir leikmenn reknir frá 2. deildar
félaginu Núrnberg í vikunni sem leið
r eftir að hafa mótmælt aðferðum þjálfar-
ans Heinz Hoher. Par á meðal var
landsliðsmarkvörðurinn Rudi Kargus.
Þessi ömurlega vika endaði á því að
félagið tapaði leik sínum um helgina
gegn Aachen.
Núrnberg stillti upp liði með 9 at-
vinnumönnum og 2 áhugamönnum og
hélt í við andstæðinga sína lengst af
Staðan var 1-1 að venjulegum leik-
tíma loknum en Gernot Ruof tryggði
Aachen sigur 2-1 þegar fimm mínútur
voru komnar framyfir tímann.
Bettega slasaður
■ Roberto Bettega fyrrum hetja ít-
- alska landsliðsins í knattspyrnu liggur
nú á spítala eftir að hafa lent í bflslysi.
Kappinn var á leið til Mílanó frá
’ heimaborg sinni Tórínó þegar hann
missti stjórn á bílnum sínum og hafnaði
utan vegar.
Bettega sem lék 42 landsleiki fyrir
ítali, er nú samningsbundinn kanadíska
félaginu Toronto Blizzard.
Hann er nú sagður standa í samninga-
viðræðum um að láta flytja sig heim til
Ítalíu, til liðs við fyrstudeildarfélagið
Udinese, hvar hann léki við hlið Zicos
hins brazilíska.
Bettega sem er einn af vinsælustu
leikmönnum ítölskum, hefur verið mjög
óheppinn með meiðsli á ferli sínum og
gat til dæmis ekki leikið með ítalska
landsliðinu á Spáni 1982 vegna þess.
Rijvers hættur
Frá Reyni Þór Finnbogasyni fréttamanni NT í Hollandi:
■ Þjálfari hollenska landsliðsins, Kees
' Rijvers, er búinn að segja af sér.
Ástæðan sem hann gaf fyrir því, var að
upp á síðkastið hefði andinn í kringum
landsliðið og stjórn þess orðið svo
slæmur að hann hafi ekki getað unnið á
•eðlilegan hátt, hefði ekki það svigrúm
sem hann þyrfti.
Mikið hefur verið deilt um starf
'Rijvers, eftir tap Hollendinga í undan-
keppni HM nýlega. Var m.a. talað um
að hann ætti sóma síns og landsliðsins
vegna að segja af sér.
Rinus Michels fyrrum þjálfari Ajax
og landsliðsins hefur tekið landsliðið að
sér.
LEYNDARMALIÐ...
. . . á bak við velklædda konu
er hin fullkomna, alhlíða og einfalda saumavél sem
Iaðar fram sköpunargleði þess sem saumar.
Þótt hín nýja Singer saumavél sé tæknilega
fullkomin, þá er hún einföld í meðförum -
og svo sparar hún þér stórfé.
SINGER
sporiframar.
n i qnrn
nniuítil
^SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMI 681910