NT - 05.11.1984, Blaðsíða 22
■ Kerry Dixon skoraði þrjú mörk fyrir Chelsea í 6-2 sigrinum
gegn Coventry: Dixon er ótrúlega iðinn við að skora mörk, var
hetja Chelsea í annarri deild, og virðist ekki muna um það í 1.
deild heldur. Dixon er nú markahæstur í 1. deild á Englandi, hefur
skorað 11 mörk ■ deildinni það sem af er.
Frá Heimi Bergssyni frétta-
manni NT í Englandi
■ Everton skaust upp á topp-
inn í ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu á laugardaginn með
sigri á Leicester, 3-0. Gengi
liðsins hefur verið með ólíkind-
um gott undanlárnar vikur og
má nefna tvo sigra á Man.
linited, sigur í Evrópukeppn-
inni á útivelli og sigur á Liver-
pool í deildinni og það á An-
field.
Leikurinn á laugardaginn var
þó ekki nógu góður hjá lcik-
mönnum Everton og þeim gekk
illa með botnliðið. Það var
ekki fyrr en í seinni hálfleik
sem þeir tóku virkilega við sér.
Stevens náði forystunni fyrir
Everton strax eftir lcikhlé og
örstuttu seinna skoraði Sheedy
og staðan var orðin 2-0 og
úrslitin ráðin. Adrian Heath
skoraði síðan þriðja markið 10
mínútum fyrir leikslok og ýtti
þar með undir vonir sínar um
að verða valinn í landsliðið hjá
Englendingum.
Eftir leikinn sagði Peter
Reed, fyrirliði Everton „Við
lékum ekki vel í fyrri hálfleik
en við héldum áfram og ég var
alltaf viss um að við myndum
skora,-spurningin var bara að
halda hreinu, Við höfum
gífurlegt sjálfstraust þessa
stundina“.
Everton komst á topp deild-
arinnar eftir að Arsenal hafði
tapað á Old Trafford, fyrir
Man. Utd. á föstudagskvöldið
2-4. Þar voru þeir Olsen og
Strachan í aðalhlutverkum.
Don Howe, framkvæmdastjóri
Arscnal, sagði eftir þann leik
að þeir hefðu verið teknir í
karphúsið af þessum frábæru
leikmönnum.
Arsenal hafði reyndar náð
forystu í leikhléi, 2-1, eftir að
Robson hafði gert fyrsta mark
leiksins. Þcir lan Allinson og
Tony Woqdcock skoruðu fyrir
Arsenal. í síðari hálfleik þá
héldu leikmenn Man. Utd.
áfram að sækja og uppskáru 3.
mörk. Strachan gerði tvö mörk
og weiski landsliðsmaðurinn
Mark Hughes skoraði einu
sinni, hans níunda mark á
keppnistímabilinu.
Tottenham er í fjórða sæti
þrátt fyrir óvænt tap á White
Hart Lane á laugardaginn fyrir
WBA. Leikurinn þótti mjög
skemmtilegur og leikinn var
STAÐAN
1. deild: 2. deild ■ 1
Everton 13 8 2 3 27 18 26 Oxford 12 9 2 1 28 10 29
Arsenal 13 8 1 4 28 20 25 Portsmouth . 13 8 3 2 20 11 27
Man.Utd. ... 13 6 5 2 24 16 23 . Birmingh. .. 13 8 2 3 16 8 26
Tottenham .. 13 7 1 5 27 14 22 Blackburn .. 13 7 3 3 26 13 24
West. Ham .. 13 6 4 3 20 19 22 Leeds 13 7 1 5 23 14 22
Sheff.Ved. .. 13 6 3 4 25 17 21 Grimsby ... 13 7 1 5 25 21 22
Sunderland .. 13 5 5 3 21 15 20, Brighton ... 13 6 3 4 15 8 21
Southampt. .. 13 5 5 3 16 14 20 Barnsley ... 12 6 3 3 14 7 21
Chelsea 13 5 4 4 21 13 19 Shrewsb. ... 13 6 3 4 22 16 21
Nott. Forest.. 13 5 3 5 20 18 18 Man. City . 13 6 3 4 17 12 21
Newcastle ... 13 4 6 3 26 26 18 Fulham .... 12 6 1 5 20 21 19
Liverpool.... 13 4 5 4 15 14 17 Huddersf. .. 13 5 3 5 14 18 18
Norwich 13 4 5 4 18 19 17 Wolves 13 5 2 6 20 23 17
West Brom. .. 13 4 4 5 20 18 16 Oldham ... 13 5 2 6 15 25 17
Ipswich 13 3 7 3 17 17 16 Wimbledon . 12 5 1 6 20 24 16
Aston Villa .. 13 4 3 6 17 27 15 Charlton ... 13 4 3 6 20 17 15
Q.P.R 12 3 5 4 19 24 14 Sheff. Utd. .. 12 3 4 5 19 22 13
Luton 13 3 4 6 17 26 13 Middlesb. .. 13 4 1 8 17 26 13
Couventry ... 13 3 3 7 11 20 12 Carlisle .... 12 3 2 7 7 20 11
Leicester .... 13 3 3 7 18 30 12 C. Pal 11 2 2 7 11 18 8
Watford 13 1 6 6 26 32 9 Nott. C 13 2 1 10 14 32 7
Stoke 12 1 4 7 11 27 7 Cardiff 13 2 0 11 15 32 6
Mánudagur 5. nóvember 1984 22
jþróttir_________________
Enskir punktar:
Frí Heimi Bergssjni fréllarilara NT í NeWCaStle eru Ólm í að
Engiandi: kaupa kappann...
■ ...ASTON VILLA
gengur ekki sem best þessa
dagana og hafa nú tveir
leikmenn þeirra verið
settir á sölulista. Petta eru
varnarmennirnir Steve
Foster, sem keyptur var
frá Brighton, og Brendan
Ormsby, sem leikur
stöðu miðvarðar. í stað
þessara leikmanna þá er
talið líklegt að Villa muni
reyna að ná í John McClel-
land frá Glasgow Rangers.
McCleland þessi er 29 ára
íri, sem kom til Rangers
fyrri þremur árum frá
Mansfield...
...PAÐ ERU FLEIRI
liö á eftir McClelland. Bri-
an Clough fór ekki til Sout-
hampton um helgina held-
ur fór hann til að fylgjast
með McClelland. Þá er vit-
að að bæði Watford og
...TONY MORLEY,
sem spilar nú með WBA er
sagður vera á leiðinni til
Birmingham og fyrrum
framkvæmdastjóra síns,
Ron Saunders. Taiið er að
Birmingham muni borga
aðeins 65 þús. pund...
...HOWARD
KENDALL, framkvæmda-
stjóri Everton var kosinn
framkvæmdastjóri október-
mánaðar. Everton hefur
átt mikilli velgengi að fagna
að undanförnu og trónir
nú á toppi 1. deildar. En
Kendall lætur ekki staðar
numið og nú um helgina
keypti hann Ian Atkins frá
Sunderland fyrir 70 þús.
pund. Atkins er 27 ára
varnarmaður sem lítið hef-
ur leikið með Sunderland
að undanförnu vegna
meiðsla.
Enski boltinn:
■ Kevin Sheedy skoraði fyrir Everton á laugardaginn í 3-0
sigrinum á Leicester. Everton leikur mjög vel þessa dagana og
hefur nú tyllt sér á topp fyrstu deildarinnar í Englandi. Everton
hefur nú sigrað í fjórum leikjum í röð á tveimur vikum. Fyrst 1-0
sigur á Liverpool, þá 5-0 á Manchester United í Liverpool í
deildinni, síðan 2-1 gegn sama liði í deildabikarnum á Old
Trafford, og loks 3-0 gegn Leicester.
„Við hefðum átt
að vinna þá 10-2“
- sagði Hollins eftir 6-2 sigur Chelsea - Everton á toppinn
- Tottenham tapaði - Liverpool fikrar sig upp
- Sunderland sterkt - Watford skorar en tapar
opin sóknarleikur. Þessi
leikaðferð kom Spurs frekar
illa því hin „fræga“ vörn þeirra
opnaðist nokkru sinnum mjög
illa. Þetta kunnu leikmenn
WB A að notfæra sér og þeir sáu
um að gera þrjú mörk. Cross
skoraði fyrsta mark þeirra eftir
góða sendingu frá Flunt.
Spurs jafnaði með marki
Mike Hazard og þannig var
staðan í hléi. I síðari hálfleik
héldu leikmenn Tottenham
áfram að sækja en WBA náði
aftur forystu með frábæru
marki Steve McKenzie. Hann
komst á auðan sjó eftir hraða-
upphlaup, og vippaði knettin-
um snyrtilega yfir Clemence.
Framkvæmdastjóri WBA,
Jonny Giles, sagði eftir leikinn
að þetta hefði verið frábært
mark hjá McKenzie og leikur-
inn sá besti hjá WBA á þessu
keppnistímabili. Statham
skoraði 3-1 úr víti en sá níger-
íski hjá Tottenham, John Chi-
dozie, sá um að minnka
muninn, 3-2. Glen Hoddle var
varamaður í leiknum og kom
inná í síðari hálfleik en hann
breytti engu um gang mála.
Livcrpool-vélin er að byrja
að fikra sig upp töfluna. Liðið
vann nauman sigur á botnlið-
inu Stoke á laugardaginn og
kom markið rétt undir lok
leiksins. Joe Corrigan, mark-
vörður, sem áður lék með
Man. City.lék nú með Stoke og
hann stóð sig mjög vel þar til
hann lét skot Whelans sigla
fram hjá sér. Það var Daninn
Mölby sem átti fallega send-
ingu á Whelan sem skoraði.
Liverpool er nú um miðja
deild og er á uppleið.
Sunderland er mjög sterkt
þessa dagana og þá sérlega á
heimavelli þar sem liðið hefur
ekki tapað leik í deildinni til
þessa. Wylde skoraði tvívegis
.gegn OPR og Hodgson bætti
við þriðja markinu. Alan
Mullery, framkvæmdastjóri
QPR var óhress eftir leikinn.
„Við spilum ekki eins og at-
vinnumenn eiga að gera, og
við erum að gefa forskot með
allt of ódýrum mörkum.“
Brian Clough, fram-
kvæmdastjóri Nott.Forest,
kom nokkuð á óvart er hann
setti tvo nýliða í liðið fyrir
leikinn gegn Southampton.
Hann lét 18 ára táning, Paul
Taynor, spila og sá stóð sig
frábærlega. Þessi strákur er
uppalinn hjá Forest og er fram-
herji. Hans var gætt af Mark
Wright hjá „The Saints“ en lék
mjög vel þrátt fyrir stranga
gæslu. Segja fróðir menn og
aðrir vitringar að þessi leik-
maður eigi eftir að mala gull
fyrir Clough og Forest. Annar
nýliði í liði Forest var David
Riley sem er 24 ára og kemur
frá áhugamannaliði í Notting-
ham. Hann stóð einnig fyrir
sínu. Þrátt fyrir þessar breyt-
ingar hjá Clough tókst ekki
að vinna leikinn. Það var
Pluckett sem gerði sigurmark
„The Saints“ á „The Dell“.
Leikur Chelsea og Coventry
SKOTLAND
Úrslit:
Ðumbarton-Hearts ............... 0-1
Dundee Utd.-St. Mirren......... 3-2
Morton-Celtic................... 2-1
Rangers-Dundee.................. 0-0
Staðan:
Aberdeen .. 11 9 1 1 27 6 19
Celtic...... 12 7 4 1 22 9 18
Rangers .... 12 6 5 1 11 2 17
St. Mirren .. 13 6 1 6 18 17 13
Hearts ......13 6 1 6 12 16 13
Dund. Utd... 12 5 1 6 16 17 11
Dundee .... 13 3 3 7 16 20 9
Durabarton . 13 3 3 7 12 16 9
Hibernian .. 12 3 2 7 11 19 8
Morton...... 13 3 1 9 12 32 7
var all-markalegur. Coventry
náði forystu 2-0 með mörkum
Latchford og Gynn en eftir
það þá opnuðust allar flóðgátt-
ir við mark þeirra og leikurinn
hefði hæglega getaðfarið 10-2.
John Hollins, framkvæmda-
stjóri Chelesa var samt ekki
ánægður með sína menn. „Við
áttum að vinna 10-2. Það boðar
ekki gott að klikka í jafnmörg-
um færum og við gerðum í
þessum leik.“ Dixon skoraði
þrennu fyrir Chelsea og hefur
nú gert 11 mörk í deildinni.
Jones skoraði tvisvar og
Speedy bætti við marki og þar
með urðu þau sex. Pat Nevin
lék mjög vel hjá Chelsea og
mataði Dixon á góðum
boltum.
Aston Villa og West Ham
gerðu markalaust jafntefli í
heldur slökum leik þar sem
Alvin Martin þótti bera af
öðrum á vellinum.
Watford heldur áfram að
skora mörk en tapa leikjum.
Að vísu urðu mörkin 3 þessa
helgi og eitt stig í höfn. Þetta
er fimmti leikurinn sem liðið
skorar 3 mörk eða fleiri í leik
en tekst ekki að sigra. í síðustu
fimm leikjum hefur liðið gert
26 mörk,Watford keypti fyrir
stuttu síðan markvörðinn
Tony Cotton frá Birmingham
fyrir 300 þús. pund og hann
hefur fengið á sig 18 mörk í 8
leikjum síðan þá. Davery,
Butcher og Brennan skoruðu
fyrir Ipswich en Blissett gerði
tvö og Barnes eitt fyrir
Watford.
Luton og Newcastle gerðu
jafntefli í markaleik í „Hatta-
borginni". Beardsley og Heard
skoruðu fyrir Newcastle en
Parken og Stein fyrir Luton.
Shefflcld Wed. tapaði óvænt
á heimavelli sínum fyrir
Norwich. John Deehan og
Donovan skoruðu fyrir Nor-
wich en Mel Sterland, sem
Liverpool hefur í sigtinu, skor-
aði fyrir Sheffield.
í 2. deild heldur Oxford
áfram að vinna en nokkur
meistaraheppni var á sigrinum
á Bllackburn. Hamilton skor-
aði bæði mörk Oxford en
Garnergerði mark Blackburn.
Úlfarnir unnu stóran sigur á
Cardiff og þeim fer nú fram með
hverjum leik. Jim Melrose,
sem Úlfarnir eru með í láni,
var borinn af leikvelli, meidd-
ur. Úlfarnir vilja endilega
kaupa Melrose en það er held-
ur lítið um peninga á þeim bæ.
Er nú reynt af kappi að ná í
seðla því ef það tekst ekki þá
er líklegt að Man. City kaupi
kappann. Leeds sigraði loks
og nú voru þeir allgóðir. Sher-
idan, McCIusky og Garvin
skoruðu fyrir Leeds en Aizle-
wood og Lee gerðu mörk
Charlton.
Skotland:
í Skotlandi bar það helst til
tíðinda að Celtic tapaði fyrir
Morton og Rangers gerði bara
jafntefli á heimavelli gegn
Dundee. Aberdeen er í efsta
sæti en þeir léku ekki um
helgina þar sem fresta þurfti
leik þeirra gegn Hibernian.
ÚRSLIT
1. deild:
Aston Villa-Wcst Ham ... #-0
Chelesa-Coventry .......6-2
Everton-Leicester.......3-0
Ipswich-Watford...........3-3
Luton-Newcastle...........2-2
Sheff. Wed.-Norwich .... 1-2
Southampt.-Nott. For. . . . 1-0
Stoke-Liverpool ..........0-1
Sunderland-Q.P.R..........3-0
Tottenham-Wcst Brom. . . 2-3
Man. Utd.-Arsenal .....4-2
2. deild:
Birmingham-Shrewsbury . . 0-0
Brighton-Man. City......0-0
Charlton-Leeds............2-3
Huddersf.-Middlesb......3-1
Notts County-Grimsby ... 1-1
Oldham-Portsmouth .... 0-2
Oxford-Blackburn........2-1
Wolves-Cardiff............3-0