NT


NT - 05.11.1984, Side 24

NT - 05.11.1984, Side 24
„Við erum byrja“ ■ „Ég er hæstánægður með þennan árangur. Þetta er ungt lið og annað sæti í þessari keppni mjög gott fyrir það. Þau hafa verið sérstaklega dugleg krakk- arnir, bæði við að æfa og starfa, og það er mikið líf í þessu og mikill stuðningur á ísafirði,“ sagði Ólafur Þór Gunnlaugsson þjálfari Vestra frá ísafirði eftir að Bikarkeppni SSÍ, 2. deild lauk í gær. Ólafur sagði að krakk- arnir hefðu æft kerfisbund- ið í eitt ár, 11 æfingar væru á viku. Hann hefur verið við sundþjálfun á ísafirði um eins árs skeið. „Ég vil vera þarna í a.m.k. 3-4 ár í viðbót. Við erum rétt að byrja á uppbyggingunni. Og ég kvíði engu í því efni, áhuginn er svo mikill og lífið og fjörið í þessu. Krakkarnir eru sérlega duglegir.“ Stuttgart á uppleið - bls 23 - Everton á toppinn - bls 22 - Essen tapaði fyrsta - bls. 20 - Kári var sterkastur -bls 19- íþróttir bls. 19*24 ■ Lið UMFB, sigurvegarar í 2. deild Bikarkeppni Sundsambandsins 1984.1 þessum hópi eru Elín Harðardóttir, Eygló Karlsdóttir, Ásta Halldórsdóttir, Hildur Aðalsteinsdóttir, Margrét Halldórsdóttir, Sigurlín Pétursdóttir, Guðbrandur G. Garðarsson, Hannes Már Sigurðsson,. Hugi S. Harðarson, Jónas Aðalsteinsson, Magnús Már Jakobsson og Símon Þór Jónsson. NT-mynd: Sverrir Heimir og Amór á skotskónum Fró Reyni Þór Finnbogasyni fréttamanni NT í Hollandi: ■ Heimir Karlsson sem Ieikur með Exelsior í hollensku úr- vahsdeildinni í knattspyrnu skoraði annaö mark liðsins í gær, er liðið tapaði 2-4 fyrir Feyenoord, liði Péturs Péturs- sonar. Pétur átti mjög góðan leik. Arnór Guðjohnsen sem leikur með Anderlecht í Belgíu, kom inn á síðustu 15 mínútur leiksins gegn St. Niklaas í belg- ísku deildinni. Arnór gerði sér lítið fyrir og skoraði síðasta mark Anderlecht í 5-1 sigri, algerlega upp á eigin spýtur. - Sjá nánar um hollensku og belgísku knattspymuna á bls. 19. Heimir Karlsson - skoraði ir Excelsior. Bikarkeppni Sundsambandsins: Bolungarvík í i.deild - baráttan stóð á milli þeirra KR og Vestra ■ Ungmennafélag Bolungar- víkur hefur unnið sig upp í 1. deild Bikarkeppninnar í sundi. Liðið vann sannfærandi sigur í annarrardeildarkeppninni sem haldin var í Hafnarfirði um helgina, hlaut alls 198,5 stig, Vestri frá Isafirði varð í öðru sæti með 166 stig, KR í þriðja sæti með 121,5 stig. ÍBV í fjórða sæti með 66 stig, Njarð- vík í fimmta með 33 stig, b-lið Ægis í sjötta sæti með 22 stig og UMSB rak lestina með 5 stig. Ungu krakkarnir frá Bolung- arvík, undir stjórn Selfyssings- ins Huga S. Harðarsonar náðu yfirburðaforystu strax eftir keppnina á laugardag. Þá for- ystu lét liðið ekki af hendi og vann glæsilegan sigur þrátt fyrir að sterkustu greinar liðsins hafi verið á keppnisskránni fyrri daginn. Vestri frá ísafirði varð í öðru sæti. Þar fer mjög ung sveit eins og Bolungarvíkursveitin. Á ísa- firði hefur verið æft mjög mikið undanfarið ár, 11 sinnum á viku undir stjórn þjálfarans Ólafs Þórs Gunnlaugssonar. KR varð svo í þriðja sæti, en þar hefur mikið uppbyggingarstarf verið unnið að undanförnu. „Öll þessi þrjú lið hefðu með þeim mannskap sem þau skarta verið í 1. deildinni fyrir nokkr- um árum, svona eru framfarirn- ar miklar,“ sagði Guðmundur Árnason í stjórn Sundsambands íslands í samtali við NT í gær,- ■ Hugi Harðarson kampakátur með bikarinn sem hann og lið hans hlutu að launum fyrir glæsilegan sigur í 2. deild Bikarkeppni Sundsambands íslands. Hugi er þjálfari liðsins og syndir með því. NT-mynd: Sverrir „Gekk alveg áfallalaust" ■ „Þetta var mjög ánægju- legt, og gekk allt saman mjög vel. Ég er ánægður með sigur- inn,“ sagði Hugi S. Harðarson, sundmaðurinn sterki frá Sel- fossi, sem er þjálfari Ung- mennafélags Bolungarvíkur í sundi. Hugi syndir einnig sjálfur með liðinu. „Ég vissi að við myndum verða í baráttunni við KR og Vestra um sigurinn, en átti ekki endilega von á sigri. En þetta gekk allt mjög vel, nær alveg áfallalaust," sagði Hugi. Hugi sagði að liðið hefði æft mjög vel undanfarið ár, og þetta væri uppskeran. „Við höfum æft stíft, tvisvar á dag, og krakk- arnir eru orðnir mjög sterkir. Það er yngra fólkið sem ber þetta uppi, sama fólkið og vann sigur á Aldursflokkamótinu í Vestmannaeyjum í sumar,“ sagði hann. Sigur Bolvikinga á Aldurs- flokkameistaramótinu kom mjög á óvart í sumar, og nú hefur liðið unnið sig upp í fyrstu deild. Aðspurður hvernig hon- um litist á þá keppni sagði Hugi að hún yrði erfið: „Við töpum krökkunum þegar þau fara í framhaldsnám. Þegar þau kom- ast á menntaskólaaldurinn Í'urfa þau að sækja nám til safjarðar eða til Reykjavíkur, og þá missum við þau“, sagði hann. Þjálfun Bolungarvíkurliðsins er frumraun Huga í þjálfun, utan að hann þjálfaði yngstu krakkana á Selfossi, en þaðan er hann. Hann sagðist mundu verða á Bolungarvík amk- næsta árið við sundþjálfun. „Það er mikill áhugi fyrir sundíþróttinni í Bolungarvík, og sóknin í sundið hefur ekkert minnkað þótt nýtt íþróttahús hafi verið tekið í notkun í fyrra,“ sagði Hugi Harðarson. Blomquist varð heimsmeistari Svijnn Stig Blomquist á Audi Quattro varð í gær heimsmeistari í rallakstri, cr hann sigraði í Fílabeins- strandarrallinu. Blomquist vann þannig heimsmeist- aratitilinn með glæsibrag, en honum dugði nánast að Ijúka þessu ralli til að verða hæstur að stigum í heims- meistarakeppninni.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.