NT - 06.12.1984, Side 2

NT - 06.12.1984, Side 2
Fimmtudagur 6. desember 1984 ©%' «<£ , «0^ o$ C\^'N ,AtO ,5> AvlÓ^ „.V^ v<V\ t<jT Gunnar Ásgeirsson hf. SúdiilancJsbrau! 16 Simi 9135200 Miklar skipulagsbreytingar hjá Iðnaðarbankanum: Starf smenn óttast um stöður sínar Engum verður sagt upp vegna skipulagsbreytinganna, segir Ragnar Önundarson bankastj. Iðnaðarbankans ■ Miklar skipulagsbreyting- ar standa fyrir dyrum hjá Iðn- aðarbankanum í byrjun næsta árs og hefur danskur skipulags- sérfræðingur unnið að þeim fyrir bankann að undanförnu. Iðnaðarbankinn hefur fyrstur banka á íslandi komið upp svokölluðum tölvubanka, þar sem hægt er að taka út fé allan sólarhringinn með sérstökum lykilkortum og hafa tveir slíkir bankar þegar verið settir upp. Tveir til viðbótar munu bætast við eftir áramótin. Annar á Akureyri og hinn í Grensásúti- búi Iðnaðarbankans. Þegar hafa komið yfir 1000 umsóknir um lykilkort til Iðnaðarbank- ans að sögn Ragnars Önundar- sonar, bankastjóra og er búið að afgreiða 800 kort. Á þessu stigi málsins kvað Ragnar of snemmt að skýra frá í hverju þessar skipulagsbreyt- ingar fælust í smáatriðum, en eftir því sem NT kemst næst mun niðurröðun verkefnaeftir deildunr verða stokkuð veru- lega upp og deildirnar endur- skipulagðar og þeim gefin ný nöfn í framhaldi af því. Hefur bankinn auglýst eftir starfs- fólki gegnum ráðningarstofuna Hagvang, þar sem óskað er eftir að ráða útibússtjóra í stórt bankaútibú í Reykjavík, auk forstöðumanná fyrir rekstr- arsvið, fjármálasvið, lánasvið og markaðssvið. í framhaldi af þessari auglýs- ingu komu upp óánægjuraddir meðal stafsfólks Iðnaðarbank- ans, sem óttaðist um sínar stöður og þótti gengið fram hjá starfsfólki, en Ragnar upplýsti að fullt samráð hefði verið haft við Starfsmannafé- . lagið um þessa auglýsingu og að öllu jöfnu myndu starfs- menn bankans, sem uppfylla þau skilyrði sem sett eru, ganga fyrir við ráðningu. Benti hann á að þessi störf hefðu verið auglýst innanhúss, áður en umrædd auglýsing kom í blöðum, og einnig hefðu þess- ar stöður verið auglýstar á vegum Sambands íslenskra bankamanna. Sagðist Ragnar reikna með að Iðnaðarbankinn hefði sterka umsækjendur innanhúss um flest þessi nýju störf. Undirstrikaði Ragnar ennfremur að engu starfsfólki yrði sagt upp vegna væntan- TRYGGVAGOTU 26 SÍMI26906 Akurnesingar pissa - eins og aðrir! ■ Heilbrigðisfulltrúi Akraness, Guðni Halldórs- son, upplýsir í Skagablað- inu að hugmynd um al- menningssalerni í miðbæn- um hafi komið upp en framkvæmdir hafi ekki enn orðið neinar, enda sé þetta fyrst og fremst spurning um peninga. „En Akurnesingar þurfa auðvitað að pissa eins og annað fólk“ er haft eftir honum og föllum við dauð- legir menn í stafi yfir slíkri yfirlýsingu. Það hefur löng- um verið vitað að á Skagan- um hefur vaxið upp fræki- legt lið afreksmanna og íþróttagarpa og gæti eins vel verið að þeir væru yfir þessar mannlegu þarfir hafnir.En svo er þá ekki. Einhver bið verður þó á því að „almenningspissú- ar“ rísi á Skaga, því fyrst þarf það að komast inn á fjárhagsáætlun, áður en hægt er að gera sér vonir um að upphefjist nýir og betri tímar fyrir „hland- sprungna" Skagamenn. „Tippið“ uppi á Hildibröndum ■ Hildibrandar í Eyjum láta ekki deigan síga og hafa tekið á honum stóra sínum og ráðist í útgáfu fréttablaðs sem þeir nefna Júlíus - málgagn líðandi stundar. Málgagnið er helgað al- heimskveðju Moonara, sem þeir brandar voru dæmdir glæpamenn fyrir í hæstarétti eftir að hafa framkvæmt hana af mikilli eljusemi og nákvæmni einn laugardagsmorgun við mis- jafnar undirtektir vegfar- enda í Eyjum. í leiðara (?) er varpað fram spurning- unni hver sé munurinn á því að kona komi fram allsnakin í Þjóðleikhúsinu (Steinunn Jóhannesdóttir), eða karlmaður (Sólar- landaferð) einnig í Þjóð- leikhúsinu eða á Lækjar- torgi (Listahátíð) og að nokkrir hressir Eyjapeyjar heilsi vinum sínum með alheimskveðju Moonara. Fyrir það hafi þeir verið dæmdir andþjóðfélagslega innrættir glæpamenn en aðrir komist átölulaust upp með stríplið. Af öðru efni má nefna bréf frá Þórði „frænda“ og skýrslu lögreglunnar í Eyj- um auk lýsingar á því hvernig ekki eigi að eyða laugardegi í Eyjum. Einnig er dómur og dómsorð hæstaréttar í máli þeirra Hildibranda birtur og það upplýst landslýð til við- vörunar eða hvatningar að það kosti einungis 13 þús- und krónur að „Moona“. Krabbi í vinning... ■ Umfjöllun fjölmiðla um tengsl á milli aukinnar sólarlampanotkunar og aukningar húðkrabba- meinstilfella fór mjög fyrir brjóstið á eigendum sólar- lampastofa, enda ekki að furða. Aðsóknin hefur eitthvað dregist saman. En enginn er sekur fyrr en sekt hans sannast. Þetta sannast áþreifanlega þegar litið er á auglýsingu í sjón- varpinu frá Krabbameinsfé- laginu, þar sem happdrætti er á ferð. Vinningarnir eru nefnilega auk bíla og ýmis- legs góðgætis tíu sólar- lampar. Afdrifaríkur dagur Hvemig ekki á að eyða laugardegi í Eyjum legra skipulagsbreytinga, en Ijóst væri að einhver röskun yrði á högum manna, en reynt yrði að koma þeim breytingum í gegn á eins nærgætinn hátt og hægt væri. Guðjón Reynisson, formað- ur Starfsmannafélags Iðnaðar- bankans staðfesti í viðtali við NT, að því hefði verið lofað í viðræðum stjórnenda bankans og Starfsmannafélagsins að engum af núverandi starfs- mönnum bankans yrði sagt upp og kvaðst hann ekki trúa öðru en að við það yrði staðið. Sagðist Guðjón vita til þess að einstakir menn innan bankans væru hræddir um stöðu sína, en þessar breytingar ættu ekki að koma niður á starfsfólki á neinn hát. Sagði hann enn- fremur að þessar skipulags- breytingar hefðu á engan hátt farið leynt innan bankans og þær hefðu verið auglýstar þar, en e.t.v. hefði mátt láta um- sóknarfrest innan fyrirtækisins renna út áður en farið var að auglýsa þessar nýju stöður í blöðum. Tillaga um sér- stakan nammidag! ■ Tannlæknir einn á Akranesi, Ægir Rafn Ingólfsson, hefur tekið upp þann sið að afhenda öllum foreldrum sem koma með börn sín til tannviðgerða hjá hon- um fræðirit þar sem m.a. er lagt til að for- eldrar taki upp sérstak- an nammidag fyrir börn sín. Leggur Ægir áherslu á að sælgætisáti barna sé stillt í hóf og segir orðrétt í bréfinu að „einhverjir alverstu óvinir barnanna eru ömmur, afar og annað venslafólk,“ en þetta fólk er einmitt hvað duglegast að ota sælgæti að börnum. Gengur því auðvitað ekkert nema gott til en er ómeðvitað að vinna að auknum tannskemmdum hjá börnum. Leggur hann til að komið verði á fót nammidegi einu sinni í viku þar sem börnin fái að borða eins nrikið gott og þau lysti en eftir á verði síðan tennurnar burstaðar rækilega. í samtali við NT sagð- ist Ægir einungis hafa fengið góðar undirtektir frá foreldrum, enda væri hann fyrst og fremst að miðla af reynslu sinni sem for- eldri og tannlæknir, en ekki að reyna að setja sig á einhvern fræðileg- an háhest. Sagði hann að í framhaldi af þessu væri verið að stofna sérstakt ömmuvinafélag á Skaga og ætti hann að rcrða heiðusfélagi. Einar Bollason tekur við málverkinu af ÞorkeU Bjamasyni. Fengu fjögur málverk ■ Hestamannafélagið Gustur í Kópavogi opnaði nýtt félagsheimili „Glaöheima" í hesthúsabyggð sinni sl. laugardag. Félagsmenn í Gusti ásamt mörgum gestum, sem til var boðið, fögnuðu hinu nýja húsi með myndarlegri veislu. Einar Bollason, formaður félagsins, rakti sögu hins nýja félagsheimilis í stuttri ræðu. Húsið er 104 m‘ timburhús sem keypt var af Landsvirkjun. Frá því húsið var keypt í október hafa allt að 50 félagsmenn lagt hönd á plóginn við að koma því í það horf, sem það er í nú. Það er mjög vistlegt með borðum og stólum í sal, auk þriggja herbergja, eldhúss og anddyris. Margar góðar gjafir bárust félaginu á þessum tímamótum. Listmálarinn Baltasar gaf þrjú málverk og systkinin frá Laugarvatni, Þorkell Bjamason og Védís Bjarnadóttir, gáfu málverk af föður sínum ríðandi á Gusti, hestin- um sem þetta félag heitir eftir. Bæjar- stjórinn í Kópavogi afhenti félaginu merki bæjarins og ýmsar fleiri gjafir bárust. Félagsmenn í Gusti eru nú 356. ■ Glaðheimar, hið nýja og stæðilega félagsheimili þeirra Gusts-manna. NT-myndir: Unnur

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.