NT - 06.12.1984, Qupperneq 5
Fimmtudagur 6. desember 1984
Svavar Gestsson ásakar ríkisstjórnina:
Orvinglan á alþýðuheimilum
■ Svavar Gestsson gagnrýndi ríkisstjórnina og efnahagsstefnu
hennar harðlega á fundi neðri deildar alþingis í gær, er hann mælti
fyrir frumvarpi alþýðubandalagsmanna um tryggingu kaupmáttar
og viðnám gegn verðbólgu.
Svavar sagði að nú ríkti ör-
vinglan á alþýðuheimilum þar
sem laun dygðu engan veginn
fyrir lífsnauðsynjum. Hann
sagði að vaxtastefna ríkisstjórn-
arinnar stefndi í miklar ógöngur
þar sem vaxtabyrði væri hús-
byggjendum og atvinnuvegun-
um ofviða.
Alþýðubandalagið lagði fram
þetta frumvarp, sagði Svavar, til
að stefna þess í efnahagsmálum
liggi fyrir.
Hann sagði að mikil milli-
færsla á fjármunum hefði átt sér
stað frá launafólki og atvinnu-
vegunum til milliliða, og sagði
með ólíkindum að á þessu ári
hefði fyrirtæki til innflutnings
lúxusbíla verið stofnað, kaup-
sýslumenn álitu það mesta
þarfaverk að hefja innflutning á
gulli og að tímarit sem helgað er
lúxus hefði göngu sína.
Svavar sagði kaupmáttar-
skerðingu ekki vera í neinu sam-
rænti við minnkandi þjóðartekj-
ur, og nefndi sern dæmi að síöan
1974 Itefði þjóðarframleiðsla
aukist um 2,4% en kaupmáttur
launataxta rýrnað um 33,7%.
Þá gagnrýndi Svavar harkalega
offjárfestingu í verslun. Hann
sagði að verslunin væri dýrasti
bagginn á þjóðinni um þessar
mundir.
Þegar ræðu Svavars lauk var
fundi neðri deildarinnar nærri
lokið, en Matthías Á. Mathics-
en, viðskiptaráðherra, tók til
máls en lauk ekki ræðu sinni.
Matthías sagði ræðu Svavars
hafa verið „öfugmæli. þver-
sagnir og rangfærsiur.” Hann
sagði næsta furðulegt að Svavar
sem hefði verið ráðherra í 5 ár,
og valdamikill sem slíkur skyldi
láta fara frá sér á þingi, vottorð
um eigin „aumingjaskap" í
stjórn, en það sagði Matthías að
»9
frumvarp alþýðubandalags-
manna væri.
Hann sagði einnig að hann
minntist þess ekki, að á meðan
Svavar var viðskiptaráðherra,
að „hann hefði rctt litla fingur”
til þess að gera nokkuð af því
sem lagt er til að gert sé í frunt-
varpinu. Hann sagði íurðúlegt
að heyra frá mönnum sent bæru
velferð barna og gantalmenna
fyrir brjósti að vaxtahækkun í
22%, þegar stefndi í yfir 30%
verðbólgu, væri aðför að þeim.
Hann spurði: Á að láta sparifé
0fugmæii
rai*gfasis/.
w> segir
vjðskipta.
fáðherra
fólksins rýrna um allt að
helnting, með því að hafa vexti
langt undir verðbólgu?
í ræðu sinni sagði Svavar að
ncyð blasti við alþýðuheimilum
og skoraði á stjórnina að fara í
kynnisferð urn Breiðholtið og
kynna sér kjör fólks. „Eru þeir
komnir svo langt frá raunveru-
leikanum að þeir átti sig ekki á
livað er að gerast?"
Umræðunum verður fram-
haldið á næsta fundi deildarinn-
ar.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Ásgeir Stein-
grímsson einleik-
ari á trompett
■ Ásgeir Steingrímsson trompettleikari
ber hitann og þungann af 5. áskriftartónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar íslands sem verða
í Háskólabíói í kvöld. Hann leikur einleik í
tveim verkum, Sónötu fyrir trompett og
stengi eftir Henry Purcell og Trompettkons-
ert eftir Alexander Arutjunan. Ásgeir hefur
ekki áður leikið með Sinfóníuhljómsveit-
inni, en hann hefur komið fram sem einleik-
ari með íslensku hljómsveitinni og hlotið
viðurkenningu, sem afburða trompettleik-
ari. Ásgeir er Húsvíkingur að uppruna og
hóf tónlistarnám þar, og síðar naut hann til-
sagnar trompettleikaranna Jóns Sigurðsson-
ar og Lárusar Sveinssonar. Hann stundaði
framhaldsnám í New York Fílharmóníunni.
Önnur verk á efnisskránni annað kvöld
verða „Orgia" eftir Jónas Tómasson, Sin-
fónía eftir Haydn og „Till Eulenspiegel",
tónaljóð óp. 28 eftir Richard Srauss. Stjórn-
andi á tónleikunum verður Páll P. Pálsson.
Áskirkja í kvöld:
Kammersveitin
frá Heidelberg
■ Heidelberg Kammerorkester, eða
Kammersveit Heidelbergborgar heldur tón-
leika í Áskirkju í kvöld kl. 20.30. Á efnisskrá
er Konsert í d-moll fyrir tvær fiðlur eftir J.S.
Bach, Flautukonsert í A-dúr eftir Mozart,
Gítarkonsert eftir Vivaldi og Veturinn úr
Árstíðunum eftir sama höfund, Canon og
Gigue eftir Pachelbel og Flautukonsert eftir
Telemann. Einleikarar verða Poul Collins
og Johann Reinfeld á fiðlur, Tilman Hopp-
stock á gítar og Reinhard Sunnus á flautu.
Heimsóknin hér er liður í ferð kammer-
sveitarinnar um Evrópu og Norður- og
Mið-Ameríku. Heidelberg Kammerorkester
var stofnuð 1960 og á að baki tónleikaferðir
víða um heim og hefur auk þess gert tugi
hljóðritana fyrir útvarp og á hljómplötur.
Manneldisfélagið:
Flúor í fæðu
■ „Flúor í íslenskum matvælum og flúor-
tekja úr fæði hérlendis er efni fundar
manneldisfélagsins, sem haldinn verður í
stofu 101 í Lögbergi í kvöld kl. 20.30.
Það er dr. Alda Möller matvælafræðing-
ur, sem reifar málið og skýrir frá niðurstöð-
um nýrra rannsókna á efninu.
Leiðrétting:
Guðmundur en
ekki Ingveldur
■ Þau mistök áttu sér stað á forsíðu
blaðsins í gær að myndir úr Vest-
mannaeyjum voru merktar Ingveldi.
Það var Guðmundur Sigfússon ljós-
myndari í Eyjum sem tók myndirnar
fyrir NT en Ingveldur sem oft hefur
myndað fyrir NT í Eyjum er ifríi. Eru
hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Hugmynda-
samkeppni
Unaðarbankans
Mtl merid
mil tííkn
Mikil gróska er nú í starfsemi Iönaöarbankans.
Bankinn hefur vaxiö ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfir víötæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, aö
búa hann enn betur undir þaö markmið, aö vera
nútíma banki, sem veitir góöa þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
a) Urn nýtt merki, skrift og einkennislit, eöa liti fyrir
bankann.
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum bankans.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra auglýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt veröa ein verðlaun fyrir bestu tillögurnar.
a) Fyrir merki, skrift og einkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrirtákn kr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10-15 cm í þvermál, í
svörtum lit, á pappírsstærð DIN A-4. Einkenna skal
tillögurnar meö kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuöu ógagnsæju umslagi.
Þátttakendum er heimilt aö senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fylgja sér umslag meö nafni höfundar.
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Björnsson, teiknari FÍT., Rafn Hafnfjörð, prent-
smiöjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaöarmaöur
keppenda er Jónína Michaelsdóttir, Iönaöarbankan-
um viö Lækjargötu. Þátttakendur geta snúiö sér til
hennar og fengiö frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna er til 15. janúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu lönaöar-
bankans merktum:
Iðnaðarbankinn
Hugmyndasamkeppni
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefnd skal skila niöurstööum innan eins mánað-
ar frá skiiadegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæöin er ekki hluti af þóknun
höfundar. Iðnaöarbankinn áskilur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefnd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til aö kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt veröskrá FÍT.
lónaóartankinn
-nútima banki