NT

Ulloq

NT - 06.12.1984, Qupperneq 15

NT - 06.12.1984, Qupperneq 15
Fimmtudagur 6. desember 1984 15 Lýsandi veginn Ný Ijósatækni frá Ameríku ■ Sylvania er einn fremsti framleiðandi ljósabúnaðar í Bandaríkjunum og hér er tillaga frá þeim um hvernig framljós á bíl geta litið út í framtíðinni. Petta eru fjórar pínulitlar ljósasamlokur í stað einnar eða tveggja stærri og eru tvær fyrir lága geislann og tvær fyrir háa geislann hvoru megin. Gallarnir eru engir að sögn Sylvaniamanna utan meiri framleiðslukostnaðar. Ljósin átta eiga að gefa sama birtumagn og hefðbundin ljós gera en aðalkostnaðurinn er fyrir bílaframleiðandann sem getur komið þeim þannig fyrir að þau auki ekkert á loftmót- stöðuna, eins og á þessum tilraunabíl frá Ford. Til þess að ljósin sjáist betur er glæra hlífin sem liggur yfir ljósunum tekin í burtu. Fessi ljósaþyrping er ekki nema um 7-8 sentimetrar á hæð og er ein ástæða af mörgum fyrir afar lítilli loftmótstöðu Probe IV, sem ber fyrstur allra þessa nýjung. Sylvania segja að pínuljósin sín verði innan skamms komin framan á a.m.k. eina tegund bíls sem þeir vildu ekki nefna, og fleiri fylgi seinna. Ef svo er megum við búast við mikilli breytingu á hefðbundnu andliti bílanna okkar, fyrst hurfu vatnskassahlífarnar og nú á að taka ljósin, augu bílsins frá okkur! Sbarro: Svissneskt eyðimerkur* skip ■ Franco Sbarro heitir mætur borgari í Sviss. Til fyrirtækis hans hafa nýríkir nonnar hvaðanæva að úr heiminum löngum komið til þess að fá ruglaða drauma sína setta á hjól. Móðurmál flestra viðskiptavina Sbarros nú er arabíska og ræður smekkur eyðimerkursonanna því mestu um útliti nýrri meistaraverka (?) Francos. Petta hér er það nýjasta, á blöðrudekkjum til að fljóta á eyðimerkursandinum og með drif á öllum til þess að klífa sandöldurnar. Upp úr vélarhlífinni rísa digur gljáandi krómrör og ná alveg upp á topp ferlíkisins. Tilgangurinn? Öðrum megin dregur sex strokka BMW vélin inn loft en hinum megin blæs hún frá sér. Ég spurði sölumenn Sbarro um kaupandann og fleira í þeim dúr; svörin voru flest á sömu leið; nei, hann vill ekki láta nafns síns getið, nei, við getum ekki gefið upp verðið, nei, það verða ekki smíðaðir fleiri. Nema... nema einhver vilji borga fyrir það! NOTAÐIR AMERÍSKIR ?rs ttV'b JOFUR HF ^ NÝBÝLAVEGI2 S»« KOPAVOGI Sj MI 42600

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.