NT - 06.12.1984, Page 24
Yetrarskoðun
Allir þurfa að hafa bifreiðina sína í lagi, sérstaklega
yfir vetrartímann. Við yfirförum bifreiðina ykkar fyrir
aðeins kr. 1.890,-, og bjóðum eftirfarandi:
1. Kveikjubúnaður. Kerti, þræðir, kveikjulok, kv.hamar, platínur
og blöndungur. (Skipt um ef þarf.)
2. Ventlastilling.
3. Tímakeðjusleðar og tímakeðja ath.
4. Vélastilling
5. Viftureim ath., rafgeymir mældur, geymasambönd hreinsuð
og varin.
6. Frostvari settur á rúðusprautur og rúðuþurrkur ath.
7. Frostvari settur á hurðarcylender fyrir lykil og silikon sett á
hurðar og farangursþéttikanta.
8. Læsingar og lamir smurðar á hurðum, vélarloki og farangurs-
geymslu.
9. Frostlögur mældur og kælikerfi ath.
10. Öll Ijós yfirfarin og Ijósastillt ef þarf.
11. Bremsur ath., (Hert út í ef þarf)
12. Stýrisgangur og hjólabúnaður ath.
13. Pústkerfi ath., festingar o.fl.
14. Slit á hjóllegum og hjöruliðum ath.
15. Kúpling stillt.
16. Vélarolía mæld og bætt á ef þarf.
17. Olía ath., á drifi og gírkassa.
Ath! Efni er ekki innifalið í verðinu.
Tökum einnig að okkur að tjöruþvo,
þrífa og bóna bifreiðina.
B1FREIÐAVERKSTÆÐIÐ
DVERGUR
Smiðjuvegi E 38 ' Símar: 74488 - 79734.
Sértilboð beint frá Hong Kong
Hundar sem labba og gelta, 6 gerðir.
Vélmenni m/sjónvarpi, músik og síma.
Bílabrautir rafm. kr. 990.-
Rafmagnsbílar-Bensínstöðvar-Smásjár.
Vélbyssur - Geimbyssur - Kúluspil.
Superman-föt - Spiderman-föt
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10. S. 14806.
LEIKFANGAHÚSIÐ
JL Húsinu v/Hringbr. s. 621040
Skortur á getnaðar
verjum í Víetnam
Bangkok-Reuter
■ Ör fólksfjölgun í Víetnam að undan-
förnu er mikill dragbítur á efnahagsþró-
un þar í landi samkvæmt niöurstöðum
fólksfjölgunarsérfræðinga sem nú funda
í Bangkok.
Víetnömum fjölgar nú um 2,4 til
2,5% á ári. Þeir voru 54 milljónir árið
1981 samkvæmt opinberum heimildum
og eru nú taldir um 57 milljónir. Ef svo
fer sem horfir er búist við því að þeir
verði um 90 milljónir um næstu aldamót
þótt stjórnin hafi sett sér að halda
fólksfjöldanum innan við 75 milljónir á
þessari öld.
Mannfjöldafræðingar segja eitt aðal-
vandamálið við takmörkun barneigna í
Víetnam vera að Víetnamar sjálfir
framleiði ekki smokka, getnaðarvarn-
arpillur og lykkjur sem hinda þungun.
Þeir hafi hins vegar ekki efni á að flytja
þennan varning inn þar sem lítið sé til
af gjaldeyri í landinu. Innflutningur
Víetnama á getnaðarverjum er nær
eingöngu fjármagnaður af Fólksfjölda-
sjóði Sameinuðu þjóðanna sem veitir
árlega um 500.000 dollara til kaupa á
getnaðarverjum fyrir Víetnam. Sú upp-
hæð mun aðeins nægja til að útvega um
10% af Víetnömum á barnseignaaldri
aðgang að getnaðarverjum. Nú stendur
samt til að byggja smokkaverksmiðju í
Ho Chi Minh-borg á næsta ári með
aðstoð frá Sameinuðu þjóðunum. Full-
trúi Fólksfjöldasjóðs Sameinuðu þjóð-
anna í Hanoi, Michel Amiot, segir að
■ Flóttamannabúðir í Hong Kong. Stöðugur straumur flóttamanna frá Víetnam
virðist ekki hafa nein áhrif á fólksfjölgunina þar. Þrátt fyrir fólksflóttann fjölgar
Víetnömum nú um 2,4 til 2,5% á ári.
verksmiðjan muni framleiða um 75 til fjármögnun verksmiðjunnar samt ekki
80 milljónir smokka frá og með árinu endanlega verið samþykkt þannig að
1988. Samkvæmt öðrum embættis- almennar getnaðarvarnir í Víetnam
mönnum Sameinuðu þjóðanna hefur gætu jafnvel dregist enn lengur.
Jesse Jackson leyft að
heimsækja Suður-Afríku
- Tutu skammar Reaganstjórnina
Washinglon-Reuter
■ Talsmaður blökkumanna-
leiðtogans Jesse Jackson, jress
svertingja sem náð hefur lengst
í forsetakjöri í Bandaríkjunum,
hefur skýrt frá því að Jackson
hafi fengið leyfí til að heimsækja
Suður-Afríku.
Jackson mun hafa fengið símtal frá
sendiherra Suður-Afríku í Washing-
ton þar sem honum var tilkynnt um
ákvörðun stjórnarinnar í Pretóríu að
veita honum vegabréfsáritun.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær af
heimsókninni verður, en líklega er
það einhvern tíma á fyrri hluta næsta
árs.
Meðan Jackson sóttist eftir forseta-
kjöri var honum neitað um fararleyfi
til Suður-Afríku, en þá vakti hann
heimsathygli fyrir ferðir sínar til
Sýrlands, Kúbu og Nicaragua.
SMRT
Veitum alla hársnyrtiþjónustu
• DÖMU , HERRA 0G BARNAKLIPPINGAR
• DÖMU 0G HERRAPERMANENT
• LITANIR - STRÍPULITANIR - NÆRINGARKÚRAR
NÆG BÍLASTÆÐI
SMART
Nýbýlavegi 22 - Kópavogi - örfittfTF
Sími 46422.
Á sama tíma fer óánægja með
stefnu Reagans forseta í Suður-Afr-
íku stigvaxandi. í fjölmörgum borg-
um Bandaríkjanna hefur verið efnt til
mótmælaaðgerða og í Washington
hefur verið mótmælastaða utan við
sendiráð Suður-Afríku í þrjár vikur
samfleytt.
Desmond Tutu, nóbelsverðlauna-
hafi og biskup í Suður-Afríku, átti
fyrr í vikunni fund með bandarískum
þingmönnum í Washington. Hann
gagnrýndi stefnu Reaganstjórnarinn-
ar í málefnum Suður-Afríku harðlega
og sagði að hún ætti samstarf við
þjóðfélagskerfi sem væri ekki síður
„illt, ókristilegt og ósiðlegt en nasism-
inn“.
„Annað hvort standið þið með
kúgurunum eða hinum kúguðu,"
sagði Tutu ennfremur við þingmenn-
ina, sem risu úr sætum sínum og
klöppuðu honum lof í lófa.
■ Jesse Jackson; fær að fara til Suður-
Afríku á sama tíma og andúðin á stefnu
Reagans í þeim heimshluta vex.