NT - 10.12.1984, Blaðsíða 8

NT - 10.12.1984, Blaðsíða 8
■ Jens Hansson (21) saxófónleikari er orðinn fastur meðlimur í Das Kapital en hafði áður vakið á sér athygli fyrir leik sinn með Megasi á söngskemmtuninni í Austur- bæjarbíói um daginn. NT hitti hann að máli á dögunum og var hann fyrst spurður hvernig það hefði atvikast að hann fór að spila með Bubba og félögum. , „Það var í beinu framhaldi af leik mínum á plötunni Lili Marlene sem ég kem í hljómsveitina. Ég og Gummi höfum verið félagar síðan við vorum litlir, svo þannig kom ég inn í myndina." - Nú ert þú alveg nýtt nafn í íslenska poppinu, hefurðu verið mikið í músík? „Ég hef verið í tónlistarnámi í skóla FÍH í 21/2 ár þar sem ég hef aðallega lagt stund á jazzsaxófónleik og útsetningar. Einnig starfaði ég sem tónlistarkennari á Ólafsvík veturinn 82-83 og fram að áramótum í fyrra. Þar var ég í hljómsveit sem hét Klakabandið og spilaði plein rokk á dansleikjum." - Hvernig var að spila með Megasi? „Það var mjög gott. Hann er mað ailt á hreinu, allt skrifað á nótur og veit uppá hár hvernig hann vill hafa þetta. Upphaflega átti Das Kapital að leika undir hjá honum, en þeir höfðu ekki tíma, en hann var búinn að biðja mig um að spila með sér.“ - Hvernig er að vera orðin „poppstjarna"? „Ég tek þessu öllu með mestu ró, það þýðir ekki annað. Ég er í þessu samhliða náminu þannig að þetta bitnar auðvitað eitthvað á því, en ég hef unnið með skólanum áður. Þegar ég kenndi á Ólafsvík var ég líka í FÍH, fór þangað einu sinni í viku til að kenna og spilaði um helgar þannig að núna er þetta betra að því leyti að ég er alveg í bænurn." - Á hvaða músíklínu ert þú? „Mér finnst öll músík góð og hlusta á allt en auðvitað er það misjafnlega skemmtilegt. Þó ég hafi lagt stund á jazzsaxófónleik þá er það ekki planið að verða jazzleikari eingöngu.“ - Hvað viltu segja um nýju plötuna ykkar, Lili Marlene? „Við erum náttúrlega fyrst og fremst að spila gamalt og gott rokk á henni en ég held að það sem við komum til með að gera í framtíðinni verði allt öðru vísi. Síðan ég kom með höfum við notað synthersizer miklu meira og saxófóninn, þannig að lögin eru töluvert öðruvísi á tónleikum hjá okkur núna en þau eru á plötunni." - Svo þú ert bara hress með lífið og tilveruna? „Já, mér líst bara vel á þetta og ætla að veðja á músíkina í framtíðinni. Bara vonandi að maður geti lifað af þessu!“ M Jens Hansson synt og saxófónleikari Das Kapital á tónleikunum á Borginni á dögunum. NT-myndáþj. „Bara vonandi að maður geti lifað af þessu!“ - segir Jens Hansson saxófónleikarí sem nýlega gekk til liðs við Das Kapital 10. desember 1984 8 Tvær r m nyjar safn- plötur frá Spor m Safnplötur eru orðnar fastur liður á íslenska plötumarkaðnum og nýlega komu tvær slíkará markaðinn frá Sporhf. Nokkuð hefur verið deilt um ágæti slíkrar útgáfu og mörgum finnstað þar sé soðið saman íeina súpu lög sem lítið eiga sameiginlegt. Hvað um það, þetta getur verið handhægt fyrir þá sem vilja eiga helstu smellina á einum stað og óneitanlega hlýtur þetta að létta störfin hjá þeim sem gera þætti á Rás 2. Ennþá minna þarf að hafa fyrir þáttagerðinni, bara hægt að arka inn í stúdió með einn safngrip og láta móðann mása. Endurfundir licitir önnur safnplatan frá Spori og inniheldur rómantískar ballöður frá ýmsum tímum, innlendar og erlendar. Getur verið ágætis afþreying í skammdeginu og hugsanlega lifa eitthvða fram á Porrann. Dínamit heitir hinn safngripurinn og hefur að geyma öll nýjustu lögin sem tröllríða útvarpsþáttunum. Hafi menn ekki fengið nóg eftir að hlusta á rásina má náttúrlega bregða þessari plötu undir nálina og fá nýjasta poppskammtinn beint í J hlust. rvy^ VT! srnffRT Veitum alla hársnyrtiþjónustu • DÖMU . HERRA OG BARNAKLIPPINGAR • DÖMU- OG HERRAPERMANENT • LITANIR - STRÍPULITANIR - NÆRINGARKÚRAR NÆG BÍLASTÆÐI SMART 0% Nýbýiavegi 22 - Kópavogi - SfiTRTfF Sími 46422. dálkURiNn 2 aðstoðarmenn með Mezzoforte 16. des. ■ Hollendingurinn JeromeDeRijk sem leikið hefur með Mezzoforte á hljómleikum á ásláttarhljóðfæri kemur til landsins til að leika með þeim á hljómleikunum í Háskólabíói 16. des. Einnig mun danskur saxó- fónleikari, Niels Macholm, koma fram með Mezzoforte við það tæki- færi, þannig að aðdáendur sveitar- innar sem sakna saxans á nýju plötunni ættu að fá þar einhverja sárabót.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.