NT - 10.12.1984, Blaðsíða 9

NT - 10.12.1984, Blaðsíða 9
Mánudagur 10. desember 1984 9 íslensk orgelverk ■ Út er komin hjá íslenskri tónverkamiðstöð hljómplata, íslensk orgeltónlist, Ragnar Björnsson leikur á orgel Krist- skirkju. Á plötunni eru verk eftir átta íslensk tónskáld. Inngangur og Passacaglía eftir Pál ísólfsson, Prelúdía, Kórall og Fúga eftir Jón Þórarinsson og Sex Sálm- forleikir yfir íslensk sálmalög. Sálmforleikirnir voru samdir að tilhlutan Ragnars Björnssonar, sem frumflutti þá í Skálholts- kirkju sumarið 1980, þeir eru eftir Jón Nordal, Ragnar Björnsson, Gunnar Reyni Sveinsson, Atla Heirni Sveins- son, Leif Þórarinsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Platan er sem fyrr segir tekin upp í Kristskirkju í Landakoti og fóru upptökur fram í sept- ember 1983. Tónmeistari var Bjarni Rúnar Bjarnason, press- un og skurð annaðist Teldec í Þýskalandi. Jón Reykdal gerði mynd á plötuumslagi og sá að öllu leyti um útlit þess. Guð- mundur Emilsson skrifaði texta á meðfylgjandi bæklingi. Sveifla milli sorgaroggleði ■ Komin er út ástarsagan „Þú sem ég elska“ eftir Danielle Steel. Áður hafa komið út 4 bækur eftir sama höfund, en þær eru: Gleym mér ei - Hring- urinn - í hamingjuleit ogLof- orðið. Á hlífðarkápu segir um efn- isþráð bókarinnar. „Þú sem ég elska". Ung og fögur en rúin auði snýr aðalsmærin Serena di San Tibaldi heim til Ítalíu í lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Hún fær vinnu í höllinni, sem áður var heimili hennar. Þar kynnist hún Bradford, banda- rískum majór og þau giftast. En örlögin virðast ætla að leika sér með þessa fögru og sérstæðu stúlku. Hún mætir andúð tengdamóður, missir mann sinn og aftur verður Serena di san Tibaldi að leita sér að atvinnu, nú með litla dóttur til að sjá fyrir. Sem Serena prinsessa verður hún fræg og eftirsótt fyrirsæta og kynnist nýrri hlið á lífinu og nýju og spennandi fólki. En einnig þar eru bæði dökkar hliðar og bjartar og lífið heldur áfram að sveifla Serenu milli gleði og sorgar, þar til örlögunum finnst loksins komið nóg. JÓLAGJÖFIN HENNAR JILSANDER NÝTT Á ÍSLANDI: JIL SANDER Viö kynnum fjórar glæsilegustu ilm- og baölínur sem fáanlegar eru á Islandi í dag: WOMAN PURE, WOMAN TWO, BATH AND BEAUTY og MAN TWO, frá JIL SANDER. Hönnuöur þeirra er meöal fremstu tískufrömuða heims, JIL SANDER. Snyrtivörur hennar eru einstæöar og einkennast af fáguöu látleysi. Komið, sjáiö og sannfærist. Viö mælum með JIL SANDER og bjóöum þig velkomna. MIRRA Hafnarstræti 17, R. SNYRTIVÖRUBÚÐIN Glæsibæ, Rvík NAFNLAUSA BÚÐIN Strandgötu, Hafn. SARA Bankastræti 8, R. NANA Fellagörðum, R. ANNETTA, snyrtist Hafnargötu 23, Kef. CLARA Laugavegi 15, R. BYLGJAN Hamraborg, Kóp. SNYRTIHÚSIÐ Eyrarvegi 20, Self

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.