NT - 10.12.1984, Qupperneq 15
fíF Mánudagur 10. desember 1984 15
LL Raðauglýsingar
bílaleiga
atvinna - atvinna i tilkynningar
nil Al r- ■ A A FIAT PANDA.LADA ISOO 600 6
BILALEIGA £------------------—
BORGARTÚNI 25 B hatu„o.u>dast»tio>. 6ío 65q
-105 REYKJAVÍK C ______P°° 7
24065 i; V0LV0 2a4 | 850 [ 8 SO |
SÆKJUM-SENDUM
HEIMASÍMAR 92-6626 og 91-78034 Suðurnesjum 92-6626.
BÍLALEIGAN REYKJANES
VID BJÚDUM NÝJA OG SPARNEYTNA '
(FÚLKSBÍLA OG STADIONBÍLA
BÍLALEIGAN REYKJANES
VATNSNESVEGI 29 A — KEFLAVIK
S (92) 4888 - 1081 HEIMA 1767 - 2377
flokksstarf
Jólafundur
Jólafundur
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík heldur
sinn árlega jólafund mánudaginn 10.12.84
kl. 20.30, að Rauðarárstíg 18 (kjallara). Jón
Helgason kirkjumálaráðherra flytur ávarp.
Upplestur, söngur og jólapakkar.
Munið eftir að taka með ykkur jólapakka,
mætum vel.
Stjórnin.
Hörpukonur
Hafnarfirði, Garða-
bæ og Bessa-
staðahreppi.
Jólafundur Hörpu verður haldinn í Góðtemplara-
húsinu í Hafnarfirði, þriðjudaginn 11. des. kl.
20.30. Freyjukonum og Bjarkarkonum boðið á
fundinn.
Stjórnin.
atvinna - atvinna
m BORGARSPÍTALINN
Deildarstjóri
Staða deildarstjóra á skurðlækningadeild A-5, er
laus til umsóknar frá 1. mars 1985. Umsóknar-
frestur er til 15. janúar 1985.
Aðstoðardeildarstjóri
Staða aðstoðardeildarstjóra á sótthreinsunar-
deild er laus til umsóknar, dagvinna, hlutastarf.
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga við eftirtald-
ar deildir:
Svæfingadeild sérmenntun áskilin.
Geðdeild A-2
Skurðlækningadeildir A-3, A-4, A-5.
Lyflækningadeildir A-6, E-6.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast á hinar ýmsu deildir spítalans,
vaktavinna, dagvinna, kvöldvinna.
Starfsfólk
Starfsfólk óskast á geðdeildirnar í Arnarholti, 12
tíma vaktir, unnið 3 daga - frí 3 daga. Ferðir frá
Hlemmi.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra í síma 81200 daglega kl. 11-12.
Fóstrur
Fóstra óskast til starfa á dagheimili Borgarspítal-
ans, Skógarborg II, frá 1. janúar 1985.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 81439.
Reykjavík, 9. desember 1984.
Borgarspítalinn.
ffl LAUSAR STÖDUR HJÁ
’l' REYKJAVÍKURBORG
LAUSAR STÖÐUR HJA
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Skrifstofumann í fjölskyldudeild Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar, Vonarstræti 4.
Góð vélritunarkunnátta nauðsvnleq.
Upplýsingar veitir yfirmaður fjölskyldudeildar í
síma 25500.
• Forstöðumaður mötuneytis Droplaugar-
staða, vist- og hjúkrunarheimilis aldraðra,
Snorrabraut 58. Æskilegt er að viðkomandi sé
matreiðslumaður með meistararéttindi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
25811.
• Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast
til starfa á hjúkrunardeild Droplaugarstaða nú
þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
25811.
• Deildarmeinatæknir óskast í hálft starf hjá
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri og fram-
kvæmdastjóri í síma 22400.
• Hjúkrunarfræðingar óskast við eftirtaldar
deildir Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur:
Barnadeild, Heimahjúkrun, Heilsugæslu í
skólum. Einnig óskast hjúkrunarfræðingar á
kvöldvaktir í heimahjúkrun. Um er að ræða
bæði heilar stöður og hlutastörf
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri og fram-
kvæmdastjóri í síma 22400.
• Fóstrur við Dyngjuborg, Fellaborg, Laufás-
borg, Leikfell, Múlaborg og skóladagheimilið
Langholt.
Upplýsingar veitir forstöðumaður viðkomandi
heimilis eða umsjónarfóstrur á skrifstofu dag-
vistar barna í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á
sérstökum umsóknareyðubiöðum sem þar fást,
fyrir kl. 16.00, mánudaginn 17. desember 1984.
til sölu
Heilsólaðir snjóhjólbarðar á fólksbíla
Vestur-þýskir, bæði Radial og
venjulegir. Allar stærðir.
- Einnig nýir snjóhjólbarðar á
mjög lágu verði.
Snöggar hjólbarðaskiptingar.
Jafnvægisstillingar. - Kaffisopi
til hressingar meðan staldrað er
við.
Barðinn h.f., Skútuvogi 2
(nálægt Miklagarði)
Sími: 30501 og 84844.
Til sölu
SAME dráttarvél með ámoksturstækjum, árg.
’82, ekin 1800 vinnust. Drif á öllum hjólum.
Upplýsingar í síma 91-83065 og 99-6550
nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 137. tölublaði 1983 og 2. og 5.
tölublaði 1984 Lögbirtingablaðs á húseigninni
Smáratúni 9, Svalbarðseyri þinglýstri eign Karls
Gunnlaugssonar fer fram eftir kröfu Ásgeirs
Thoroddsen hrl.á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11.
desember 1984 kl. 15.00.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Tilkynning
Frá Fiskveiðasjóði
ísiands
Umsóknir um lán á árinu 1985 og endurnýjun
eldri umsókna.
Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóti íslands á árinu
1985 hefur eftirfarandi verið ákveðið:
1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði.
Engin lán verða veitt til byggingarframkvæmda
nema hugsanleg viðbótarlán vegna bygginga,
sem áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé
að ræða sérstakar aðstæður að mati sjóðsstjórn-
ar. Eftir því sem fjármagn sjóðsins þar með talið
hagræðingarfé hrekkur til verður lánað til véla,
tækja og breytinga, sem hafa í för með sér bætt
gæði og aukna framleiðni.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
2. Vegna fiskiskipa
Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður
lánað til skipta á aflvél og til tækjakaupa og
endurbóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
3. Endurnýjun umsókna
Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að
endgrnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvernig
þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur
verið veitt til.
4. Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 15. desember 1984.
5. Almennt
Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum
eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsing-
um, sem þar er getið, að öðrum kosti verður
umsókn ekki tekin til greina (eyðublöð fást á
skrifstofu Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti
19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönkum og
sparisjóðum utan Reykjavíkur). Umsóknir er
berast eftir tilskilinn umsóknarfrest verða ekki
teknar til greina við lánveitingar á árinu 1985,
nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp.
Reykjavík 16. október 1984
Fiskveiðasjóður íslands.
Styrkir til háskólanáms
í Finnlandi, Hollandi og Svíþjóð
1. Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
fslendingi til háskólanáms eða rann-
sóknastarfa í Finnlandi námsárið 1985-
86. Styrkurinn er veittur til níu mánaða
dvalar og styrkfjárhæðin er 1.300-1.700
finnsk mörk á mánuði.
2. Hollensk stjórnvöld bjóða fram tvo styrki
handa íslendingum til háskólanáms í
Hollandi skólaárið 1985-86. Styrkirnir eru
einkum ætlaðir stúdentum sem komnir
eru nokkuð áleiðis í háskólanámi eða
kandídötum til framhaldsnáms. Nám við
listaháskóla eða tónlistarháskóla er styrk-
hæft til jafns við almennt háskólanám.
Styrkfjárhæð er 1.100 fls. á mánuði í 9
mánuði.
3. Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslendingi til háskólanáms í Svíþjóð
námsárið 1985-86. Styrkfjárhæðer 3.270
s.kr. á mánuði í 8 mánuði. Jafnframt
bjóða sænsk stjórnvöld fram þrjá styrki
handa íslendingum til vísindalegs sér-
náms í Svíþjóð á háskólaárinu 1985-86.
Styrkirnir eru til 8 mánaða dvalar, en
skipting í styrki til skemmri tíma kemur
einnig til greina. Ennfremurgefst íslensk-
um námsmönnum kostur á að sækja um
styrki þá, er sænsk stjórnvöld bjóða fram
í löndum þeim, sem aðild eiga að Evrópu-
ráðinu, en þeir styrkir eru eingöngu ætlað-
ir til framhaldsnáms við háskóla.
Umsóknum um framangreinda styrki skal
komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfis-
götu 6, 101 Reykjavík, fyrir 15. janúar nk.,
og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt
meömælum. - Sérstök umsóknareyðublöð
fást I ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
30. nóvember 1984.