NT


NT - 10.12.1984, Síða 22

NT - 10.12.1984, Síða 22
Mánudagur 10. desember 1984 22 Íþróttir Úr leik Þróttar og HK í 1. deild í blaki fyrir stuttu. Bæði liðin unnu um helgina. NT-mynd: Sverrir Belgía og Holland: Anderlecht langefst - Ajax, Feyenoord og PSV bítast í Hollandi 1. deild karla í blaki: Glæsilegur sigur HK ■ HK sigraði ÍS í 1. deild karla á íslandsmótinu í blaki í gær með glæsilegum leik. Breidd og dugnaður einkenndi HK-liðið og það uppskar verð- skuldaðan sigur í toppbarátt- unni, 3-1. ÍS vann fyrstu hrinuna 15-8 en í þeirri næstu byrjaði HK mjög vel og náði að vinna 15-12. Þessi hrina var jöfn og mikil barátta um hvert stig. í þriðju hrinu var jafnt 5-5 eftir 15 mínútur en þá tóku HK menn sig á og skoruðu 10 stig á móti 3 og unnu þar með 15-8. Staðan því orðin 2-1 fyrir HK og ÍS varð að vinna næstu hrinu. Það benti líka allt til þess að svo færi, ÍS komst nefnilega í 14-6 og þurfti því aðeins eitt stig til að kría út úrslitahrinu. En HK sagði hingað og ekki lengra, skoraði stig, 14-7 og þá vann ÍS boltann og flestir héldu að þá væri draumurinn búinn. En með fádæma baráttu og mjög góðum leik minnkuðu þeir muninn enn frekar eða í 14-10 áður en ÍS fékk aftur tækifæri til að gera út um hrinuna. Það tókst ÍS ekki og boltinn gekk á milli liða en HK náði alltaf að bæta einu eða tveimur stigum í sarpinn, jafn- aði 14-14ogsigruðusvo 16-14. Þeir Kjartan Busk og Skjöld- ur Vatnarsson voru bestir í jöfnu liði HK, léku stórvel báðir tveir. Þetta er í annað sinn sem HK vinnur ÍS nú í haust svo ljóst er að bæði liðin munu veita ís- landsmeisturum Þróttar harða keppni um titilinn í ár. ÍS hefur unnið Þrótt einu sinni í haust og er það eini leikurinn sem Þróttarar hafa tapað. HK og ÍS hafa bæði tapað tveimur leikjum, fS fyrir HK og HK fyrir Þrótti. Líklegt er þó að fleiri lið komi til með að reyta stig af þessum þremur bestu blakliðum landsins. 2. deild karla: #■ Frá Keyni Þór Karlssyni, fréttaritara N'I' í llollundi: Belgía: Meclielen-Anderlecht ... 1-2 ■ Þaö var eins og leikmcnn Anderlecht kæmu áhugalitlir til leiks því fyrstu 15 mínúturn- ar var Mechclen mun hetra liðið og uppskáru samkvæmt því. Strax á 5. mínútu skoraði Bender 1-0, sanngjörn forysta. Á 15. mínútu tókst svo Ander- lecht að jafna og var þar Arne- sen að verki, 1-1. Við þctta gerbreyttist lcikur Anderlecht og þeir gerðu sér grein fyrir því að leikurinn var ekki unninn fyrirfram. Þeir stjórnuöu spil- inu eftir þetta og héldu boltan- um eftir vild og spiluðu oft skemmtilega á ntilli sín. Á 40. mín. tók Anderlecht forystuna er Scifo skoraði eftir auka- spyrnu. Staðan í leikhléi 1-2. Seinni hálfleikur var algjör eign Anderlecht og spiluöu þeir eins og sannir ineistarar. Sig- urganga þeirra heldur áfram. Bccrschot-Stundurd .... 1-0 Beerschot var ákveðhara í byrjun en tókst þó ekki að brjóta á bak aftur unga leik- menn Standard. Horst Hrubesch, sem átti ekki góðan dag, var sá sem leikmenn Standard treysta á. Ekki tókst liðunum aðskora í fyrri hálfleik og staðan því 0-0. í seinni hálfleik tókst Beers- chot að ná forystu er VerVoore skoraði. Ungir leikmenn Standard reyndu að jafna en tókst ekki. Cluh Brugge-Cercle Brugge ........................6-1 Club Brugge voru mun sterk- ari en nágrannarnir og lá Cercle í vörn nær allan leikinn. Á 10. mínútu kom fyrsta markið Gryse skoraði eftir fallega fyrir- gjöf. Á 30. mín. skoraði Ceule- mans annað mark Club og staðan orðin 2-0. Hann skoraöi svo aftur stuttu seinna eftir hornspyrnu og þannig var stað- an í leikhléi 3-0. Heldur voru Cercle ákveðn- ari i byrjun seinni hálfleiks en samt skoruðu Club 4-0 en þá kom eina mark Cercle úr víta- spyrnu, 4-1. Ceulemans skor- aði svo fimmta markið og Gryse gerði það sjötta og síð- asta. Stórsigur, 6-1. Holland: PSV-Excelsior ..........2-0 PSV má ekki við því að nússa stig og komu þeir því ákveðnir til leiks og sóttu stíft. Við þetta opnaðist vörn þeirra illa og strax á 5. mín. komst Heimir Karlsson einn í gegn og átti bara markvörðinn eftir. Heimir skaut en rétt framhjá. Þetta var gullið tækifæri fyrir Heimi og Excelsior. Bæði liðin áttu fleiri færi en tókst ekki að koma boltanum í netið. Nokk- ur stangarskot sáu dagsins ljós í fyrri hálfleik en staðan sanit 0-0. Síðari hálfleikur var algjör einstefna af hendi PSV og Chinagala byrjar aftur ■ Fyrrum knattspyrnu- hetjan Giorgio Chinagala, sem er nú forseti New York Cosmos og eigandi liðsins Lazio í Róm sem leikur í ítölsku 1. deildinni hefur til- kynnt að hann muni draga fram takkaskóna á ný. Chinagala mun leika næsta lcik Cosmos á laugar- daginn kemur gegn Dallas Sidekicks í aöalinnanhúss- deildinni. Ástæðan fyrir þessu er stöðug meiðsli sem margir leikmenn eiga við að stríða og geta því ekki leikið. Chinagala sem er 37 ára segist þó aðcins ætla að leika í innanhúss deildinni (Major Indoor Soccer League). Hann hætti, „lagöi skóna á hilluna" eins og sagt er, eftir tímabilið 1983 og er ntarka- hæstur, fyrr og síðar, í Norð- ur-Ameríku knattspyrnunni. bjargaði markvörður Excel- sior, Storin, oft meistaralega. Allt kom þó fyrir ekki og á 30. mín. tók PSV forystuna. Van den Boogaart að verki 1-0. Excelsior tókst ekki að gera neitt ógnandi í leiknum það sem eftir var og PSV sótti án afláts. PSV skoraði svo seinna mark sitt að loknurn venjuleg- um leiktíma og var Boogaart þar að verki aftur. Volendam-Ajax ...........1-3 Þessa leiks var beðið með mikilli eftirvæntingu. Volen- dam hcfur komið á óvart og er í 4. sæti. Volendam hefur oft verið kallað „annað Ajax“ þar sem þjálfari þeirra Bcenhakker var áður þjálfari Ajax og nokkrir leikmenn liðsins spil- uöu áður með Ajax. Volendam stóð sig vel í fyrri hálfleik en gat þó ekki kornið í veg fyrir að Steflos skoraði úr víti eftir að Van Basten hafði verið felldur. I seinni hálfleik fékk Volen- dam víti og náði Blanker að skora og staðan 1-1. Spenna hljóp nú í leikinn en Ajax sótti þó heldur meira. Aftur náði því Ajax forystu er Koomann skoraði eftir sendingu Van Basten 2-1. Loks skoraði Bast- en sjálfur 1-3. Feyenoord-Sittard........4-0 Feyenoord byrjaði leikinn ágætlega og átti nokkur færi síðan jafnaðist leikurinn og staðan í hléi 0-0. í síðari hálfleik skoraði Fey- enoord strax, Houtman var þar að verki. Hann skoraði svo aftur stuttu seinna 2-0. Bæði liðin áttu nú ágæt tækifæri en skoruðu ekki uns Been skoraði ágætt mark, 3-0. Cullig skoraði svo fjórða markið og sigurinn í höfn. ÚRSLIT í BELGÍU: Ghent-Kortrijk 4-0 Waterschei-Antwerp 0-1 Niklaas-Lierse 3-4 Club Bruges-CS Bruges 6-1 Liege-Beveren 2-0 Beerschot-Standard 1-0 Waregem-Lokeren 3-1 Mechelen-Anderlecht 1-2 Racing Jet-Seraing 0-2 STAÐA EFSTU LIÐA: Anderlecht 17 13 0 4 58-15 30 Waregem 17 11 4 2 36-24 24 Ghent 17 10 4 3 41-21 23 Club Bruges 17 9 3 5 29-21 23 Liege 17 8 3 6 32-17 22 Armenningar sigruðu KA ÚRSLIT í HOLLANDI: Twente-Breda 2-0 Zwolle-Maastricht 0-0 Haarlem-Sparta 0-0 Eindhoven-Excelsior 2-0 Volendam-Ajax 1-3 Roda-AZ '67 4-2 Feyenoord-Sittard 4-0 Utrecht-Den Bosch 3-2 Groningen-GA Eagles 2-0 STAÐA EFSTU LIÐA: Ajax 14 12 2 0 46-13 26 Eindhoven 15 9 6 0 43-13 24 Feyenoord 14 9 2 3 42-21 20 Groningen 15 7 3 3 29-17 19 Twente 15 8 3 4 31-24 19 ■ Það var mikið keppt á skíð- um um helgina og þá aðallega í heimsmeistarakeppninni. Á laugardaginn var það alls óþekkt skíðastúlka, Traudl Hacher frá V-Þýskalandi sem sigraði í Risa-stórsvigi á braut- inni í Davos í Sviss. Hacher hafði rásnúmer 54 og er hún lagði af stað niður hlíðina höfðu fréttamenn þegar undir- búið viðtal við Mariu Walliser sem þá var í fyrsta sæti og talin öruggur sigurvegari. En Wallis- er var sem sagt önnur og í þriðja sæti hafnaði v-þýska stúlkan Marina Kiehl. Eftir keppnina var Hacher alveg í skýjunum og átti ekki orð yfir árangri sínum. ítalinn Robert Erlacher sigr- aði í stórsvigi karla á laugardag- inn í Saint-Vincent í Frakk- landi. Hann hafði rásmark nr. 13 og það virðist hafa fært honum lukku. Hann var í 4. sæti eftir fyrri umferðina en skaust uppfyrir alla í síðari umferð og sigraði eins og áður segir. í öðru sæti á laugardag- inn var Svisslendingurinn Mart- in Hangl og þriðji varð annar ítali Richard Pramotton. Þetta ■ Nokkrir leikir voru í 2. deild karla í handknattleik um helgina og áttu Akureyrarliðin KA og Þór þátt í þeim flestum. KA tapaði loks í 2. deildinni er þeir mættu Ármenningum í Höllinni á laugardaginn. Ár- menningar gerðu 24 mörk gegn er fyrsti sigur Itala í stórsvigi síðan 1976 þ.e. í heimsmeist- arakeppninni og var gleði þeirra gífurleg. Þá var keppt í skíðastökki í Kanada og var það liður í heimsmeistarakeppninni í þeirri grein. Austurríkismenn og Finnar hrepptu öll fjögur efstu sætin. Sá sem sigraði var frá Austurríki og heitir Andre- as Felder, hann fékk samanlagt 244,6 stig. I öðru sæti varð Finninn Pentti Kokkonen með 226 stig og þriðji Ernst Vettori frá Austurríki. Felder átti lang lengsta stökkið í keppninni er hann sveif 97 metra. Þess ber að geta að stökkpallurinn var 70 metrar. í gær var svo keppt í svigi kvenna í Davos í Sviss og varð franska stúlkan Christselle Gu- ignard hlutskörpust. Önnur varð Erika Hess frá Sviss og þriðja varð önnur frönsk stúlka Helene Barbier. Þessi úrslit komu nokkuð á óvart þar sem Hess hafði forystu eftir fyrri umferðina og var talin fyrir- fram sigurstranglegust. 16 og hrifsuðu til sín 2 stig. Leikurinn var jafn framan af en í síðari hálfleik þá ná Ár- menningar þriggja marka for- ystu og náðu KÁ menn aldrei að minnka þann mun. Þeir reyndu að spila maður á rnann í lokin en það var bara til þess að Ármenningar juku forskot sitt til muna. KA menn náðu svo að sigra Gróttu eins og áður hefur verið skýrt frá. Þórsarar spiluðu við Gróttu í gær ogtöpuðu 16-25. Leikurinn byrjaði jafnt en um miðjan fyrri hálfleik ná Gróttu-menn að hrista Þórsara af sér og í hléi var staðan orðin 13-7. í síðari hálfleik var það sama uppá teningnum og lokatölur urðu svo 25-16 fyrir Gróttu. Mörk þeirra skoruðu: Gunnar Páll 8, Jóhannes 4, Árni, Hjörtur, Kristján og Ottó 3 hver og svo gerði Halldór markvörður eitt mark. Fyrir Þór skoruðu Guð- jón 5. Kristinn 3, Árni og Sig- urður 2 og eitt mark gerðu Gunnar M, Gunnar E, Áðal- björn og Kristján. Þá léku Þórsarar við Ár- menninga og sigruðu Ár- menningar í hörku viðureign með 28 mörkum gegn 26. Þessi leikur var tiltölulega jafn og mikil barátta. Haukar brugðu sér bæjarferð til að tapa fyrir Frömurum í 2. deildinni á laugardaginn með 25 mörkum gegn 18. Eins og tölur gefa til kynna þá voru Framarar mun sterkari. ■ Stúlkurnar í Stjörn- unni 2. flokk urðu Reykja- nesmeistarar í handknatt- leik um helgina er þær sigruðu stöllur sínar frá Gróttu með 7 mörkum gegn 6 í hreinum úrslita- leik-jafnt það. Skíðaíþróttir: Óvænt úrslit - í risastórsvigi kvenna

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.