NT - 10.12.1984, Side 23
Mánudagur 10. desember 1984 23
íþróttir
■ Úr leik ÍR og ÍS á laugardaginn. Hér reyna margir ÍR-ingar að skora sömu
körfuna. NT-mynd: Árni Bjarnu.
1. deild karla í körfu:
Reynir og Fram
sigruðu bæði
■ Reynir Sandgerði vann Laugdæli í
1. deild karla á íslandsmótinu í körfu-
knattleik á laugardaginn með 59 stig-
um gegn 44.
Laugdælir voru yfir lengi í fyrri
hálfleik en Reynismönnum tókst að
ná forystunni 24-23 fyrir hlé.
Laugdælir léku vel á móti maður á
mann vörn Suðurnesjapiltanna en
þegar þeir breyttu í svæðisvörn stóðu
Laugdælir á gati. Reynis-menn héldu
áfram með svæðisvörnina í seinni
hálfleik og sigruðu örugglega með 15
stiga mun.
Það var til vandræða á Selfossi þar
sem leikurinn fór fram að dómararnir
mættu ekki og voru reyndar að dæma
leik ÍR og ÍS í úrvaldsdeildinni á sama
tíma. Ekki ómökuðu þeir sig með því
að láta vita að þeir kæmust ekki á
Selfoss eða að fá aðra dómara fyrir sig
svo liðin gripu til þess ráðs að láta
menn úr sínum röð'um dæma leikinn.
Það er svo sem ekkert nýtt að
dómarar láti ekki sjá sig ef þeir eiga að
fara út á land.
í fyrravetur vantaði dómarana í
báða leiki Þórs frá Akureyri er þeir
áttu að leika gegn Laugdælum á Sel-
fossi.
Svona frammistaða er dómurum
ekki til aukinna vinsælda og óþarfi
fyrir þá að láta nöldra í sér utanvallar
líka.
Einn annar leikur var háður á laug-
ardaginn í 1. deild karla. Fram vann
Grindavík með 79 stigum gegn 52 í
íþróttahúsinu í Njarðvíkum, ljóna-
gryfjunni frægu.
Fram byrjaði betur og komst í 13-2
en ungu strákarnir í Grindavík sigu
framúr og komust í 27-19.
Grindavík hafði tveggja stiga for-
ystu í leikhléi en í seinni hálfleik voru
Framarar betri og sigruðu með 27
stiga mun, 79-52.
Þess má geta að meðalaldur leik-
manna Grindavíkurliðsins í þessum
leik var aðeins 17,2 ár.
Spánn:
Archibald skoraði
- og Schuster iíka - Barcelona efst
■ Skoski landsliðsmaðurinn hjá Bar-
celona og sá v-þýski hjá liðinu sáu um
að halda „E1 Barca“ á toppnum. Hér
er átt við Steve Archibald og Bernd
Schuster. Það var þó Carrasco sem
gerði fyrsta markið í sigri Barcelona á
Sevilla en Sevillumenn jöfnuðu með
marki Ruda. Archibald skoraði síðan
með skalla og rétt fyrir leikslok gull-
tryggði Schuster sigurinn með góðu
marki.
Real Madrid vann sigur á nágrönn-
um sínum Atletico með eina marki
leiksins. Það var Argentínumaðurinn
Jorge Valdano sem skoraði markið
mikilvæga. Real er samt 5 stigum á
eftir Barcelona. Annars urðu úrslit
þessi:
Sporting-Valladolid 1-3
Barcelona-Sevilla 3-1
Hercules-Bilbao .... 0-0
Valencia-Racing 0-0
A.Madrid-Real Madrid . . . 0-1
Real Murcia-Real Zaragoza 0-3
Real Sociedad-Elche 2-0
Real Betis-Espanol 3-1
Malaga-Osasuna 2-1
STAÐA EFSTU LIÐA:
Barcelona 15 10 5 0 30 11 25
Real Madrid 15 8 4 3 18 11 20
Valencia 15 5 8 2 17 7 18
Real Sociedad 15 5 7 3 17 9 17
Real Betis 15 5 7 3 19 13 17
Atletico Madrid 15 6 5 4 18 14 17
Héðanogþaðan...
Töpuðu og reknir
■ Knattspyrnuliðið „Shooting
Stars“ eða fljúgandi stjörnurnar
frá Nígeríu töpuðu fyrir Zamalek
frá Egyptalandi í úrslitum um Af-
ríkubikarinn. Ekki voru allir
ánægðir með tapið, og eftir því sem
útvarpið í Lagos segir þá hefur
Popoola hershöfðingi í bænum
Oyo, þar sem „stjömurnar11 eiga
heima, samþykkt uppsagnir allra
leikmanna liðsins svo og þjálfara
og aðstoðarmanna. Já, þeir taka á
málunum þarna í Afríku.
Gross í stuði
■ V-þýski sundkappinn Michael
Gross er nú í banastuði og syndir
sem meistari þessa stundina. Hann
setti í gær besta tíma sem náðst
hefur í 400 m skriðsundi í 25 m
laug. Hann fékk tímann 3:42,8 sem
er um 16 hundruðustu betri tími en
fyrra met sem Sovétmaðurinn Sal-
inikov átti.
Bæði fyrir þurr- og vothey. Þó sérstaklega handhægur til að skera
í sundur rúllubagga.
Ein fasa - Aðeins 12-13 kg Sker 50 cm djúpan skurð - Lægsta verð
á ragmagnsheyskera í dag.
G/obust
LAGMCLI 5. SIMI 815 55
Úrvalsdeildin:
Haukar unnu Valsmenn
■ Valsmenn máttu bíta í það súra
epli að tapa leik sínum gegn Haukum
í Seljaskóla í gærkvöldi.
Valsmenn höfðu yfirhöndina
lengst af og voru betra liðið mestan
hluta leiksins. Oft og tíðum spiluðu
þeir mjög vel, hittu úr skotum sínum
og börðust af grimmd í fráköstum.
En slærnur kafli í seinni hálfleik
kom eins og himnasending fyrir
Hauka sem auðvitað nýttu sér það til
fullnustu og brunuðu framúr.
Valsmenn byrjuðu leikinn af krafti
og náðu góðri forystu strax. Eftir 5
mínútna leik höfðu þeir yfir 12-3 og
sá munur hélst nokkuð. Á 10. mín-
útu var staðan 22-11 en þá juku
Valsmenn forskotið í 14 stig, 30-16.
Haukarnir voru ákveðnir í því að
missa Valsmenn ekki of íangt fyrir
hlé og minnkuðu muninn í minnst 4
stig 36-32 en Valsmenn áttu síðasta
orðið og staðan í leikhléi 38-32.
Eftir 2 mínútur í seinni hálfleik
voru Valsmenn aftur komnir 10 stig
yfir, 42-32 og eftir 6 mínútur var
staðan 46-38.
Þá byrjaði slænri kaflinn hjá Val,
þeir hættu að hitta úr ágætum skot-
færum og Haukar minnkuðu muninn
í 55-51 eftir 11 mínútur. Síðan jöfn-
uðu Haukar 57-57 og komust yfir
65-57.
Á þessunt kafla skoruðu Haukar
12 stig í röð og börðust af miklum
krafti. Þeir létu forystuna ekki af
hendi eftir þetta og sigruðu. Þegar 45
sek. voru eftir höfðu þeir gert 70 stig
en Valur 63. Valsmenn klóruðu í
bakkann og gerðu síðustu 4 stigin og
úrslitin því 70-67 fyrir Hauka.
Stigin skoruðu:
Fyrir Val, Torfi 17, Jón 13, Leifur
11, Tómas og Kristján 8, Björn 6 og
Jóhannes 4.
Fyrir Hauka, ívar 23, Pálnrar 17,
Henning 11, Ólafur 7, Reynir, Eyþór
og Hálfdán 4.
Rafmagns-
heyskerinn