NT - 10.12.1984, Qupperneq 24
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT?
j HRINGDU ÞÁ í SflVIA 68-65-62;
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 10OOkrónyr fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt j
NT Síðumúli 15, Reykjavík, simi: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 j
Sagteftirleikinn..
GUÐJ ÓN LIÐSSTJÓRI
■ „Það er komin
óhemju þreyta í mann-
skapinn og það segir sína
sögu að við brenndum af
mörgum dauðafærum og
misstum boltann oft.
Þetta er búið að vera
gífurleg keyrsla á svo til
sömu mönnunum og það
kemur í Ijós að við sökn-
um Atla og Sigurðar
Gunnarssonar mikið.
Þeir eru virkur hluti af
liðinu og við getum illa
án þeirra verið. Þetta
gengur bara betur næst.
Við erum að fara í „túrn-
eringu" í Mónakó í lok
j anúar og nú er að hvíla
lúin bein og safna liði,“
sagði hinn eldhressi liðs-
stjóri islenska liðsins
Guðjón Guðmundsson.
PÁLL ÓLAFSSON:
„Maður er bara gífur-
lega þreyttur og það kom
í Ijós að menn misstu
niður einbeitinguna og
klikkuðu í inörgum
dauðafærum. Það keniur
þó betri tíð og ég á ekki
von á öðru en að við
stöndum okkur bara
hetur næst,“ sagði Páll
Olafsson eftir leikinn.
GUÐMUNDUR
GUÐMUNDSSON:
„Svíarnir gátu bara
leyft sér að hvíla leik-
menn heilan leik og
þannig komu þeir sterk-
ari í kvöld og t.d. Olals-
son lék ckkcrt með í gær
(á laugardaginn). Við
söknum illilega bæði Atla
og Sigurðar svo og
Bjarna. Það er mikil
þreyta í öllu liðinu og þá
tapast einbeitnin og góð
færi nýtast ekki vegna
þess að hugurinn er ekki
í fullu starfi," sagði Guð-
mundur Guðmundsson
hornamaður eftir leikinn.
Hann gerði 2 mörk í gær
og fiskaði að auki víta-
kast.
Þorbergur Aðalsteinsson á hér í liöggi við marga Svía. Stundum var sem Svíar væru fleiri á vcllinum í gær og sigurinn var örugglega þeirra. NT-mynd: Árni Bjarna.
Island-Svíþjóð:
EKKERT MAL HJA SVIUM
- unnu öruggan sigur á örþreyttum íslendingum í þriðja leiknum
■ Það vinnast ekki allir leikir
getum við íslendingar hugsað
eftir að Svíar slátruðu íslenska
landsliðinu í handknattleik í
■ Hér er stigin boltadans og það var svo sannarlega gert um
þessa helgi en með misgóðum árangri. NT-mynd: Árni Bjurna
þriðja leik liðanna í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi með 25
mörkum gegn 20. Það var
alveg greinileg þreyta í strák-
unum og einbeitingin allt að
hverfur við slík skilyrði. Þann-
ig misstu íslcndingar boltann í
ótal skipti og mörg dauðafæri
fóru forgörðum. Svíar gátu
spilað á nýjum og nýjum
mönnum á meðan Kristján og
fleiri í íslenska liðinu spiluðu
allan ieikinn í gær og alla hina
leikina líka. Heimsókn Svía
fór því 1-2 fyrir gestina en ef
litið er á heildina þá eru úrslit
að vissu leyti nokkuð jöfn.
íslendingar rúlla upp fyrsta
leiknum og annar leikurinn er
injög jafn en endar með mjög
naumum sigri Svía og svo rúlla
þeir íslendingum upp í síðasta
leiknum.
Hann byrjaði ekki bærilega
leikurinn í gærkvöldi. Svíar
skora tvö fyrstu niörkin og
komast svo í 2-5 eftir um 10
mínútna leik. Kristján lagar þá
stöðuna í 3-5 úr víti en Svíar
svara með tveimur mörkum,
3-7. Aftur skorar Kristján og
enn svara Svíar nteð tveimur
mörkum, 8-4. Þá kemur eini
virkilega góði kaflinn í leik
íslenska liðsins og þegar um 5
mín. eru eftir af fyrri hálfleik
þá jafnar Guðmundur Guð-
ntundsson metin 10-10. Einar
Þorvarðarson varði mjög vel á
þessum kafla og reyndar ágæt-
lega allan fyrri hálfleik. Þá
gengu upp leikkerfi á þessum
tíma. Svíar gera að vísu tvö
mörk í röð í lok hálfleiksins og
leiddu í hléi 11-13.
Steinar Birgisson skoraði
fyrsta markið eftir hlé og fór
ánægjutilfinningum alla ístúk-
unni. Svíar voru ekki á því að
láta slá sig út af laginu og svara
með tveimur eins og við var að
búast. Kristján skorar nú úr
víti og enn svara Svíar og nú
með þremur í röð. Staðan þá
orðin 13-18 og leikurinn búinn
hjá íslenska liðinu. Eftir þetta
var bara spurning um hve stór
sigurinn gæti orðið hjá Svíum
og íslenska liðið var greinilega
orðið mjög þreytt. Ljót mistök
sáust og góð færi og hraða-
upphlaupfóru forgörðum. Sví-
ar léku hins vegar á alls oddi
og lokatölur urðu eins og fyrr
segir 20-25.
Kristján Arason var marka-
hæstur íslenska liðsins gerði 7
mörk en aðrir sem skoruðu
voru Þorbjörn Jensson 3, Páll,
Þorbergur, Guðmundur og
Jakob 2 hver, Steinar og Karl
Þráinsson 1 hvor. Hjá Svíum
voru Olafsson og Sjögren
markahæstir með 6 hvor.
Dómararnir v-þýsku áttu
slakan dag og dæmdu stundum
sem börn. Ekki bitnaði þetta
frekar á íslenska liðinu en því
sænska. Áhorfendur voru vel
með á nótunum meðan sæmi-
lega gekk enn allir urðu fyrir
vonbrigðum í lokin.
■ Mats Wilander sigraði á Opna-ástralska meistaramótinu
tennis annað árið í röð.
Símamvnd PÖLFOTO
Haukar sigruðu Val
Liverpool lá í Tókýó