NT - 17.12.1984, Qupperneq 2
w
Mánudagur 17. desember 1984
Afmælismót Skáksambandsins:
Líkur á að
Karpov komi
■ Ef allt fer sem horfir tefla
fyrrverandi og ríkjandi heims-
meistari í skák á 60 ára afmælis-
móti Taflfélags Reykjavíkur,
sem fram fer í febrúar á Hótel
Loftleiðúm. Boris Spassky hef-
ur þegar þekkst boð Skáksam-
bandsins um þátttöku og Ana-
toly Karpov hefur verið boðið,
en hann hefur ekki getað svarað
því þar sern enn er ólokið ein-
vígi hans og Kasparovs. Verði
Karpov heimsmeistari í skák í
febrúar og tæki þátt í mótinu
yrði það í fyrsta sinn sem ríkj-
andi heimsmeistari í skák teflir
á íslandi frá því að Aljékín
sálugi tefldi hérlendis í byrjun
fjórða áratugarins.
Aðrir erlendir keppendur
verða Hort, Larsen, Simen
Agdestein og að líkindum sterk-
ur sovéskur meistari. Komi
Anatoly Karpov
Karpov ekki mun Skáksam-
bandið velja sjálft skákmenn og
þá að líkindum ekki frá Sovét-
ríkjunum. Þorsteinn Þorsteins-
son formaður Skáksambandsins
sagði í samtali við NT í gær að
sovéska sendiráðið hefði sýnt
málinu mikinn skilning og gert
Boris Spassky.
allt sem í þess valdi hefur staðið
til að greiða fyrir því að heims-
meistarinn geti komið. En fyrst
verður hann að sjálfsögðu að
sigra áskorandann, Garry Kasp-
arov.
Þakplötu-
fjúk
■ Veður mikið gekk yfir
vestanvert landið um helg-
ina. í Ólafsvík fuku þak-
plötur af fiskverkunar-
húsi, einu einbýlishúsi og
nokkrum fjárhúsum. Eng-
in slys urðu á fólki. Björg-
unarsveitarmenn á staðn-
um heftu fokið og komu
fjúkandi plötum í skjól.
Gott fólk
á Dalvík
■ Það er gott að vera
lögreglumaður hér á
Dalvík, og skýringin hlýt-
ur að vera sú að hér búi
gott fólk sagði Halldór
Gunnlaugsson lögreglu-
maður er blaðamaður leit-
aði frétta. Fyrir norðan er
einmunatíð, snjó hefur
varla fest ennþá á láglendi
og Siglfirðingar hafa t.d.
ekkert farið á skíði enn
sem komið er í vetur, og
telst það til stórtíðinda.
Jarðskjálftinn:
„Hressileg
ur kippur"
Hlutu viðurkenningu úr
Ferilsjóði fatlaðra!
■ Menn vöknuðu vel á
Húsavík kl. 9.34 í gærmorg-
un en þá fundust tveir jarð-
skjálftakippir og mældist sá
stærri 4,1 stig á Richter.
„Þetta var hressilegur
kippur,“ sagði lögreglumað-
ur er blaðið ræddi við.
Upptök skjálftans, er
fannst víða á norðurlandi,
var 5-10 km norðvestur af
Flatey og á hann upptök sín
í misgengi í jarðskorpunni
sem liggur um Húsavík,
Flatey og út fyrir mynni
Eyjafjarðar.
■ Fulltrúar þeirra fyrirtækja og stofnana er hlutu viðurkenningu
Ferilsjóðsins ásamt framkvæmdastjóra Styrktarfélagsins Sigurði
Magnússyni og stjórn Ferilsjóðsins Halldóri Rafnar, Jónínu Guð-
mundsdóttur og Vigfúsi Gunnarssyni.
Mynd Carl Brand
■ Nýlega var úthlutað viður-
kenningum úr Ferilsjóði Styrkt-
arfélags lamaðra og fatlaðra.
Verkefni sjóðsins er m.a. að
veita viðurkenningar til þeirra
aðila, sem sýna áhuga og vilja á
því að bæta möguleika og um
leið örveei fatlaðra í að komast
ieiðar sinnar. Hönnun bygginga
og öll aðstaða innanhúss sem
utan, sem gera hreyfihömluðum
auðveldara að komast leiðar
sinnar, er mikið hagsmuna og
réttindamál fatlaðra.
Eftirtaldar stofnanir og fyrir-
tæki hlutu viðurkenningu frá
ferilsjóðnum að þessu sinni:
Hótel Esja, Verslunin Mikli-
garður, Reykjalundur, Vinnu-
heimili SÍBS, Félag heyrnar-
lausra og félagið Heyrnarhjálp,
Verslunin Fjarðarkaup, Garð-
yrkjuskóli ríkisins'a Reykjum
í Ölfusi og Sundlaug Seitjarn-
arness, en auk viðurkenningar-
innar var sundlauginni færður
að gjöf bað-hjólastóll.
I kaffisamsæti sem efnt var til
í húsakynnum Styrktarfélagsins
að Háaleitisbraut 13 og þar sem
viðurkenningamar vom afhentar,
kvaðst Halldór Rafnar, formað-
ur sjóðsstjórnar vonast til þess,
að þessar viðurkenningar yrðu
öðrum hvatning til að sinna
þessum hagsmunamálum fatl-
aðra. I sama streng tóku viðtak-
endur viðurkenningarskjalanna
um leið og þeir þökkuðu þann
heiður og viðurkenningu, sem
þeim væri sýndur.
Þáfœrðu
Þáfœrðu
Þáfœrðu
Þáfœrðu
Ogauðvitað
FYRIR EINA KRONU
t * ' H <
EV SALURINN - BILASALA - BILASKIPTI
Þegar þú kaupir notaðan bíl hjá AGLI:
RUÐUSKÖFU
LÁSA-SPRAY
ÍS-EYÐl
ÞVOTTASVAMP
LYKLAKIPPU
fyrir
fyrir
fyrir
fyrir
fyrir
EINA KRÓNU
EINA KRÓNU
EINAKRÓNU
EINA KRÓNU
EINA KRÓNU
Það KOSTAR EKKERT að líta inn.
Það KOSTAR EKKERT að rœða málin
Séu ekki snjódekk á bílnum seljum við þér sóluð snjódekk fyrir EINA KRÓNU
útvarp í bílnum seljum við þér nýtt útvarp fyrir EINA KRÓNU
Þar á ofan seljum við þér ábyrgðartryggingu fyrir EINA KRÓNU
í SKIPTIVERSLUN:
Við lánum þér
alla milligjöfina.
Þú borgar ekki
EINA KRÓNU út
Sífelld bílasala
Sífelld þjónusta
Fyrir 11 krónur
færðu:
Rúðusköfu,
lása-spray,
þvottasvamp,
ís-eyði,
lyklakippu,
4-snjódekk,
útvarp og
ábyrgðartry ggingu.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4C Simar 79944 - 79775